Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.02.1994, Blaðsíða 33
bands Hollands eru 49 sérsambönd. Nærri öll íþróttahreyfingin er ríkisrek- in, nema þegar kemur niður í einstök í- þróttafélög, þar er sjálfboðavinnan við lýði. Til að hvetja menn til að starfa fyrir íþróttafélögin sem leiðbeinendur eða þjálfarar, eru veitt skattafríðindi, fyrstu 2.500 gyllinin (um 100 þúsund ísl. krónur) eru skattfrjáls. Hvert í- þróttafélag er skipað 70 - 100.000 fé- lögum. f flestum tilvikum hafa einstök félög bara eina íþróttagrein á sínum snærum, þó eru til félög í einstaka til- vikum sem hafa margar íþróttagreinar innan sinna vébanda. I Hollandi eru ca. 36.000 íþróttafélög. Mjög athyglisvert er að innan heil- brigðisþjónustunnar í Hollandi er rekin sérstök þjónustudeild fyrir íþróttamenn og fær hún álitlegar upphæðir til rekst- ar þeirra mála. Eftir fyrirlesturinn skoðuðu þeir sem áhuga höfðu íþróttamiðstöðina sem við dvöldum í nánar, en síðan var haldið til Maastricht og sá merki staður skoðað- ur. Sökurn slæms veðurs varð minna úr en til stóð, þó lauk ferðinni á kvöld- verði á krá sem bauð upp á ágætis mat, en rými til að borða hefði mátt vera meira. Á Philips-leikvanginum Næst var haldið til Eindhoven og hinn glæsilegi Philips-leikvangur skoð- aður. Þessi leikvangur er heimavöllur PSV. PSV og Philips-leikvangurinn voru í eigu Philips-fyrirtækisins, en sérstakt félag hefur verið stofnað og er rekið utan um það í dag, þó í meiri- hlutaeigu Philips. Þessi leikvangur er stórglæsilegur og tæknilega fullkominn. Á eina hlið- ina er félagsmiðstöð, ný og glæsileg. Þar er aðstaða fyrir PCV, áhangendur og styrktaraðila. Philips er aðal styrktaraðili, en ýmis stórfyrirtæki styrkja PSV með yfir 10 milljónum króna á ári. Þeir sem styrkja með svo háum upphæðum hafa sér- stakar stúkur með ca. 25 sætum. Stúk- urnar eru innan félagsmiðstöðvarinnar, búnar sjónvörpum og steríótækjum, þar sem menngeta endursýnt hin ýmsu atriði sjálfir og stillt hljóð frá vellinum inn lil sín eins og hverjum hentar. í þessari stúkuröð eru sérstúkur Philips þar sem tekið er á móti þjóðarleiðtog- um og öðrunt stórmennum. Þær eru með aðstöðu til veitinga. Á bak við þær eru kaffiteríur og barir fyrir helstu stuðningsaðilana. Ofan þessarar stúku er 900 manna stúka með sjónvörpum og öðrum tæknibúnaði. Þarna eru leigð sæti til eins árs í senn og fást þau fyrir 250 þúsund króna hvert. Biðlistar er eftir að fá þessi sæti. Stór hluti félagsmiðstöðvarinnar er aðstaða fyrir hinn almenna stuðnings- mann PSV, salir kaffitería og barir. Þarna mæta stuðningsmenn fyrir og eftir leiki og ræða málin. Þarna eru stórir sjónvarpsskjáir sem hægt er að endursýna ýmis atriði úr leikjunum að þeim loknum. Einnig eru þessir skjáir í gangi meðan á leikjunt stendur þannig að enginn þarfa að missa af neinu þótt hann þurfi að skreppa á salerni. Aðstaða leikmanna er ntjög góð, nuddpottar, sánaböð, líkamsnudd, læknisaðstaða o.fl. Ekki er þetta svona gott fyrir aðkomuliðin, þau fá einfalda búningsklefa eins og við þekkjum hér heima. Eitt horn stúku leikvangsins er girt af og kallað búrið. Það er fyrir fyrir á- hangendur aðkomufélaga (fótboltabull- ur). Búrið er girl af með neti svo ekki sé hægt að kasta hlutum milli stúka. Að leik loknum er hópnum fylgt af ríðandi lögreglumönnum á brautarstöð- ina. Okkur var tjáð að sumir þessara á- hangenda dópuðu sig upp með lyfjum sem gerðu það að verkum að þeir gengju berserksgang, því væru þeir mjög erfiðir viðureignar. Þessi leikvangur er ólýsanlegur, og enginn getur upplifað það sem þarna er nema koma á staðinn. En þrátt fyrir þetta allt situr gamli Philips úti milli almennra áhorfenda, hann vil komast í sem nánust tengsl við leikinn, telur sig ekki komast það í lokuðum stúkuni með tæknibúnaði. Hann er 88 ára gam- all og mikill áhugamaður um fótbolta. Þegar skoðun leikvangsins var lokið fóru þeir sem áhuga höfðu í miðbæinn að versla, en við nokkrir félagar að norðan og austan brugðum okkur í kirkju staðarins og áttum rólega stund. Að þessari fróðlegu skoðunarferð aflokinni var haldið aftur til Lúx- emborgar, þar sem síðustu mínútunum á meginlandi Evrópu var eytt, drukkið kaffi á „Cafe de Paris“ og flogið aftur heim til Islands. Öllu því sem ég upp- lifði verður tæplega með orðum lýst, en væntanlega hefur eitthvað komist til skila í þessum rituðum orðum, en tím- inn þar ytra var allt of stuttur og margt óskoðað. Reynt hefur verið að segja frá því sem fyrir augu og eyru bar og sé ekki rétt með farið ber að hafa það er sannara reynist. / Félagar að norðan og austan nýkomnir úr kirkju í Eindhoven. 33 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.