Skinfaxi - 01.06.1971, Qupperneq 16
Yfirgangur peningagróðans.
Kaupsýslumenn keppa um verzlunar-
umboð fyrir erlenda aðila, og þar er
peningagróðinn auðvitað mælikvarðinn
á áhuga keppenda.
Hugsjónamenn og hugsjónakonur í
Reykjavík keppast við að etja ungum
stúlkum í svokallaða „fegurðarsam-
keppni“. Eftir fréttum að dæma er hart
bitizt um umboðin fyrir erlendar stúlkna-
sýningar ekki síður en um vöruumboðin.
Þess konar keppni hefur hingað til
ekki verið talin íþróttakeppni, en nú er
svo komið, að vissir kaupsýsluaðilar hafa
í hyggju að tengja slíka gróðakeppni við
ungmennafélags- og íþróttahreyfinguna,
og hefur víst fáa órað fyrir því að svo
langt yrði seilzt. í dagblaði einu er hinn
6. maí s.l. viðtal við einn dugmikinn hug-
sjónamann í verzlunarstétt, sem hefur
krækt sér í nokkur umboð, t. d. fyrir
„Miss Universe á Miami, Florida, USA,
Miss International í Japan, Miss Europe,
sem haldin verður í einhverju Evrópu-
landanna eða nálægum Austurlöndum,
Miss World, sem haldin er í London,
Miss Scandinavia, sem haldin verður í
Finnlandi og Miss Young International
í Japan“. (Ekki getið um umboðalaun).
Líka er viðtal við þann aðila, sem virð-
ist vera umboðsmaður umboðsmanns
hinna erlendu „Miss-fyrirtækja“, en það
er kona, sem fær að græða á því að
smala stúlkum í úrtökumót hins fyrr-
nefnda umboðsmanns. Kona þessi lætur
kjósa „fegurðardrottningar“ eða „ung-
frúr“ í hverri sýslu og flestum kaupstöð-
um (Sjá Skinfaxa, 3. 1969) undir því yfir-
skini, að þær eigi allar að keppa á úrslita-
mótinu í Reykjavík. Aðeins 12 stúlkur
tóku samt þátt í úrslitunum í Reykjavík
í maímánuði s.l.
Áðurgreindu blaðaviðtali lýkur á eftir-
farandi hátt:
„Loks greindi Sigríður Gunnarsdóttir
frá því að ráðgert væri að fá ungmenna-
eða íþróttafélög, í hverri sýslu fyrir sig á
landinu til þess að velja fulltrúa viðkom-
andi sýslu til þátttöku í Fegurðarsam-
keppni íslands í framtíðinni.“
Auðsjáanlega er það auðveldur leikur
fyrir óprútútið gróðabrallsfólk að græða
á hégómagirnd unglinganna, en gegn
slíku hljóta ungmennafélögin að snúast.
Það er nógu illt, að félagsheimilin víða
um land skuli hafa verið leigð undir
þessa Iágkúrulegu fjáröflunaraðferð
hinna sjálfskipuðu fegurðardómara úr
Reykjavík, þótt íþrótta- og ungmenna-
16
SKINFAXI