Skinfaxi - 01.12.2003, Side 7
Jólagleði og skötuveisla
Fréttamolar
Jólasveinarnir
kveiktu á jólatrénu
Laugardaginn 13. desember var kveikt á
jólatrénu á Tryggvatorgi á Selfossi. Jóla-
sveinarnir úr Ingólfsfjalli komu þá til byggða
og heilsuðu upp á bæjarbúa og nærsveit-
unga.
Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða
jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og
verða þeim innan handar með allt sem snýr
að jólasveinamálum. Hvort heldur það er að
taka niður pantanir á jólaböll eða varðandi
pakkaþjónustuna á aðfangadagsmorgun, en
nánari upplýsingar og pantanir eru í síma
482-2477.
Hin árlega
skötuveisla
Ungmennafélags Stokkseyrar verður haldin á
þorláksmessu í íþróttahúsinu á Stokkseyri,
boðið verður upp á vestfirska og sunnlenska
skötu, skötustöppu, hamsa, hnoðmör, salt-
fisk, rófur, rúgbrauð og kartöflur. Öllum má
Ijóst vera að hér verður mikið um dýrðir.
Maturinn verður á hóflegu verði eða :
1500 krónur fyrir fullorðna, 1000 kr. yrir börn
7 - 12 ára og frítt fyrir börn yngri en 6 ára.
Borðhald verðurfrá 11:30 - 14 :00
Borðapantanir hjá: Gunnu í s:863-3013 og
Imbu í s:899-1594
Litlu jólin hjá Umf.
Baldri
Litlu-jólaskemmtun Þingborgarskóla og Umf.
Baldurs verður haldin í Þingborg fimmtudag-
inn 18. desember nk. kl. 21:00. Þar fá við-
staddir að njóta leiklistar krakkanna sem
sýna leikverkin sín og gera fleira til skemmt-
unar. Ungmennafélagið leggur sitt af mörkum
til menningardagskrárinnar auk veitinga. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Re-júnion hjá Umf. Baldri !
Þeir sem hafa starfað í nefndum og stjórn
Umf. Baldurs síðustu ár eru boðaðir á Kaffi
Krús á Selfossi 20. desember nk. kl. 20:00.
Nánari upplýsingar veita Elín Magnúsdóttir,
sími 891-7764 og Hrafnhildur Baldursdóttir í
síma 866-9296.
Þrettándaskemmtun Umf. Baldurs
Umf. Baldur stendur fyrir þrettándaskemmtun
með Þingborgarskóla sunnudagskvöldið 4.
janúar 2004. Kveikt verður í bálkesti við
skólann og búast má við að sjá flugelda á
lofti. Síðan verður skemmtidagskrá, spilað
bingó og ýmislegt til gamans gert.
Byrjað að grafa í Þrastaskógi
Framkvæmdir að nýrri Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ í Þrasta-
skógi hófust fimmtudaginn 20.
nóvember þegar Björn B.
Jónsson formaður UMFI tók
fyrstu skóflustunguna. Stefnt
er að því að taka nýja Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ í Þrasta-
skógi næsta sumar.
Viðstaddir voru formaður
UMFÍ, fulltrúar úr stjórn UMFÍ,
Byggingarnefnd Þrastaskóg-
ar, fulltrúar úr Þrastaskógar-
nefnd og fulltrúar úr sveitar-
stjórn.
í lok nóvember var síðan skrif-
að undir samning við Agnar
Pétursson verktaka um bygg-
ingu nýs- þjónustumiðstöðvar
UMFÍ í Þrastaskógi.
UMFÍ auglýsir eftir rekstraraðila
Ungmennafélaga íslands auglýsir eftir rekstraraðila að veitingastaðnum Þrastarlundi í
Þrastaskógi. Nú eru hafnar
framkvæmdir að nýjum veit-
ingastað í skóginum. Nýrveit-
ngaskáli verður opnaður í
byrjun næsta sumars. Um er
að ræða veislusal fyrir 120
manns, grill, smávöruverslun
og bensínsölu, ásamt rekstri á
Þrastaskógi sem útivistar-
svæði.
Skóginum fylgir meðal
annars veiðileyfi í Soginu.
Leitað er að rekstaraðilum
með reynslu af veitingarekstri
og öllum tilskildum leyfum til
veitingareksturs.
Þrastaskógur í Grímsnesi
austan við Ingólfsfjall er
svæði UMFÍ til skógræktar
sem var gefið samtökunum af
Tryggva Gunnarssyni á 77
ára afmæli hans, þann 18.
október 1911. Þetta er 45
hektara landssvæði við Sogið
og Álftavatn og er nú einhver
fegursta gróðurperla Suður-
lands. Við Sogsbrúna stendur
söluskálinn Þrastalundur sem
er eign UMFÍ, byggður 1967.
Inni í skógi hefur verið gerður
íþróttavöllur og á hverju sumri
er unnið að fegrun og endur-
bótum á svæðinu. Fjölmargir
hópar ungmennafélaga koma
í skóginn á hverju sumri og
framundan er að byggja hent-
uga aðstöðu til að taka á móti
þeim.
• •
Rekstraraðili
Þrastalundar
og Þrastaskógar
Ungmennafélag fslands teitar eftir samstarfsaöila
um rekstur veitingastaðar og verslunar í Þrastalundi
og Þrastaskógi. Um er að ræða nýtt 420 fermetra
húsnæði sem ætlað er undir veitinga- og verslunar-
rekstur.
Þrastaskógur í Grfmsnesi er ein mesta náttúruperla
á suðvesturlandi. Skógurinn er um 45 hektarar
að stærð og hefur verið skipulagður með þarfir
útivistarfólks og náttúruunnenda í huga. f Þrasta-
lundi hefur verið rekinn veitingastaður í 20 ár.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við framkvæmdastjóra UMFÍ f sfma
568 2929 eða f gegnum tölvupóst
saemundur@umfi.is
Ungmennafélag (sland, Fellsmúla 26. 108 Reykjavík,
sími 568 2929, www.umfi.is
7