Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1994, Síða 26

Skinfaxi - 01.02.1994, Síða 26
ákvarðanir. Skyldu hagsmunatengsl ráða ferðinni? I þessari starfsgrein er til mikil menntun og reynsla sem er í útrýmingarhættu. Svo er einnig í skipa- smíðaiðnaði en þar er talið að um 500 störf séu í alvarlegri hættu á þessu og næsta misseri. Menn spyrja sig hvort ekki hafi komið of seint til þær aðgerð- ir sem boðaðar eru hjá iðnaðarráðu- neyti um jöfnunargjöld vegna nýsmíði. Þá er rétt að nefna ferðaþjónustu og er þar um mikla hagsmuni að ræða. Nú á undanförnum vikum hefur átaks- nefndin átt nokkra fundi með fólki úr ferðaþjónustu og farið yfir hvernig hægt sé að efla ferðalög Islendinga innanlands. Hafið er nú átakið „Sækj- um landið heim“ á vegum samgöngu- ráðuneytis, ferðamálaráðs og fleiri að- ila. I kynningarbæklingi frá undirbún- ingshópnum kemur meðal annars fram: „Við þær aðstæður sem nú ríkja í ís- lensku samfélagi hljótum við að leita allra leiða til að skapa ný atvinnutæki- færi. Með því að hvetja til aukinna ferðalaga um eigið land er verið að opna möguleika til aukinnar atvinnu um land allt, því áætlað er að 45 ferða- menn skapi eitt ársverk. Gert er ráð fyrir að Islendingar í fríi á Islandi noti allt að 8 milljarða króna árlega á þeim ferðalögum. Þessar tekjur skipta miklu máli fyrir atvinnulífið í landinu, en þær er hægt að stórauka. ‘ ‘ Þess má geta að hafinn er undirbún- Ef 10 prósent aukning yrði á sölu innlends sœlgœtis þá myndu skapast 130 ný störf. ingur að átaki innan stéttarfélaganna þar sem meiningin er að kynna og dreifa efni með hvatningu til að ferðast innan lands. Undanfarin ár hefur verið unnið að markaðssetningu Islands er- lendis, en málinu ekki nægilega mark- visst sinnt fyrir innanlandsmarkað. Finnst mörgum að upplýsingar séu ekki nægilega handhægar fyrir okkur sjálf. Við höfum bent á ýmsa mögu- leika til að nýta betur hótelrými að vetri til dæmis með árshátíðatilboðum á landsbyggðinni. Mætti þá búa til dag- skrá að hálfu heimamanna, til dæmis úr þjóðsögum, íslendingasögum, hafa kvæðakvöld og stuttar gönguferðir um næsta nágrenni eða nýta annað það sem viðkomandi svæði hefur upp á að bjóða, svo sem bátsferðir eða skíða- ferðir. Það er ansi öfugsnúið fyrir fyrir- tæki að auglýsa undir merkjum „Is- lenskt, já takk“ og bjóða síðan starfs- mönnum sínum til Dublinar á árshátíð, þar sem borgarstjórinn er tilbúinn með móttöku fyrir Islendinga sem halda orðið uppi heilu þorpunum á Irlandi. Hvað með okkar eigin þorp og kaup- staði? Þeir standa okkur nær. sjóður r rai er þinn sparisjóður Þrir góöir ávöxtunarkostir IflílMPRÍÍK * Fyr'r Pásem v^/° góðo ávöxtun en vilja jafnframt lilUltlruUn gefo gengið að sparifé sínu hvenær sem er. nnt/PPICnÁl/ ^r,r 5em v^/° binda sparifé sitt til ávöxtunar. UKiUuIodUK Ávöxtun sparifiár á Öryggisbók veitir alltaf sama öryggi og verötrygging. |g.|| r j j i 24 mánaða reikningur fyrír þá sem vilja njóta * hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. Innstæða er undanþegin eignaskatti. (iajjnkvtcmt traust Þeir njóta trausts hjá sparisjóðnum sem ávaxla fé sitt á Trompbók, Öryggisbók eða Bakhjarli. Þeim opnast ýmsar leiðir hjá sparí- sjóðnum til hagsbóta fyrir sig og sína. Komrlu i sparisjóðinn Sparisjóður Mýrasýslu býður ekki einungis sömu þjónustu og sömu kjör oa aðrar peningastofnanir í landinu, heldur nýtur þú þess að við þekkjum okkar heimafólk, þarfir þess og aðstæður. Þess vegna er Sparisjóður Mýrasýslu þinn sparisjóður. o SPARÍSJÓÐUR MÝRASÝSLU ■er þinn sparisjóður 26 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.