Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 37
Umf. Grundarfjarðar á tímamótum: Nýr íþróttavöllur - eykur enn á blómlegt starf Ungir sein aldnir fjölmenntu á afniœlishátíð Umf. Grundaifjarðar. Það hefur ýmislegt verið að gerast hjá Ungmennafélagi Grundarfjarðar að undanförnu. I haust var minnst 60 ára afmælis þess. Þá var tekin fyrsta skóflustungan að íþróttavelli á staðn- um. „Þetta var heilmikil viðhöfn,“ sagði Eiður Björnsson formaður ungmenna- félagsins við Skinfaxa. „Fyrst var gengið fylktu liði frá bensínslöð Esso hér í bænum og inn á íþróttavöllinn. Þar var skrifað undir sanining milli ungmennafélagsins og sveitarfélagsins þess efnis að gerður yrði nýr íþrótta- völlur og voru fjögur ungmenni fengin til að taka fyrstu skóflustunguna. I samningnum er gert ráð fyrir að að- staðan muni kosta 10 1/2 milljón og leggur sveitarfélagið til 80% kostnað- arins og ungmennafélagið 20%. Þegar skóflustungan hafði verið tek- in var haldið upp í skóla þar sem fram fór skemmtidagskrá og veitingar voru fram reiddar. Við opnuðum tilboð í gerð íþrótta- vallarins nú í lok febrúar og reyndust þau vera 1 1 - og það lægsta hljóðaði upp á aðeins 31% af kostnaðaráætlun. I þessum áfanga er gert ráð fyrir jarð- vinnu og þökulagningu. Ekki er reikn- að nreð að völlurinn verði fullbúinn fyrr en vorið 1995. Það er mjög brýn þörf á nýjum velli því að við höfum nánast enga aðstöðu fyrir frjálsar í- þróttir utanhúss og fremur lélegan knattspyrnuvöll. Nýi völlurinn verður á gamla vallarsvæðinu rétt við skíða- svæðið og íþróttahúsið. Aðstaðan er því öll samtengd og felst í því mikil hagræðing. ‘ ‘ Eldri flokkarnir fámennir Það er löluvert líf í íþróttastarfinu á Grundarfirði þótt útiaðstaðan sé ekki upp á það besta. „Hér höfum við ágætt íþróttahús þar sem krakkarnir æfa að vetrinum. Ný- lega var haldið frjálsíþróttamót í Stykkistólmi þar sem 34 krakkar frá okkur tóku þátt. Á sumrin hafa öll frjálsíþróttamót á svæðinu farið fram í Stykkishólmi, en með tilkomu nýs vallar á Lýsuhóli fyrir tveimur árum er nú unnt að halda keppni þar. Til stend- ur að halda íþróttahátíð héraðssam- bandsins þar næsta surnar en það verð- ur í fyrsta sinn sem slík hátíð er haldin. I fyrra var stofnuð blakdeild hjá okkur. Sæmilegur gangur hel'ur verið í henni og meðal annars tókum við þátt í Islandsmóti með prýðilegum árangri. Vandinn hér er sá að þegar ungling- arnir eru orðnir 16 ára fara þeir í burtu í skóla yfir vetrartímann. I körfunni erum við til dæmis með prýðilegt lið úr 8. og 9. bekk grunnskólans. Á rnóti í haust burstuðu þeir til dæmis KR-inga. Það er svolítið sorglegt að ná upp góðu liði á þessum aldri sem hverfur síðan á brott í önnur félög eftir eitt eða tvö ár. I knattspyrnunni erum við ekki nema 7-8 á þeim aldri sem keppum í meist- araflokki en ágætis lið í yngri flokkun- um. Ástæðan fyrir þessu fámenni í eldri flokkunum er líka sú að hér stunda mjög margir sjóinn og eru að heiman langtímum saman. Ekki má gleyma að geta þess að við eigum ágætis sundlið hérna sem hefur verið afgerandi á Snæfellsnesi nrörg undanfarin ár þó að gengi þess hafi ekki verið sérstakt upp á síðkastið af ýmsum ástæðum.“ Kraftur í skíðadeildinni „Um 450 félagar eru í Umf. Grund- arfjarðar nú. Töluvert starf hefur verið í kringum skíðadeildina sem mikill kraftur er í. Við erum með toglyftu rétt við bæjardyrnar. Krakkarnir geta rennt sér beint úr skólanum og í lyftuna. Við höfum einnig eignast snjótroðara og byggt hefur verið hús á svæðinu. Sveit- arfélagið hefur lagt svolítinn pening í þetta fyrirtæki, en síðan hafa ung- mennafélagar aflað fjár með ýmsu nróti, til dæmis með því að bjóða ferðafólki upp á ferðir á Snæfellsjökul. - Hvað er framundan? „Hér er æft af krafti með mót sum- Skinfaxi 37

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.