Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 25
Islenskt fyrir íslendinga! - snúum vörn í sókn á lýðveldisafmælinu Varla hefur farið fram hjá nokkrum manni átakið „Islenskt, já takk.“ Því er ætlað að valda hugarfarsbreytingu þegar fólk stendur frammi fyrir vöru- vali, þjónustu eða stærri verkkaupum. Að átakinu standa ASI, Samtök iðnað- arins, VSÍ, íslenskur landbúnaður og BSRB, auk ýmissa styrktaraðila og deif- ingaraðila. I desember sl. gerði Gallup könnun á áhrifum átaksins og kom þar m.a. fram að 80% landsmanna telja að átakið hafi skilað miklum árangri og fyrir áhrif þess velja rúm 70% aðspurðra frekar íslenskar vörur nú en áður. En er þetta varanlegur árangur eða er hann svona í raun? Við sem að átakinu stöndum teljum að til að ná varanleika þurfi að hamra á sambandi vöru og vinnu og gera fólki gleggri grein fyrir því hve afdrifarík hver verslunarferð getur verið. Einnig má benda á að í könnunum kemur fram vilji, en ekki er endilega alltaf sama- semmerki milli hans og framkvæmdar. Það er einfaldlega ekki alltaf hægt að standa við gefin fyrirheit; varan er stundum ekki til í viðkomandi verslun eða yfir stendur „súper“ tilboð á sams- konar vöru erlendri. Þá er að sjálf- sögðu úr vöndu að velja. Við höfum sagt að við virðum verð og gæðasamanburð en teljum að það eigi að vega jafnþungt, sé varan ís- lensk. Við segjum að íslenskt, verð og gæði, þessa þrjá þætti eigi að leggja að jöfnu. í íslenskum iðnaði hefur verið samdráttur síðastliðin 10 ár og síðast- liðin 5 ár hafa tapast yfir 4000 störf. Ef litið er til dæmis á innflutning á kaffi, þá hafa flætt yfir okkur óteljand vöru- merki á nokkrum árum og er vörunni oftast stillt þannig upp að þau eru ntun meira áberandi en íslenska kaffið. Þannig er þessu varið með rnargar fleiri vörutegundir og gegna undirboð og tilboð þar miklu hlutverki til að koma vörunni á sent bestan stað í verslunum. Þetta er viðurkennd stað- reynd. En lítum aðeins á hverju hægt er að breyta. Þar er fyrst til að nefna eflingu þjóðerniskenndar og betri fræðslu til allra urn það sem í húfi er. 45 ferðamenn = eitt ársverk í blöðunum helgina 29,- 30. janúar birtust fyrst drög að niðurstöðu þjóð- hagsstofnunar á viðskiptajöfnuði fyrir síðastliðið ár og gæti hann orðið hag- stæður í fyrsta skipti í sjö ár. Yfir 30 milljarða halli var á árunum tveim þar á undan. Það er því mikið í húfi fyrir íslenska þjóð að efla nú enn frekar allt sem íslenskt er og sjá til þess að við- skiptahalli við útlönd eigi sér ekki framar stað. Nokkur stórverkefni mætti nefna sem snúa beint að aukinni atvinnu og meiri gjaldeyristekjum. Ber þar fyrst að nefna aukna vinnslu á sjávarafurð- um í neytendapakkningar til að sent minnst fari af fiski óunnum úr landi. Nú þegar hafa verið unnir markaðir í Bretlandi og Belgíu f}/rir ýmsar unnar hágæðavörur úr fiski. í þessari grein er gífurleg vinna óunnin og mikið mark- aðsstarf sem þarf að sinna. Næst ber að nefna byggingariðnaðinn en þar hafa orðið miklar breytingar. Húsgagnaiðn- aður og innréttingaiðnaður hafa átt í gífurlegum erfiðleikum enda gengdar- laust flutt inn og oft ekki leitað tilboða innanlands. Má þar einnig nefna hús- hlutaiðnað en í honum eru meðal ann- ars tilbúnir gluggar og fleira þess hátt- ar. A síðastliðnu ári bar þónokkuð á því að sett hafi verið inn í útboðsgögn að viðkomandi hlutir ættu að vera er- lendir. Þar með hefur íslenskum fram- leiðendum ekki verið gefinn möguleiki á að bjóða í. Þetta verður að stöðva, enda virðist það vera almennt viðhorf að þessi framleiðsla eigi að vera inn- lend og furðu vekur hver tekur svona Erlenda kaffið er stundum meim áberandi í hillun en það íslenska, þó ekki alltaf Skinfaxi 25

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.