Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 28
USVS og USÚ:
Skemmtileg
skólamót
sem gefa krökkum innan sambandanna kost á að kynnast betur
Skólamót USVS og USÚ eru orðin
fastur liður í starfi skólanna í Austur-
og Vestur-Skaftafellsýslum. Mótin eru
haldin í byrjun mars ár hvert, á
fimmtudegi og föstudegi, þannig að
þau fara fram á skólatíma. Keppnin
skiptist í frjálsar íþróttir, körfuknatt-
leik, innanhússknattspyrnu þar sem
húsrúm leyfir, skák og spurninga-
keppni. Þrír aldursflokkar eru í frjáls-
um, 5.-6. bekkur, 7.-8. bekkur og 9.-
10. bekkur í stelpna- og strákaflokki.
Þrír keppendur eru frá hverjum skóla í
hverri grein í frjálsum en þær eru fjórar
í hverjum flokki, þannig að þetta mót
er að jafnaði mjög fjölmennt. Má gera
ráð fyrir 150-200 keppendum í allt. I
körfuknattleik og knattspyrnu er eitt lið
frá hverjum skóla í stelpna-og
strákaflokki, en í skák og spurninga-
keppni er sameiginlegt lið stráka og
stelpna fyrir hvern skóla.
Að sögn Páls Péturssonar fram-
kvæmdastjóra USVS eru þessi skóla-
mót þannig til komin, að haustið 1979
hittust nokkrir athafnamenn úr USVS
og USÚ á þingi UMFÍ á Stóru-Tjörn-
um. Þar bar margt á góma og ræddu
þeir meðal annars um að auka sam-
skipti þessara tveggja sambanda. I
nokkur ár hafði sýslukeppnin svokall-
aða verið haldin í frjálsum íþróttum,
auk nokkurra knattspyrnuleikja, en að
öðru leyti voru samskiptin lítil. Niður-
staðan varð sú að konta á keppni í í-
þróttum milli skólanna í Austur- og
Vestur-Skaftafellssýslum og auka
þannig kynni barna og unglinga á milli
sambandanna. Þessi hugmynd varð að
veruleika vorið 1980 þegar fyrsta
skólamót USVS og USÚ var haldið á
Kirkjubæjarklaustri.
Samböndin annast undirbúning mót-
anna og framkvæmd þeirra í samráði
við íþróttakennara skólanna. Fyrst var
eingöngu keppt í frjálsum íþróttum, og
síðan bættust við aðrar greinar, svo
sem körfubolti, skák og innanhúss-
knattspyrna, og nú síðast spurninga-
keppni. Sýnir þetta að skólamótið er
orðið mikil hátíð fyrir alla krakka,
hvort sem þau stunda íþróttir hugans
eða líkamans.
Vandað
til undirbúnings
Að sögn Páls taka æfingar og undir-
búningur fyrir mótið mikinn tíma hjá
krökkunum. Leggja þau mikið á sig til
að ná sem bestum árangri fyrir sinn
skóla í keppninni. Þau sem ekki kom-
ast í liðið reyna að fá eitthvert annað
hlutverk í hópnurn, svo sem að vera
ljósmyndarar. Sumir skólar mæta með
klapplið, sem er vopnað fánum og
veifum og syngur baráttusöngva. Það
skipa oft yngri nemendur sem ekki fá
að keppa vegna aldurs. Þeir eru þá
búnir að mála á fána og borða nafn
skólans síns.
En skólamótin eru ekki bara vett-
vangur fyrir íþróttakeppni milli skóla,
því kvöldvökur eru fastur liður í dag-
skránni. Þar verður oft glatt á hjalla og
krakkarnir fá tækifæri til að skemmta
sér saman og kynnast betur. Þetta verð-
ur einnig til þess að nemendur og
kennarar eiga auðveldara með að hafa
samskipti sín á milli á öðrum vettvangi
skólastarfsins.
Þess má að lokum geta að skólarnir
sem hafa tekið þátt í þessu móti eru
Ketilsstaðaskóli, Víkurskóli og Kirkju-
bæjarskóli í Vestur-Skaftafellssýslu og
Nesjaskóli, Hafnarskóli og Heppuskóli
í Austur-Skaftafellssýslu. Heppuskóli
keppir undir nafni Hafnarskóla. I ár var
mótið haldið í Vík, dagana 3.-4. mars.
Þátltakendur á skólamóti sem haldið var á Kirkjubœjarklaustri 1992.
28
Skinfaxi