Skinfaxi - 01.04.1953, Blaðsíða 19
SKINFAXI
19
er settur innan í þann hvíta. Þykir sú breyting æskileg meðal
annars af þeim sökum, að þá þarf eigi að óttast, að fána vor-
um sé ruglað saman við fána annarra þjóða, er hinn líkist
unt of, svo sem eru fánar Svía (gulur kross í blám feldi —
hvítt líkist gulu, er það fer að blakna) og Grikkja (konungs-
fáninn); sendum vér yður og rnyndir þeirra, svo að þér
sjálfir getið dæmt um líkinguna.
Skorum vér nú á yður, að þér gerið gangskör að því, að
búar allir í hreppum yðar og allir þeir, konur og karlar, sem
komin eru til vits og ára, haldi fund með sér, heiti fánamál-
inu sínu liðsinni og velji um, hvora þeirra hugmynda um
gerð fánans, sem um getur hér að framan, þeir kjósi heldur
að Islandsfána.
Væntum við þess, að undirbúningi þessum verði lokið fyrir
sumarmál, og þér því næst sendið samþykktir yðar hið skjót-
asta til Stúdentafélagsins í Reykjavík og Ungmennafélags Ak-
ureyrar.
Akureyri, 26. janúar 1907.
Vinsamlegast U.M.F.A.
Góðir ungmennafélagar! Ég læt ykkur hér með um að dæma
hvor fánagerðin sé, sögulega séð, tengdari Umf.
B. A.
FÁNI
STÚDENTAFÉL. REYKJAVÍKUR
Hér lýkur þætti Snæfellinga.