Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1953, Síða 27

Skinfaxi - 01.04.1953, Síða 27
SKINFAXI 27 Hvers konar menn eru svo þessir níu réttlátu í Egyptalandi? I fyrsta lagi eru þeir allir ungir og óragir. I öðru lagi eru þeir atvinnuhermenn af miðstéttarfólki, og þótt tveir þeirra séu sæmilega fjáðir, hafa þeir allir hina megnustu andúð á gömlu yfirráðastéttinni. í þriðja lagi eru þeir ákafir Múham- eðstrúarmenn, en þótt svo sé, eru þeir hálft í hvoru Vestur- landamenn, og þeir trúa því statt og stöðugt, að þeir séu að framkvæma lýðræðislega byltingu. Samt væri rangt að gefa í skyn, að þeir væru allir af sömu tegund. í rauninni eru þeir blandaður hópur. Þeir þrír þeirra, sem þekkja England bezt, segja hiklaust, að sú þekking hafi gert þá enn þjóðernissinn- aðri. Einir tveir þeirra eru sæmilega vel lesnir, og þeir eru hæglátastir og viðmælanlegastir, — eða voru þeir aðeins kænni í viðræðum við mig? Abdul Nasr ofursti, sem tvímælalaust er skipulagningarheili hópsins, var kennari við liðsforingjaskól- ann egypzka. Þegar ég spurði hann, hvort hann hefði lesið nokkuð um stjórnmál og fjárhagsmál, svaraði hann: „Nei, ég læt Salem yfirforingja fjármálin eftir. Hins vegar hef ég lesið mikið urn áþján Breta í írlandi og pólsku frelsisstríðin.“ Sadat ofursti, sem er að nokkru leyti ættaður frá Súdan eins og Naguib herforingi, sagði mér, að hann hefði lesið mjög mikið þau sex ár, sem hann sat í fangelsi. — Hann var fangi Breta í stríðinu, vegna uppþots og samvinnu við Þjóðverja. — Bæk- urnar, sem mest áhrif höfðu á hann, voru skáldsögur Jack London og ævisaga Mustafa Kemals (Ataturks), Gráúlfurinn. Hvað er þá að segja um samband Naguibs og þessa hóps? Naguib er vissulega ekki einvaldsherra. Ungu liðsforingjarnir koma fram við hann líkt og föður. Þeir virða hann og heiðra, en allir hafa þeir samt sínar eigin skoðanir. Efalaust er það þess vegna, hve fundir hópsins dragast einatt á langinn, oft svo klukkustundum skiptir. Þá er þýðingarmikið atriði að muna, að Naguib var ekki einn af hinum upprunalegu upp- reisnarmönnum. Það er einungis út af deilu við Farúk kon- ung nm formennsku í liðsforingjaklúbbnum, að hann svo að segja af tilvijjun varð foringi hreyfingarinnar. Nú er hann forseti og forsætisráðherra og fundarstjóri á funduni hópsins. Hann hefur til að bera eitthvað af umgengnistöfrum Eisen- howers, og hann virðist kunna mæta vel við að vera önnum kafinn við alls konar opinber embættisstörf og viðtöl við ólík- ustu gesti og erindreka, innlenda og erlenda. Hann hefur á skömmum tíma áunnið sér geysilega lýðhylli. Hann hefur einn- ig orð fyrir að vera liltölulega hógvær í framgöngu og samn- ingalipur í stjórnarháttum. Og hópnum er mikið í mun, að

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.