Skinfaxi - 01.12.2003, Qupperneq 4
Fréttamolar
Ungmennafélag Öræfa gefur út
valið efni úr Félagsvininum
Félagsvinurinn er blað sem Ungmennafélag Öræfa gaf út handskrifað í 25
ár um miðbik síðustu aldar. Blaðið var ekki afhent til aflestrar heldur var
einungis lesið upphátt á skemmtunum félagsins. Höfundar efnis voru
ungmennafélagarnir sjálfir, margir skrifuðu í blaðið þó sumir væru ötulli við
ritstörfin en aðrir. Óhætt er að segja að góð framsetning og fallegt málfar
einkenni Félagsvininn. Efnið er af ýmsum toga: ferðasögur, Ijóð, almennur
fróðleikur og frásagnir úr daglega lífinu, að ógleymdum gamansögum
verðlaunaþrautum. Uppistaðan er frumsamið efni en einnig er þýðingar að
finna.
Nú kemur valið efni úr Félagsvininum út í tveimur samstæðum bókum.
Þær eru prýddar myndum sem tengjast atvinnu- og menningarlífi
Öræfinga. Hægt er að nálgast upplýsingar um Félagsvininn hjá UMF
Öræfa.
Fjörug spurningakeppni UMSB
Ungmennasamband Borgarfjarðar hefur í gegnum tíðina efnt til
spurningakeppni af og til, ýmist á milli ungmennafélaga eða sveitarfélaga
og hefur þetta þótt skemmtileg afþreying. Síðastliðin vetur var farið af stað
með spurningakeppni, á vegum UMSB f samstarfi við Héraðsfréttablaðið
Skessuhorn, milli fyrirtækja og
stofnanna í héraðinu. Alls tóku
átta lið þátt í keppninni. Keppnin
var útsláttarkeppni og fór fram á
tveimur kvöldum fyrst í félags-
heimilinu Brún í Bæjarsveit og
síðar í félagsheimilinu í Lyng-
brekku í Álftaneshreppi. Ásamt
spurningakeppninni voru
skemmtiatriði bæði kvöldin, í
Brún mættu hagyrðingar úr
héraðinu og fóru með kveðskap
og í Lyngbrekku fóru ungmennafélagið og kvenfélagið þar í sveit með
heimafengið skemmtiefni.
Lið verktakafyrirtækisins Jörvi ehf á Hvanneyri, vann alla sína keppendur
og stóð uppi sem sigurvegari eftir harða keppni við lið Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri. Lið Jörva skipuðu: Haukur Júlíusson, Hvanneyri,
Jóhannes Gestsson, Giljum,
Ólafur Jóhannesson, Hóli og
Þorsteinn Magnússon, Gils-
bakka.
Á nýju ári er ætlunin að fara
aftur á stað að nýju með spurn-
ingakeppni með líku sniði en
opna hana enn meir þannig að
sem flestir hópar geti tekið þátt í
keppninni, en gert er skilyrði að
keppendur dvelji eða vinni á
svæði UMSB. Nú hafa mörg héraðssambönd verið með spurningakeppni
á sínum vegum og væri gaman að fá lið frá öðrum héraðssambandi í
heimsókn og keppa við sigurliðið UMSB 2003 eða 2004.
Á efri myndinni eru þeir sem sömdu spurningarnar og stjórnuðu keppninni.
f.v. Haukur Gunnarsson, Jón Gíslason og Þóra Magnúsdóttir.
Á neðri myndinni er Sigurlið Jörva ehf. Þorsteinn Magnússon, Haukur
Júlíusson og Ólafur Jóhannesson
Með kveðju frá UMSB Guðmundur Sigurðsson
Jólamerki UMSB
Frá Ungmennasambandi
Borgarfjarðar hefur allt frá
árinu 1987 gefið út jóla-
merki með mynd af kirkjum
í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu, sem er starfssvæði
UMSB. Ein kirkja hefur
prýtt merkið hverju sinni
og var Borgarneskirkja á
fyrsta jólamerkinu.
í ár er mynd af Hjarðar-
holtskirkju í Stafholts-
tungum. Á jólum 2004 verður það Gilsbakkakirkja sem
prýðir jólamerkið.
Guðmundur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri í
Borgarnesi hefur teiknað allar kirkjurnar, sem eru 23.
Prentverk Akraness hefur séð um prentun öll árin. Til
er nokkuð upplag af eldri merkjum sem safnarar hefðu
gaman að komast í. Merkin eru bæði prentuð tökkuð
og ótökkuð.
5000 göngumenn á fjall
Asdis Helga
Bjarnadóttir
stjórnarmaður
í stjórn UMFÍ
afhendir Finni
Torfa Hörleifs-
syni verðlaun,
úttekt frá versl
uninni Everest
að verðmæti
10.000 kr.
Á fimmta þúsund göngugarpar tóku þátt í göngu-
verkefni UMFÍ Fjölskyldan á fjallið. Nú hefur verið lokið
við að skrá niður þátttöku allra þeirra sem rituðu nöfn
sín í gestabækurnar sem settar voru á topp 18 fjalla í
sumar. Dregið hefur verið úr hópi þátttakenda og
hlutu 10 heppnir göngugarpar verðlaun frá UMFÍ.,
10.000 kr. vöruúttekt í versluninni Everest.
Nöfn vinningshafa eru: Björg Sigurðardóttir, Keflavík,
Mælifellshnjúkur; Bjarni Benediktsson, Reykjavík,
Hestfjall; Örnólfur Guðmundsson, Bolungarvík, Ekkju-
skarð; Björk Norðdal, Reykjavík, Reykjaborg; Jóhann
Björgvinsson, Hjörleifshöfða, Vatnsenda; Matthea
Sigurðardóttir, Akureyri, Eldborg; María Kristjáns-
dóttir, Húsavík, Nikurtjörn, Sverrir Ingibjartsson, Sel-
fossi, Ingólfsfjall, Árný Oddsdóttir, Helluvaði, Þríhyrn-
ingur, Finnur Hjörleifsson Borgarnesi, Hestfjall. Sér-
stök aukaverðlaun hlaut Elínborg Kristinsdóttir úr
Reykjavík en hún gekk á flest fjöll allra göngugarpa í
sumar eða á fjórtán talsins. Haft verður samband við
alla vinningshafa og geta þeir vitjað gjafabréfs í
Þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík.
4