Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1953, Qupperneq 31

Skinfaxi - 01.04.1953, Qupperneq 31
SKINFAXI ,31 ])etta hérað allmikið og þó máske engu síður landið allt sögu, sem mér finnst allt of lítið á lofti haldið, cn er þó saga um móðurást og umhyggju, sem varð undir- rót mikilla atburða. Lítill drengur clst upp á nafnlausum bæ austur i Svíþjóð. Um æsku hans vitum vér ekkert. Föðurnafn þekkjum vér aðeins af því, að það hefur verið órjúfandi tengt nafni sonarins. Móðurnafnið veit enginn. Og þó er móðir hans ef til vill merkasta konan, sern kemur við sögu landnámsins á Islandi. Þessi maður er Garðar Svavarsson. Um hann eru þessar fáu línur i Landnámabók: „Mað- ur hét Garðar Svavarsson, sænskur að ætt. Hann fór að lcita Snælands að tilvísun móður sinnar framsýnn- ar. Hann köm að landi fyrir austan Horn hið eystra. Þar var þá höfn. Garðar sigldi umhverfis landið og vissi, að það var eyland. Hann var um vetur einn norður í Húsavík á Skjálíanda og gerði þar hús. Um vorið, er hann var húinn til hafs, sleit frá honum mann á I)áti, er liét Náttfari, og þræl og ambátt. Hann l)yggði ])ar síðar, er heitir Náttfaravík. Garðar fór þá til Nor- egs og lofaði mjög landið. Hann var faðir Una, föður Hróars Tungugoða. Eftir ])að var landið kallað Garð- arshólmur, og var ])á skógur milli fjalls og fjöru.“ Litla vitneskju höfum vér um Garðar aðra en ])á, sem felst í þessari frásögn Landnámu. Og ef vér gerum ráð fyrir, að hún sé öruggasta heimildin, skulum vér at- huga hana lítið eitt nánar. Hér er aðeins smámynd. Fáir drættir, en svo lokkandi skýrir og fagrir, að hug- urinn hlýtur að staðnæmast, virða fyrir sér mvndina og vefa inn í hana sína drætti, seiri blasa við milli línanna. Og hvað sýnir þá þessi smámynd oss? Garðar Svavarsson er víkingur í leit að frægð og frama. Heima híður móðirin. Hún \’ill gjarna geta beint huga sonarins að einhverju stóru, finna honum hlut-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.