Skinfaxi - 01.12.2003, Blaðsíða 5
Fréttamolar
Sex umsóknir um
Landsmót UMFÍ
Umsóknir um Landsmót UMFÍ
Frestur til að sækja um Landsmót UMFÍ 2007 og 2009, og Ung-
lingalandsmót UMFÍ 2004 rann út 1. desember. Sex héraðssam-
bönd sóttu um að halda mótin.
7. Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki 2004
Á stjórnarfundi Ungmennafélags íslands sem haldinn var 6.
desember s.l. voru teknar fyrir umsóknir frá Ungmennasambandi
Skagafjarðar (UMSS) og Ungmenna- og íþróttasambandi Austur-
lands (UÍA) um að halda 7. Unglingalandsmót UMFÍ árið 2004.
Samþykkti stjórn UMFÍ að Ungmennasamband Skagafjarðar
myndi sjá um framkvæmd 7. Unglingalandsmóts UMFÍ og verður
það haldið á Sauðárkróki 30. júlí - 1. ágúst 2004.
Landsmót 2007
Ungmennasamband Kjalarnesþings, UMSK, sækir um að halda
Landsmót UMFÍ 2007 með stuðningi Kópavogsbæjar. í
umsókninni segir meðal annars:
Með bréfi þessu tilkynnist að UMSK sækir um að halda 25. Lands-
mót UMFÍ sem fara á fram í júlímánuði 2007. í boði er að halda
mótið í Kópavogi en þar seru aðstæður til mótahalds með þeim
bestu sem þekkjast á landinu. Einhugur er innan sambandsins
varðandi að taka að sér þetta verkefni auk þess sem bæjarráð
Kópavogs fjallaði um málið á fundi 7. nóvember sl. og gerði
eftirfarandi bókun:
„Bæjarráð styður af heilum hug, eins og endranær, að UMFÍ haldi
Landsmót í Kópavogi 2007 og vísar til fyrri bókana bæjarráðs."
Þá fjallaði íþróttaráð Kópavogs um málið:
,,ÍTK tekur heilshugar undir bókun bæjarráðs 7. 11. sl. og fagnar
ósk UMSK um að mótið verði haldið í Kópavogi 2007 og telur það
löngu tímabært að mótið fari fram í bæjarfélaginu."
í umsókninni segir jafnframt:
Innan UMSK eru í dag uþb. 25 þúsund virkir félagar í 26 félögum
og er mótahald daglegt brauð flestum þessara félaga og er það
mjög spennandi viðfangsefni að takast á við jafn viðamikið verkefni
sem Landsmót UMFÍ er.
Héraðssambandið Skarphéðinn, HSK, með stuðningi sveitarfél-
agsins Árborg, sækir einnig um að halda Landsmót UMFÍ 2007. í
umsókninni segir meðal annars.
„Mikill áhugi er innan sveitarfélagsins að fá til sín Landsmót og á
fundi bæajrráðs 20. nóvember var samþykkt að óska eftir því að
halda Landsmót UMFÍ 2007. Forráðamönnum bæjarfélagsins er
Ijóst hvað þarf til að Landsmót verði haldið í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórninn hefur þegar samþykkt að ráðast í nauðsynlega
uppbygginu íþróttamannvirkja á Selfossi, ef HSK og sveitarfélagið
Árborg verða fyrir valinu."
Landsmót 2009
Ungmennasamband Eyjafjarðar, UMSE, og Ungmennafélag
Akureyrar, UFA, með stuðningi Akureyrarbæjar og Héraðsnefnd
Unglingalandsmót2004 fer fram á Sauðárkróki eins og
Landsmótið 2004 - Aðstaðan er glæsileg á Sauðárkróki
Eyjafjarðar, sækja sam-
eiginlega um að halda
26. Landsmót UMFÍ árið
2009. í umsókninni segir
meðal annars:
Árið 2009 eru 100 ár frá
að fyrsta Landsmót
UMFÍ var haldið á Akur-
eyri. í tilefni þessara
merku tímamóta teljum
við Akureyri eftirsóknarverðan stað fyrir 26. Landsmót UMFÍ.
Héraðssambandið Skarphéðinn, HSK, með stuðningi sveitarfél-
agsins Ölfus, sækir um að halda Landsmót UMFI 2009.
í umsókninni segir meðal annars:
Forráðamönnum í Ölfusi er Ijóst hvað þarf til að Landsmót UMFÍ
verði haldið í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn hefur þegar samþykkt að
ráðast í nauðsynlega uppbyggingu íþróttamannvirkja, ef HSK og
Þorlákshöfn verða fyrir valinu.
Landsmót UMFÍ eru fjölmennastu íþróttamót á íslandi. Fyrsta
mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hefur það verið haldið
3ja hvert ár. Á Landsmótum er keppt í um tuttugu greinum iþrótta
auk ýmissa starfsíþrótta, samhliða menningarviðburðum margs
konar.
Fjöldi keppenda er um 2000 og fjöldi gesta er yfirleitt frá 12 til
20.000 manns, en aðsókn að Landsmóti hefur mest orðið 25.000
manns árið 1965. Það sem gerir Landsmótin að stórviðburði á
íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar
fjölbreytni í keppnisgreinum.
Landsmót UMFÍ hafa sett sterkan svip á íslenska iþrótíasögu og
þeim hefur jafnan fylgt mikil uppbygging á þeim stöðum sem mótin
eru haldin. Þegar verið haldin 23 mót, en það 24. verður haldið árið
2004 á Sauðárkróki dagana 8. -11. júlí.
Efba' H 3 éq hefði vifaií
sairæn sky ndihjðlpfyrir un9linga
www. redcross.is/efbara
I L-^p Rauði kross íslands
5