Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 14
hópnum verði með þjóðdansaatriði á kvöldvökunni. Kornið verður upp sér- stökum samkomustað fyrir þá sem kepptu ‘65. Þar verða myndir og ýmsir munir til sýnis, sem tengjast umræddu móti. Einnig verða sýndar kvikmyndir frá því. Ekki er ákveðið hvar „’65-at- hvarfið“ verður, en kappkostað verður að búa vel að gestum sem það heim- sækja. „Næst vil ég nefna þætti sem flokk- ast undir hin traustu gildi og baráttu- má) ungmennafélaganna í landinu,“ segir Ólafur Örn enn fremur. „Þeim ætlum við að gera hátt undir höfði á landsmótinu. Þar vil ég nefna ræktun Iands. Tekist hafa samningar við Olís og Landgræðsluna um að vekja sér- staka athygli á uppgræðslu lands á mótinu. Það verður gert með myndum, skiltum og öðrum sýnilegum hætti. Þá verður fenginn myndarlegur land- græðslureitur í nágrenni Laugarvatns, sem verður afgirtur. Þessi reitur verður opinn almenningi alla mótsdagana, þannig að fólk getur, þegar því hentar á þeim tíma, farið á svæðið og lagt sitt af mörkum til landgræðslu. Þar verða fyrir ráðgjafar frá Landgræðslunni, sem sýna munu gestunum þann gróður sem fyrir er, hvernig á að stinga niður rofabörð, hvaða tegundum fræs á að sá í svæðið og hvernig, svo eitthvað sé nefnt. Til athugunar er að vera með veit- ingar og uppákomur á landgræðslu- svæðinu. Þegar nær dregur landsmót- inu verður væntanlega hægt að fá efni og leiðbeiningar varðandi þetta á Olís- stöðvunum. Hugsanlega verður Olís með einhvern landgræðsluleik í gangi sem lýkur þá á mótinu. Ef til vill verður gestum gefinn kost- ur á að leggja eitthvað af mörkum til skógræktar líka, en ekki liggja fyrir á- kvarðanir í þeim efnum enn.“ Börnin með UMFÍ hefur ákveðið að efna til mál- ræktarátaks í tilefni afmælis íslenska lýðveldisins, eins og frá er greint ann- ars staðar í blaðinu. Angi af því verk- efni verður færður inn á landsmót, því einhvers konar útgáfa af málræktar- keppninni, sem fram fer á rás 2 að und- irlagi UMFÍ, verður haldin á landsmót- inu. Með því móti verður vakin athygli á málrækt. „ Við leggjum áherslu á að ná til barnanna, laða þau að ungmennafélög- unum og vekja athygli þeirra með já- kvæðum hætti á landsmótunum,“ segir Ólafur Örn. „I þessu skyni verðum við með mjög stóran barnakór á mótinu. Um verður að ræða samkór hvaðanæva af svæði HSK. Hann mun syngja í í- þróttahúsinu við ákveðin tækifæri, en einnig er hugmyndin að hann muni syngja við setningarathöfnina. Með þessu móti munum við ekki aðeins laða börnin að ungmennafélagshreyf- ingunni og fá fallegt og gott atriði inn á mótið, heldur sækjumst við einnig eftir því að ná tengslum við heimilin á svæðinu með þessum hætti.“ íþróttakeppnin verður með hefð- bundnum hætti og samkvæmt reglu- gerð landsmóts. Óvenjulegt telst að grípa þurfi til forkeppni í tveim grein- um, vegna mikillar þátttöku, en það gerðist nú. Forkeppni stendur yfir í knattspyrnu. Slík keppni mun einnig fara frani í körfubolta. Ákveðið hefur verið að keppt verði á einni helgi í fjórum riðlum. Átján lið hafa skráð sig til keppni. Verður raðað eftir styrk- leika, en ekki landshlutum í riðlana vegna þess að mörg sterkustu liðin eru á sama landssvæðinu. Drátturinn í riðl- ana verður látin ráða því hvort keppnin fer fram á mörgum stöðum á landinu eða hvort hún fer öll fram á einum stað. Keppt verður fyrstu helgina eftir lok íslandsmótsins. Ut úr hverjum riðli munu koma tvö lið, þannig að alls munu átta lið keppa á landsmótinu. Hvað varðar sýningargreinar á mótinu, hefur verið ákveðið að hestaíþróttir verði sýndar þar. Hugað að minjagripum „Nú er verið að huga að gerð minja- gripa fyrir mótið,” segir Ólafur Örn. „Sú hugmynd að ein gerð þeirra yrði Ijósmynd af landsmótssvæðinu, hefur hlotið jákvæðar undirtektir. Myndin yrði lekin á föstudeginum, þegar mannfjöldinn væri kominn á svæðið. Hún yrði til sölu strax á laugardegi. Að öðru leyti verður fjölbreytni minja- gripa mjög stilll í hóf, en leitast við að hafa þá þeim mun vandaðri.” Heiðurgestur á 21.1andsmóti UMFÍ verður Þórir Þorgeirsson fyrrverandi í- þróttakennari og oddviti á Laugarvatni. Sérstakir gestir mótsins verða Stefán Jasonarson og Björn Sigurðsson, sem báðir áttu sæti í landsmótsnefndinni 1965, svo og Hafsteinn Þorvaldsson sem var framkvæmdastjóri þess lands- móts. Vonandi eiga sem flestar þessara kvenna eftir að hittast á landsmótinu nú og rifja upp ýmsa skemmtilega atburði frá mótinu ‘65. (Myndin birtist í bókinni Saga landsmótanna.) 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.