Skinfaxi - 01.05.1994, Síða 9
Sigra Jón Arnar og
Sunna fjórfalt?
- Sigurður P. Sigmundsson skrifar um frjálsíþróttir á landsmóti
Landsmotsspa:
Fríða Rún Þórðardóttir, í miðið, sést hér í forystu í 1500 m á síðasta landsmóti. Hún er
líkleg til að vinna þrefalt á Laugan’atni.
Spretthlaup karla
Jón Arnar Magnússon er sigur-
stranglegastur í 100 m og 110 grinda-
hlaupi. Hann hefur aldrei verið sterkari
samanber frábært íslandsmet hans í
tugþraut í lok maí.
Mikil keppni mun verða um næstu
sætin á eftir Jóni Arnari. f 400 m verð-
ur erfitt að sigra Egil Eiðsson, hinn 32
ára „ungling“ (fékk það viðurnefni
eftir sigurinn í 400 m á landsmótinu á
Akureyri 1981) sem hefur sýnt góða
takta undanfarið. Setti m.a. persónulegt
met í 300 m hlaupi í maímánuði.
Millivegalengda-
og langhlaup karla
Fremur dauft er yfir millivegalengd-
um karla í ár. Sigurbjörn Arngrímsson,
HSÞ, sem dvaldi í Bandaríkjunum s.l.
vetur og hefur átt við þrálát meiðsli að
stríða, verður að teljast líklegur sigur-
vegari í 800 m. Hinn bráðefnilegi 16
ára Skagfirðingur, Sveinn Margeirs-
son, mun berjast um annað sætið. Sig-
mar Gunnarsson hefur reynsluna til að
sigra í 1.500 m, en Rögnvaldur Ing-
þórsson gæti veitt honum harða
keppni.
Keppnin í 5.000 m verður spenn-
andi, en þar eru þrír keppendur rnjög
jafnir. Gunnlaugur hefur ekki verið
jafn sterkur síðan hann vann 5.000 m á
landsmótinu 1990, en ég hallast þó að
því að endasprettur Sigmars muni ráða
úrslitum. Rögnvaldur er meira spurn-
ingarmerki, ef honum tekst vel upp þá
verður erfitt að sigra hann.
Boðhlaup karla
Boðhlaupin verða mjög jöfn. Skag-
firðingar með Jón Arnar og Helga Sig-
urðsson verða ekki auðunnir og sama
má segja um UMSK með Egil Eiðsson,
Kristján Friðjónsson og Inga Þór
Hauksson sem bestu menn.
Lið HSK gæti einnig blandað sér í
baráttuna.
Stökk karla
Jón Arnar Magnússon er yfirburðar-
maður í langstökki og gæti sett ís-
landsmet. Hann er einnig líklegur til að
sigra í stangarstökkinu, ef hann tekur
þátt í þeirri grein. Kristján Gissurarson
mun þó ekki gefa það sæti auðveldlega
frá sér.
Enginn íslendingur leggur þrístökk
sérstaklega fyrir sig. Menn bregða sér í
greinina þegar nauðsyn krefur og hefur
Olafur Guðmundsson komist einna
best frá því undanfarið.
í hástökkinu er Selfyssingurinn efni-
legi, Magnús Aron Hallgrímsson, lík-
legur sigurvegari. Hann er í mikilli
framför og er að verða nokkuð öruggur
með tvo metrana.
Köst karla
Allt bendir til þess að sigurinn í öll-
um kastgreinunum verði óvenju örugg-
ur að þessu sinni. Andrés Guðmunds-
son, sem hefur einbeitt sér að krafta-
keppnum undanfarin ár, er nú aftur
kominn á fullt í kúluvarpinu og bætti
fyrri árangur sinn strax á sínu öðru
móti um miðjan maí er hann kastaði
18,60 m. Vésteinn Hafsteinsson er ör-
uggur sigurvegari í kringlukasti, en í
þeirri grein hefur hann borið ægishjálm
hér á landi á annan áratug. Unnar
Garðarsson er sömuleiðis líklegur sig-
urvegari í spjótkastinu en hann bætti
sinn fyrri árangur í vor.
Spretthlaup kvenna
Húnvetningurinn Sunna Gestsdóttir
hefur komið sterk til leiks á brautinni í
Skinfaxi
9