Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.1994, Side 32

Skinfaxi - 01.05.1994, Side 32
bera til að hefja starfsemi, svo gleymist það, lognast útaf og kemur aldrei neinu í verk. Öflugasta fjöldahreyfingin í landinu er íþróttahreyfingin og það er sorglegt að hún skuli ekki vera notuð meira en raun ber vitni,“ sagði Kolvið- ur. Sterk staða Þeir aðilar sem studdu Lífsstíl ‘94 voru m.a. Ungmennafélag íslands, íþróttasamband Islands, Ólympíunefnd Islands, Tóbaksvarnarnefnd og íþróttir fyrir alla. Ólína Sveinsdóttir stjórnarmaður í UMFÍ flutti erindi og fjallaði um markmið starfs UMFI, eðli hreyfingar- innar og markmið hennar. Hún minni á fjölbreytt starf innan hreyfingarinnar, til að mynda íþróttastarf, menningar- starfsemi, umhverfisvernd og skóg- rækt. Stundum heyrðist að ungmenna- félögin væru gamaldags og hallærisleg, sem oftast kæmi frá aðilum, sem ekki þekktu til. „Við erum sannfærð um að við erum í takt við tímann,“ sagði Ólína, „ og ekkert er fjær okkur en að kasta fyr- ir róða „gömlu gildunum“ sem enn virðast í fullu gildi. Það er líka lýsandi fyrir tíðarandann að þar sem ný í- þróttafélög eru stofnuð virðist ung- mennafélagsformið verða frekar fyrir valinu eins og t.d. Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi.“ Ólína ræddi um sterka stöðu ung- mennafélagshreyfingarinnar og mann- ræktarstefnu hennar. Hún sagði að lok- um: „Ungmennafélag íslands er ekki stofnun í fílabeinsturni, heldur lifandi samtök með mikil og bein tengsl í grasrótina, þar sem boðleiðirnar eru stuttar og skilvirkar. Það að vera „Ungmennafélagi“ er ekki bara að vera í einhverju félagi innan UMFI heldur er það „Lífs- stfll.“ Ráðstefnugestwn var meðal annars boðið í gönguferð, undir leiðsögn Elísabetar Hannes- dóttur, að útsýnisskífu Kópavgsbœjar. Ritgerðasam- keppni Skinfaxa Eins og greint var frá í síðasta tölublaði efnir Skinfaxi til ritgerða- samkeppni meðal grunnskólanema um efnið „Eflum íslenskt.“ Markmiðið með keppninni er að fá íslensk ungmenni til að velta fyrir sér hvernig við getum sem best eflt íslenska framleiðslu á sem flestum sviðum. Hvers vegna þurfum við að leiða hugann að þessu atriði, og hvaða afleiðingar það hafi höldum við ekki vöku okkar gagnvart er- Iendri sambærilegri framleiðslu. Rit- gerðin þarf að vera að minnsta kosti tvær vélritaðar blaðsíður. Skilafrestur er til 15. október. Keppnin fer fram í tveim aldurs- flokkum: 12 ára og yngri (f. 1983 og síðar) og 13-16 ára (f. 1978-1981). Þriggja manna dómnefnd mun fara yfir allar ritgerðirnar og velja þrjár bestu úr hvorum flokki. Veitt verða vegleg verðlaun og munu ritgerðirnar birtast í Skinfaxa. Ritgerðirnar skulu berast til skrif- stofu UMFÍ merktar: Ritgerðasam- keppni Skinfaxa. HEFUR ÞU TEKIÐ ÞÁTT? 32 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.