Skinfaxi - 01.06.1971, Side 20
RÆTT VIÐ FORMANN GLÍ
ÍÞRÓTTALEG ÚTTEKT
Á GLÍMUNNI
Ólafur H. Óskarsson
Skinfaxi átti nýlega stutt viðtal við Ólaf
H. Óskarsson, formann Glímusambands
íslands, en Ólafur tók við forystu í GLÍ
í fyrra, en hafði setið í stjórninni áður
um árabil.
— Hverjar eru helztu aðgerðir GLÍ
til að efla glímuíþróttina?
— Við stuðlum að glímukennslu sem
víðast um landið og margs konar kynn-
ingarstarfsemi á íþróttinni, vinnum að
mótum og sýningum auk þess sem mikil
Mikilvægt er að
piltar í unglinga-
skólunum fái að
kynnast glím-
unni af eigin
raun.
vinna Hggur í almennri stjórnun og end-
urskoðun á reglum og lögum varðandi
glímuna.
— Hefur glímukennsla aukizt?
— Við höfum unnið að ])ví að koma á
kennslu og námskeiðum í samvinnu við
skóla og íjrróttasamtök. Það hefur tekizt
misjafnlega. Glíma hefur t. d. verið
kennd í Lindargötuskólanum í Reykjavík,
Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi og á
Eiðum og áhugi verið góður. Það er mik-
ilvægt að kynna glímuna ásamt öðrum
íþióttagrcinum í unglingaskólunum til
þess að sem flestir ungir menn fái að
kynnast íþróttinni af eigin raun. í haust
byrjar væntanlega glímukennsla í öllum
unglinga- og gagnfræðaskólum á Snæ-
fellsnesi og hafa skólastjórarnir sýnt lofs-
verðan áhuga fyrir málinu. Við leggjum
svo áherzlu á, að íþróttafélögin taki við
og veiti unglingunum þjálfunaraðstöðu
áfram, þegar skólunum sleppir. Þess má
geta, að s.I. vetur gekkst GLÍ fyrir glímu-
kennslu ásamt Umf. Aftureldingu í Mos-
fellssveit og UMSK að Brúarlandi. Þarna
voru strákar á aldrinum 12—16 ára og
æfðu af miklum áhuga. GLÍ hefur kenn-
20
SKINFAXI