Skinfaxi - 01.06.1971, Page 29
LIÐ UMFK
Margir munu bíða þess með eftirvæntingu að sjá knattspyrnuiið Ungmennafélags Kefla-
víkur í keppni. Þótt keflvísku ungmennafélagarnir séu uppistaðan í hinu fræga og harð-
snúna knattspyrnuliði ÍBK, þá keppa þeir sjaltlan með eigin liði á stórmótum. Lið UMFK
sigraði á landsmótinu á Laugarvatni 1965, en sökum annríkis ÍBK-liðsins gat liðið ekki
komið því við að taka þátt í landsmótinu 1968, en þeir munu hafa fullan hug á að minna
rækilega á nærveru sína á landsmótinu að þessu sinni.
Og hér kemur ný mynd af UMFK-liðinu: Standandi frá vinstri: Þorsteinn Ólafsson, Gísli
Torfason, Ólafur Júlíusson, Guðni Kjartansson, Grétar Magnússon, Karl Hermannsson og
Kjartan Sigtryggsscn. Fremri röð frá vinstri: Ingimundur Hilmarsson, Hörður Kagnarsson,
Steinar Jóhannsson, Ástráður Gunnarsscn, Vilhjálmur Ketilsson og Friðrik Ragnarsson.
(Ljósm. Heimir Stígsson.)
AFREKSBIKAR
LANDSMÓTANNA
Á landsmótum UMFI er m. a. keppt
um veglegan farandbikar, sem fræknasti
íþróttamaður landsmótsins hlýtur hverju
sinni og einnig minni bikar til fullrar
eignar. Til grundvallar eru lagðar skrár
og útreikningar um alla keppendur, er
hljóta mótsstig.
Þuríður Jónsdóttir, HSK, hefur hlotið
bikarinn á þeim tveim landsmótum, sem
um hann hefur verið kepjit, og er það
einstæður afreksferill hjá Þuríði. Hún er
einnig meðal keppenda á Sauðárkróki nú,
bæði í frjálsum íþróttum og sundi.
Gefandi afreksbikarsins eru Samvinnu-
trvggingar.
SKINFAXI
29