Skinfaxi - 01.02.1994, Side 6
Þórir Jónsson formaður UMFÍ:
Þrjú verkefni UMFÍ á
afmælisári lýðveldisins
Á 38. sambandsþingi UMFÍ, sem
haldið var að Laugarvatni dagana 23.
og 24. október síðastliðinn var sam-
þykkt tillaga, þar sem hvatt var til
þess að stjórn UMFI fyndi verðugt
verkefni til þess að vinna að á 50 ára
afmæli íslenska lýðveldisins 1994. í
samþykkt sinni vakti þingið athygli á
því mikilvæga hlutverki sem UMFÍ
gegndi í sjálfstæðisbaráttunni í byrj-
un aldarinnar. Lagði þingið til að
stjórnin skipaði nefnd í málið.
I framhaldi af þessu var ákveðið
að fara þá leið að fela framkvæmda-
stjóra og framkvæmdastjórn UMFÍ,
að vinna að undirbúningi þess.
Nú hefur stjórn UMFÍ tekið ákvörðun uni þrjú verk-
efni, sem unnin verða á vegum UMFI í tilefni afmælis
lýðveldisins og á afmælisári. Hið fyrsta er málræktará-
tak, sem UMFI mun vinna í samstarfi við rás 2. Var unn-
ið að mótun á framkvæmd verkefnisins þegar Skinfaxi
fór í prentun, þannig að ekki reynist unnt að gera henni
nákvæm skil fyrr en í næsta tölublaði. Megintilgangur á-
taksins verður að sjálfsögðu að rækta íslenska tungu.
Annað verkefni UMFI á afmælisári lýðveldisins er
Lýðveldishlaup 1994. Nú þegar er Ijóst að ýmsir aðilar
hafa hug á að komast í samstarf við UMFÍ vegna þessa
verkefnis. Rætt hefur verið við nokkra þeirra, en engar á-
kvarðanir teknar þegar þetta er skrifað.
Tilgangurinn með Lýðveldishlaupi 1994 er að minn-
ast stofnunar íslenska lýðveldisins, efla holla hreyfingu á
meðal ungmennafélaga og alls almennings. Ekki verða
sett nein tímamörk, en þátttakendur verða að leggja að
baki ákveðna vegalengd, sem þeir munu hlaupa, skokka
eða ganga eftir því sem hver og einn kýs. Þá verða þeir,
sem hyggjast taka þátt, að hlaupa í formlegu hlaupi á
vegum einhvers af ungmennafélögunum og munu þeir fá
þátttökumerki að hlaupi loknu. Hver og einn getur
hlaupið oftar en einu sinni og safnað slíkum merkjum.
Þá er hugmynd að veita viðurkenningar, annars vegar því
félagi sem fær flesta til að taka þátt og hins vegar því félagi
sem fær flesta til að taka þátt miðað við fjölda félagsmanna.
Með þessu er hagur minni félaganna einnig hafður í heiðri.
Gert er ráð fyrir að Lýðveldishlaup UMFÍ 1994 standi
yfir frá apríl og fram í október.
Loks hefur stjórn UMFÍ ákveðið að frarn fari ritgerða-
samkeppni meðal nema í grunnskólum á komandi hausti.
Ritgerðirnar skulu fjalla um efnið:
Eflum íslenskt, hvers vegna eigum
við að kaupa íslenskar vörur,
hvernig getum við unnið gegn at-
vinnuleysi og hvaða áhrif hefur at-
vinnuleysi á fólk? Skilafrestur er til
15. október næstkomandi, en
keppnin verður kynnt nánar þegar
nær dregur hausti. Vegleg verðlaun
verða í boði og allir þátttakendur fá
viðurkenningarskjal.
Nánar verður greint frá verkefn-
um UMFI á afmælisári lýðveldis-
ins í næsta blaði.
SKILAR ÞU
UMBÚÐUNUM
A fíFTTAN mi)1
Umbúðir á eftirfarandi iista eru í
umsjá Cndurvinnslunnar hf.:
Áldósir 33 cl og 50 cl
íinnota plastdósir 33 cl
Cinnota plastflöskur 50 cl - 2 lítra
tinnota glerflöskur fyrir öl og gosdrykki
Bjórflöskur
Áfengisflöskur
Á allar ofangreindar umbuðir er lagt 6 kr. skilagjald sem er endurgreitt
við móttöku í Cndurvinnslunni hf. eða hjá umboðsaðUum um allt land.
[NOURIINNSLAN Hf
Nýtt úr noluðu!
6
Skinfaxi