Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 20
Æft í Baldurshaga
Um árabil hafa verið haldnar æfing-
ar á föstudagskvöldum í Baldurshaga,
íþróttaaðstöðunni undir stúku Laugar-
dalshallarinnar í Reykjavík. Æfingarn-
ar eru á vegum UMFI og hefur Ólafur
Unnsteinsson stjórnað þeim síðustu 7
árin með góðum árangri. Þarna mæta
að meðaltali 25 manns úr ýmsum átt-
Ýmsar mælingar
Að sögn Ólafs fara alls konar mæl-
ingar fram á æfingunum í því skyni að
fólk geti fylgst með framförum sínurn
og annarra milli æfinga og stöðunni
milli ára.
„Ég skrifa stöðuna niður þrisvar á
vetri í hlaupum og stökkum. Fólk
keppist við að bæta sig svo ég tali nú
ekki um að vera ekki lakari í ár en í
fyrra. ‘ ‘
Að sögn Ólafs eru föstudagsæfing-
arnar mikilvægar mörgum frjálsíþrótta-
mönnum og nauðsynlegur þáttur í und-
irbúningi fyrir mót sumarsins bæði
innanlands og utan.
„Ungmennafélögin eru í þeim stöðu
að vera með sterkustu frjálsíþrótta-
menn landsins innan sinna vébanda.
Þessar æfingar hafa sitt að segja í þeim
efnum.“
Ólafur fullyrðir að greinilega sé sé
mikill hugur í fólki vegna landsmóts-
ins. „Á síðustu æfingunni í febrúar af-
henti ég afrekaskrá síðustu ára til unga
fólksins og 35 manns tóku við þeim til
þess að geta fylgst með úrslitum síð-
ustu landsmóta. Fólk er að skoða þetta
og æfir sig markvisst hérna í vetur með
landsmótið í huga.”
Öflugt öldungastarf
Ólafur Unnsteinsson er potturinn og
pannan í öldungastarfi FRI og hefur
verið formaður Öldungaráðsins í 7 ár
Þœr voru mœttar til œfinga á föstudeginum Breiðabliksstúlkurnar: Jóhanna Ósk Jensdótt-
ir,fv. Halla Björg Karlsdóttir og Guðlaug Halldórsdóttir.
um en stundum eru þeir allt upp í 60 að
sögn Ólafs. Fólk kemur víðs vegar að,
þar á meðal úr UMSB, HSK, úr Skaga-
firði og af Ströndum. Fólk lætur sig
ekki munu um að aka frá Hvolsvelli að
austan og frá Hólmavík að norðan til
dæmis.
„Fólk kemur akandi í öllum veðrum
á hverju föstudagskvöldi til að geta
verið með á æfingunum, alll að 300
kílómetra leið, til dæmis Skagfirðing-
ar, Snæfellingar og Borgfirðingar, sem
hafa verið duglegir við að mæta. Fólki
finnst það hafa gott af því að æfa með
öðrum, það eykur keppni og saman-
burð auk þess sem það skapar mikla
samkennd og góðan félagsanda. Marg-
ir sem hingað koma eru í fámennum
félögum og þykir veigur í félagsskapn-
um hér og etur kappi við aðra í hlaup-
um, stökkum, köstum, svo eitthvað sé
nefnt.“
Fv. Jón Oddsson langstökkvari og þrístökkvari úr FH í flokki 35 ára, Karl Þorláksson
UMSB, methafi í langstökki og þrístökki í flokki 60 ára, Jóhann Jónsson Evrópu- og
heimsmeistari úr Víði í Garði í 75 áraflokki og Aðalsteinn Bernharðsson UMSE íslands-
methafi í langstökki innanhúss, 40 ára. Hann er líklegur til að láta að sér kveða á lands-
mótinu á Laugarvatni í langstökki og spretthlaupum. Það er jafnvel hugsanlegt að hann
komist í landsliðið í 4x400 metra boðhlaupi.
20
Skinfaxi