Skinfaxi - 01.12.2003, Blaðsíða 10
Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ
UMFÍ var leitað til mín aftur og
ég beðinn um að taka að mér
formennsku í UMFÍ. Þetta var
1993 og tók ég við sem for-
maður UMFÍ á þingi félagsins
á Laugarvatni," segir Þórir
sem síðan losnaði ekki við
félagsmálabakteríuna næstu
átta árin, eða til ársins 2001 er
hann lét af embætti formanns
UMFÍ á þingi félagsins í
Stykkishólmi. „Núna er ég svo
má að segja hættur að vera í
framvarðarsveit ungmenna-
félagsins en er þó að vinna
aðeins fyrir UMFÍ hvað varðar
þátttöku eldri félaga í lands-
mótum.“
Leiklistarstarf
hefur verið mjög
drjúgt innan UMFÍ í
gegnum tíðina og
kem ég t.d. inn í
starf félagsins
upphaflega vegna
leiklistarinnar,"
segir Þórir og
bætir við að
meginhugsjón
ungmennafélagshr
eyfingarinnar sé að
allir geti tekið þátt
og verið með.
Að sögn Þóris snúast
unglingalandsmótin um
unglingana sjálfa og þar
þurfi ekki að finna eitt-
hvað að gera fyrir þá hel-
dur taki þeir fullan þátt í
mótshaldi frá setningu til
mótsslita. Þórir segir að
það sé ein forsenda þess
að hægt hafi verið að
halda unglingalandsmót-
in um verslunarmanna-
helgi.
„Eftir fyrsta unglingalands-
mótið á Tálknafirði árið
2000 kom maður að máli
við mig og vildi þakkaði mér
mikið fyrir það unglinga-
Landsmótin standa upp úr
Hvað stendur upp úr starfinu þegar þú
lítur til baka?
„Það er voðalega erfitt að
segja. Þetta er svona eins og
að horfa á fjallgarð með fullt
af tindum og lægðum og því
erfitt að segja hvaða tindur er
fallegastur," segir Þórir. „En
landsmótin standa ávallt upp
úr í starfi Ungmennafélags
íslands og má segja að
ýmsar breytingar hafi orðið á
þeim í minni stjórnartíð, án
þess þó að þær breytingar
hafi endilega orðið fyrir míns
tilstuðlan. Landsmótin voru í
ákveðinni þróun og mérfinnst
það hafa verið mikið gæfu-
spor fyrir UMFÍ að halda
unglingalandsmót um versl-
unarmannahelgi og leggja
þannig til atlögu við þá helgi,“
segir Þórir.
landsmót. Hann tjáði mér að á unglinga-
landsmótinu hafi hann verið í fullu starfi
við að sinna börnunum því þau hafi verið
svo áhugasöm um að vera
þátttakendur í mótinu. Hér
áður fyrr var það yfirleitt
þannig að sagt var við
börnin: „Farðu nú og pruf-
aðu þetta“ - en í dag eru
börnin með dagskrá og eiga
að vera þarna á þessum
tíma og hér á öðrum,“ segir
Þórir.
Þórir rifjar upp fyrir blaða-
manni að á þessu sama
unglingalandsmóti á
Tálknafirði hafi hann og
kona hans gengið um
tjaldsvæði mótsgesta á
laugardagskvöldi lands-
mótsins og þeim hafi
komið svo á óvart hvað
hreint og fallegt hafi verið
um að líta á mótssvæðinu.
Það er voðalega
erfitt að segja.
Þetta er svona eins
og að horfa á
fjallgarð með fullt
af tindum og
lægðum og því
erfitt að segja
hvaða tindur er
failegastur,“ segir
Þórir. „En
landsmótin standa
ávallt upp úr í starfi
Ungmennafélags
íslands og má
segja að ýmsar
breytingar hafi
orðið á þeim í
minni stjórnartíð
„Okkur fannst ánægjulegt að sjá ekki
bjórdós eða annað rusl á tjaldsvæðinu
um þessa helgi. Hér áður fyrr þurfti mað-
ur að taka saman rusl eftir verslunar-
mannahelgi með heyvinnutækjum svo
mikið var ruslið. Þannig að það var mjög
ánægjulegt að ganga um svæðið svo
hreint og fagurt eins og það var,“ segir
Þórir og bætir því við að unglinga-
landsmótin hafi án efa verið skref í rétta
átt fyrir UMFÍ.
Allir geta tekið þátt og verið með
Hvað hin eiginlegu landsmót Ung-
mennafélags íslands varðar segir
Þórir þau hafa stuðlað að góðri upp-
byggingu íþróttamannvirkja víða um
land.
„í dag er náttúrulega keppt í íþróttum við
bestu aðstæður á landsmótunum og má
segja að það hafi unnið því fylgi að
byggja upp góða velli um landið. Það er
hins vegar alveg Ijóst að þannig vellir
eiga ekki að vera í hverju plássi, heldur
frekar í hverjum landsfjórðungi," segir
Þórir. „Þessi mót eru að verða 100 ára
gömul, en það fyrsta var haldið árið
1909, þannig að stór afmæli eru
framundan hjá UMFÍ.“
Á þessum tæpu hundrað árum hafa
orðið gríðarlegar breytingar á UMFÍ
og sagan er vissulega mikil, en tekur
fyrrverandi formanni undir þá stað-
hæfingu að ungmennafélögin séu
barn síns tíma?
„Nei þau eru það ekki,“ segir hann með
áherslu. „Félögin eru mjög misjöfn og eru
ekki hreinræktum íþróttafélög. Við látum
okkur alla einstaklinga varða, hvort sem
hann er áhugamaður um íþróttir eða
ekki. Leiklistarstarf hefur verið mjög
drjúgt innan UMFÍ í gegnum tíðina og
kem ég t.d. inn í starf félagsins upp-
haflega vegna leiklistarinnar," segir Þórir
og bætir við að meginhugsjón ung-
mennafélagshreyfingarinnar sé að allir
geti tekið þátt og verið með.
Hins vegar segir Þórir að UMFÍ verði
að hreyfa sig í takt við tíðarandann
hverju sinni.
„Hefðum við hangið á einhverju sem var
við stofnun þessara félaga þá er ég
ekkert viss um að þau væru raunveru-
lega lifandi í dag.“
Glæsilegar fánaborgir og
félagsmerki
Er eitthvað sem þú vilt sjá verða að
veruleika innan UMFÍ sem þú náðir
kannski ekki að fylgja eftir sem
formaður?
„Það má segja að flest að þeim málum
10