Skinfaxi - 01.02.1994, Síða 34
Héraðssamband Suður-Þingeyinga:
Mikill hugur fyrir landsmótió
„Þetta eru allt gamlir refir sent hafa
starfað í fyrri landsmótsnefndum,
þannig að starfið verður nefndinni nú
ntun léttara en ella. Auk þess búum við
að mjög ítarlegri skýrslu sem haldin
var um undirbúning fyrir síðasta mót,”
sagði Hlöðver P. Hiöðversson formað-
ur landsmótsnefndar HSÞ.
Hlöðver sagði að byrjað hefði verið
á því að hvetja hin einstöku ráð innan
sambandsins til starfa og gera hvert
þeirra ábyrgt fyrir sinni íþróttagrein.
Umrædd ráð væru ekkert mjög virk
nema á landsmótsári.
Þá væru menn að reyna að gera sér
grein fyrir untfangi mótsins og kostn-
aði við undirbúning og þátttöku. Aætl-
að væri að keppendur yrðu á bilinu
150-170. Væri starfsfólk og fararstjór-
ar talið með yrði það um 200 manns,
sem færu á landsmótið. „Það er verið
að athuga ýmsar fjáröflunarleiðir,“
sagði Hlöðver. „Ymis fyrirtæki hafa
tekið okkur vel og ntargir lagt okkur
gott til í sambandi við mötuneyti. Við
höfum rekið mötuneyti í okkar stóra
tjaldi og þar hefur skapast góð stemn-
ing.“
Indriði Ketilsson, HSÞ, tekur />átt í sauð-
jjárdómum á landsmóti UMFÍ að Laugar-
vatni 1965.
Ætlum okkur góðan hlut
„Það er mikill hugur í okkur Þing-
eyingum varðandi íþróttirnar, ekki síst
starfsíþróttirnar. Við höfurn nú talið
okkur eiga þá grein. Við töpuðum að
vísu á síðasta landsmóti og gerðunt
okkur grein fyrir að það var ekki bara
dómurunum að kenna. Nú er mikill
hugur í okkur að gera betur.
I glímunni ætlum við okkur stóra
hluti að vanda. Það er aðeins spurning
um hvernig okkur gengur að ná inn í
kvennalið, en þar eru nú tveir flokkar.
Nóg framboð er af vöskum mönnum í
karlaliðið. Við ætlum okkur góðan hlut
í borðtennis. Grenvíkingar eru mjög
framarlega í þeirri íþrótt. Hitt er alltaf
spurning, með frjálsar íþróttir og sund,
hvernig menn koma undan vetri.
Krakkarnir eru dreifðir um landið, þar
sem þau stunda nám. En við vonum að
árangurinn verði betri en síðast.
Það er kominn mikill hugur í fólk,
sérstaklega þá sem upplifðu landsmót-
ið að Laugarvatni 1965. Það er rnikill
ljómi í augum þeirra sem sóttu það mót
og þeir segjast aldrei hafa Iifað aðra
eins tíma. Þetta fólk eru orðið mjög
spennt að komast aftur á landsmót á
Laugarvatni.“
Lífsstíll ‘94:
Allt um heilbrigða sál í hraustum líkama
Vert er að vekja athygli á ráðstefnu
sem haldin verður undir heitinu Lífs-
stíll ‘94 dagana 21.-24. apríl næstkom-
andi. Þar verður tekið fyrir ýmislegt
sem lýtur að hollustu, heilbrigði, íþrólt-
um, heilsurækt og tómstundum. Sam-
hliða ráðstefnunni verður haldin sýn-
ing, þar sem sýnt verður ýmislegt sem
snýr að heilbrigðri sál í hraustum og
vel útlítandi líkama. Henni er ætlað að
hafa að leiðarljósi það sem lýtur að
heilbrigðum lífsstíl íjölskyldunnar og
virðingu mannsins fyrir náttúrunni.
Þess má geta að Lífsstfll ‘94 verður
reyklaus.
Stuðningsaðilar Lífsstíls ‘94 eru
Lífsstíll ‘94 verður í íþróttahúsinu Digra-
nesi í Kópavogi.
meðal annarra Ungmennafélag íslands,
Iþróttasamband íslands, Ólympíunefnd
íslands, Tóbaksvernarnefnd og Iþróttir
fyrir alla. A ráðstefnunni verða flutl all-
mörg erindi. Þar má nefna, að fjallað
verður um efnið: Hvað er UMFÍ? Hvert
er ntarkmið hreyfingarinnar? Er starf
hennar í takt við tímann? Er breytinga
þörf? Ólafur Ólafsson landlæknir ntun
ræða um íþróttir og lyfjanotkun. Þá
mæta tveir þýskir sérfræðingar, sem
munu fjalla annars vegar um íþrótta-
meiðsl og hins vegar um þjálfun þjáll'-
ara. Verndari Lífsstíls ‘94 er frú Vigdís
Finnbogadóttir lörseti Islands.
34
Skinfaxi