Skinfaxi - 01.06.1971, Page 8
4
Úrslit í 100 m. hlaupi á síðasta landsmóti.
Guðm. Jónsson (HSK) sigrar, á undan Jóni
Benónýssyni (HSÞ) og Sigurði Jónssyni
(HSK).
í knattleikjum eru landsmótsstig gefin
á eftirfarandi hátt:
Sex efstu liðin liljóta stig sem hér segir:
1. 18 stig, 2. 15 stig, 3. 12 stig, en liðin
sem verða í 4.—6. sæti hljóta 6 stig hvert.
Verðlaun.
I liverri einstaklingsgrein hljóta 6
fyrstu menn verðlaun og einnig boð-
hlaups- og boðsundssveitir.
Sérverðlaun eru veitt sem hér segir.
í frjálsum íþróttum og sundi:
1. Héraðssambandi, sem flest stig hlýtur
í samanlögðum frjálsíþróttagreinum
og samanlögðum sundgreinum.
2. Stigahæstu konu í frjálsum íþróttum
og í sundi.
3. Stigahæsta karli í frjálsum íþróttum og
í sundi.
4. Fyrir bezta afrek konu í frjálsum
íþróttum og sundi skv. stigatöflu.
5. Fyrir bezta afrek karls í frjálsum
íþróttum og sundi skv. stigatöflu.
Séu fleiri en einn jafnir að stigum, eða
hafi hlotið sama árangur eftir stigatöflu,
skulu allir hljóta sömu verðlaun.
I starfsíþróttum: Stigahæsti sambands-
aðili og stigahæsti einstaklingurinn.
I glímu: Stigahæsta héraðssambandið
og sigurvegari í hvorum þyngdarflokki.
Hátíðar- og skemmtidagskrá.
Að kvöldi laugardagsins 10. júlí verður
kvöldvaka með fjölbreyttum skemmti-
atriðum að vanda og á eftir verður dans-
leikur. A sunnudag verður svo hátíðar-
dagskrá með ræðuhöldum, íþróttasýning-
um og ýmis konar skemmtiefni.
Þessi mynd er frá lands-
mótinu á Laugum 1946.
Stúlkur úr íþróttakenn-
araskóla íslands sýna fim-
Ieika undir stjórn Bjöms
Jakobssonar skólastjóra
sem leikur undir á fiðlu.
8
SKINFAXI