Skinfaxi - 01.06.1971, Side 22
Æfingar með þyngdum
Æfingar þær með þyngdum, sem ég set fram hér, eru aðeins dæmi um
smáhluti af öllum þeim æfingum með þyngdum og hverskonar mótstöðu, sem
notaðar eru við þjálfun frjálsra íþrótta.
Það er rétt og satt að ekki er of mikið til af lyftingatækjum hér á landi og
því er ekki hægt um vik fyrir flest ykkar að hefja slikar æfingar, en þar sem
hugmyndaflugið er fyrir hendi, má notast við ýmislegt í stað þeirra með líkri
útkomu fyrir þann, sem æfir, svo sem járnstengur ýmiskonar, sandpoka og
ýmsar aðrar þyngdir, sem þannig eru úr garði gerðar, að auðvelt er að halda
á þeim.
Þeir, sem ekki hafa æft slíkar æfingar áður og hér eru upptaldar, skulu fyrir
alla muni fara verlega og æfa eingöngu með mjög léttum þyngdum að sinni
og meðan þeir eru að læra að beita líkamanum við æfingarnar.
En það er ekki ætlast til þess að allir æfi allar æfingarnar, sem upp eru
gefnar, heldur skal reynt að æfa þær æfingar einar, sem þroska mest þá vöðva,
sem mest á reynir við útfærslu íþróttagreinarinnar, en það eru fyrst og fremst
æfingar, sem líkjast mjög íþróttagreininni i framkvæmd.
Og nú vil ég reyna að hjálpa ykkur enn frekar með þvi að benda á hvaða
æfingar þið ættuð að leggja stund á og miða þá við íþrótt ykkar.
Hástökkvarar, langstökkvarar og þrístökkvarar noti æfingar no. 1 - 2 - 3 -
4-5-6-7-Ð.
Stangastökkvarar noti æfingar no. 1-3-9-12-14-16-17-19.
Kúluvarparar noti æfingar no. 1-5-9-10-13-17-21-22.
Kringlukastarar noti æfingar no. 2-6-8-11-13-15-16-17.
Spjótkastarar noti æfingar no. 1-4-7-10-14-17-18-21.
Sleggjukastarar noti æfingar no. 1-3-8-12-14-16-19-20.
1. Staðið með fætur eilitið i
sundur. Hafa má smávegis
upphækkun undir hælum.
Hnébeygja og rétta. Beygjan
hæg en réttan hröð. Æfing-
in hefur einnig góð áhrif á
bakvöðvana.
Með beztu árnaðaróskum!
Guðm. Þórarinsson.
2. Staðið með fætur eilítið í
sundur. Hæg hnébeygja en
hröð réttun. Hryggur beinn.
Hefur góð áhrif á bakvöðv-
ana.
22
SKINFAXI