Skinfaxi - 01.04.1953, Blaðsíða 44
44
SKINFAXI
Rit send Skinfaxa.
Skinfaxa liafa borizt Nýjar kvöldvökur, XLV. árg. 1.—4.
hefti. Þetta gamalkunna tímarit flytur enn sem fyrr sögur,
greinar, sagnir, o. fl., til fróðleiks og skemmtunar. í þessum
árgangi lýkur endurminningum Kristjáns S. Sigurðssonar.
Smásögur, Jjýddar og frumsamdar, eru nokkrar í ritinu, auk
framhaldssögunnar. Þá eru umsagnir um bœkur, er J)eir rita
Steindór Steindórsson og ritstjórinn, Þorsteinn M. Jónsson.
Lausavísnajiátturinn,
sem ráðgerður var í fyrra, hefsl með Jjcssu liefti. Hefst liann
á visum eftir Jónas Tryggvason, Finnstungu í Bólstaðarhlíðar-
hreppi, A-Hún. — Ungmennafélagar eru mjög hvattir til að
senda þættinum lausavísur. Er j)að vitað mál, að út um allar
byggðir landsins eru fjöhnargir hagyrðingar, scm að staðaldri
kasta fram stökum. — Skinfaxi heitir nú á ungmennafélaga að
senda bögur. Þær geta verið um allt milli himins og jarðar,
en nafn liöfundar þarf að fylgja með. Skýringar eru og
stundum nauðsynlegar. Hvernig væri, að einstök Umf. eða
jafnvel heil héraðssambönd kvæðust á i Skinfaxa?
(
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga fslands.
Pósthólf 406 — Reykjavík.
Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri: Stefán Júlíusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H. F.