Skinfaxi - 01.12.2003, Qupperneq 3
ritstjórinn
■ Er gamla góða
jólastemmningin orðin
hluti að hinu hvers-
daglega lífi?
Loksins eru jólin að verða komin. Ég hef reyndar undanfarin ár þurft að
bíða lengur eftir þeim en þegar ég var ungur. Ástæðan er kannski fyrst og
fremst sú að verslunareigendur eru farnir að skreyta verslanir sínar miklu fyrr
en tíðkaðist þegar óg var ungur og ekki tel ég mig nú vera gamlan f hempunni.
Þegar ég ólst upp var jólaskrautið í verslunum ekki sett upp fyrr en 1. desember
og virtist það vera óskráð regla á milli verslunareigenda. Frá þeim degi fór
jólastemmningin síðan stigmagnandi og náði hámarki á aðfangadag. í dag
virðast ekki vera til neinar óskráðar reglur. Verslunareigendur kasta upp
jólaskrautinu þegar þeim hentar og algengt er að jólaljósin séu farinn að lýsa
upp glugga verslana í lok október og í síðasta lagi í byrjun nóvember.
Persónulega finnst mér þetta alltof snemmt þó gaman sé að sjá falleg og björt
jólaljós sem lýsa upp skammdegið. Það rennur þá óneitanlega í gegnum mann
notaleg jólatilfinning þegar maður hugsar um þær gleðistundir sem framundan
eru og því sem þeim fylgir. Mér finnst samt jólastemmningin hafa dottið dálítið
niður með tilkomu hinna nýju hefða ef svo má að orði komast og erfiðast þykir
mér að standa á tánum fullur eftirvæntingar í tvo mánuði í stað þriggja vikna
áður fyrr. Á þessum langa tíma fjarar jólastemmningin út að miklu leyti og
verður bara hluti að hinu hversdaglegu lífi og svo er aðfangadagur bara allt í
einu kominn og maður varla áttaði sig á því. Auðvitað eru ekki allir sammála
mér sem er bara allt í hinu góða og sérstaklega held ég að unga fólkið gefi lítið
fyrir þetta viðhorf mitt gagnvart jólunum og stemmningunni í kringum þau. Þau
þekkja heldur ekkert annað en jól í október eins og sagði í laginu góða og finnst
þetta bara eðlilegur hlutur. Þegar þau verða eldri eiga þau kannski eftir að
humma við því þegar verslunareigendur byrja að setja upp jólaljósin og skreyta
í lok sumars?
í jólaskapi meö Skinfaxa
í þessu síðasta blaði Skinaxa fyrir jól erum við í ágætis jólaskapi eins og
viðmælendur okkar. Við ræddum m.a. við fjóra ungmennafélaga á ólíkum aldri
og spurðum þau um hvernig þau upplifa jólin. Þá var fyrsta skóflustunga að
nýjum veitingaskála tekin í lok nóvember og Skinfaxi heyrði hljóðið í þeim
Sigurbirni Gunnarssyni sem situr í byggingarnefnd Þrastalundar og Einari K.
Jónssyni formanni Vesturhlíðar sem hefur séð um rekstur Þrastaskógar um
möguleika nýja skálans og framtíð Þrastaskógar. Þá hefur ungur knatt-
spyrnumaður í Kópavogi, Rúrik Gíslason, vakið mikla athygli erlendra liða þótt
hann sé aðeins 16 ára. Rætt er við foreldra hans og hver þeirra sjónarmið séu
að senda drenginn svona unga út í atvinnumennsku. Hvert er hlutverk foreldra?
Rúm tvö ár eru liðin síðan Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ lét af
formennsku og löngu kominn tími á að heyra aðeins í X-formanni. Margt annað
ber á góma í þessu jólablaði Skinfaxa sem lesendur ættu að glugga í.
Að lokum vil ég nota tækifærið og óska öllum ungmennafélögum og öðrum
landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með von um að allir upplifi
hina einu og sönnu jólastemmningu.
Með hátíðarkveðju
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er jólastúlkan í ár Karen Ýr Sigurjónsdóttir sem
prýðir forsíðu Skinfaxa að þessu sinni. Það var Sigur-
jón Ragnar, ljósmyndari Skinfaxn, sem tók myndina af
Karenu Ýr og öðrum viðmælendum blaðsins
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar og Páll Guðmundsson
BLAÐAMAÐUR
Skapti Örn Ólafsson
UMBROTOG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Sæmundur Runólfsson
ÁByRGÐARMAÐU R
Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Öflun
PRENTUN Svansprent
PRÓFARKALESTUR Aðalbjörg Karlsdóttir
PÖKKUN Ás Vinnustofa
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Anna R. Möller
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Birgir Gunnlaugsson
Björn Ármann Ólafsson
Hringur Hreinsson
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Ingi Þór Ágústsson
Jóhann Tryggvason UÍA
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.