Skinfaxi - 01.12.2003, Síða 11
Þórir Jónsson fyrrverandi formaður UMFÍ
sem ég lagði upp með í minni baráttu
sem formaður UMFÍ hafi náð fram að
ganga. En það er eitt mál sem mér þykir
ákaflega vænt um og það er þegar við
byrjuðum að flagga fánum allra aðildar-
félaga UMFÍ á stórhátíðum - það er á
landsmótum, þingum og öðru slíku. Ætli
þetta séu ekki milli 30 og 40 fánar í allt.
Þó að sagt væri í dag það þetta sé nú
ekkert mál, þá kostaði það samt mikla
vinnu á sínum tíma að koma þessu á.
Mér finnst það ákaflega glæsilegt að sjá
fána allra aðildarfélagna saman komna á
einum stað,“ segir Þórir og bætir því við
að á sínum tíma hafi það einnig kostað
blóð, svita og tár að koma á landsmóts-
merki. Að það hafi ekki verið einfalt mál á
sínum tíma en gengið að lokum og að
niðurstaðan hafi verið ágæt, en sjálfsagt
megi deila um það hvort niðurstaðan hafi
verið sú besta.
Þórir er á því að Ungmennafélag
íslands sé á réttri leið í dag og gott
fólk við stjórnvölin.
„Það hefur ávalt valist gott fólk til starfa
hjá UMFÍ og það er að sjálfsögðu mikið
gæfuspor hreyfingarinnar. Ég er mjög
ánægður með allt það fólk sem ég
starfaði með í þau 14 ár sem ég sat í
stjórn UMFÍ,“ segir hann og bætir við að
þó svo að félagið hreyfi sig oft á hraða
skjaldbökunnar þá þurfi það ekki
endilega að þýða að það sé slæmt. „Við
höfum yfirleitt rætt öll mál mjög gaum-
gæfilega áður en teknar eru ákvarðanir
og tekið fá skref í einu. Það er mjög
varasamt fyrir svona samtök að taka
stórar kollsteypur."
UMFÍ á eftir að lifa um ókomin ár
Hvert viltu sjá hreyfinguna
þróast í framtíðinni?
„Ég sé fyrir mér að hreyf-
ingin eigi eftir að eflast til
muna. Þá held ég að engar
stórar breytingar eigi eftir að
eiga sér stað á allra næstu
árum heldur eigi UMFÍ eftir
halda áfram á þeirri góðu
braut sem það er á í dag. Ég
er alveg klár á því að þessi
hreyfing á eftir að lifa um
ókomin ár,“ segir Þórir.
Þórir segir það skipta
gríðar miklu máli fyrir ungt
fólk að taka þátt í ein-
hverskonar félagsstarfi á
lífsleiðinni, það hjálpi til
við að verða góðir þjóð-
félagsþegnar.
„Það er alveg spurning hvort
UMFÍ þurfi ekki að fara að
taka ennþá betur á hinum
„Það hefur ávalt
valist gott fólk til
starfa hjá UMFÍ og
það er að
sjálfsögðu mikið
gæfuspor
hreyfingarinnar. Ég
er mjög ánægður
með allt það fólk
sem ég starfaði
með í þau 14 ár
sem ég sat í stjórn
UMFÍ,“ segir hann
og bætir við að þó
svo að félagið
hreyfi sig oft á
hraða
skjaldbökunnar þá
þurfi það ekki
endilega að þýða
að það sé slæmt
almennu félagsmálum. Hvernig fólk á
almennt að vinna sig í gegnum það að
taka ákvarðanir, hvernig eigi að vinna á
fundum, þingum og öðru slíku. Læra
hvernig tillaga er lögð fram, hvernig á að
ræða hana og hvernig á að
fylgja sínum málum eftir, en
vera samt tilbúin að láta eftir
ef svo ber undir,“ segir Þórir.
„Þetta er heljarinnar lær-
dómur að fara í gegnum og
alveg spurning hvort ekki
þurfi að leggja meiri rækt við
þennan þátt,“ segir hann og
tekur undir þegar blaða-
maður spyr hann hvort að
umburðarlyndi sé eitthvað
sem einkenni UMFÍ.
Þykir ákaflega vænt um
UMFÍ
Hvað hefur Þórir Jónsson
verið að bardúsa eftir að
hann lét af formennsku
UMFÍ?
„Ég hef bæði verið í bygg-
ingarframkvæmdum og
starfsmaður Húsasmiðjunn-
ar. Það sem ég er núna að
brasa í er má segja eigin heilsa, en ég er
að fara í aðgerð eftir viku. Þannig að lífið
snýst voðalega mikið um þessa aðgerð
og vonandi getur maður haldið jólin
hátíðleg heimavið," segir Þórir, en hann
þarf að láta skipta um mjaðmaliði í
þessari aðgerð. „En ef heilsan leyfir þá á
maður eftir að skoða landið sitt þetur og
að sjálfsögu að taka þátt í því starfi sem
ungmennahreyfingin bíður uppá hverju
sinni.“
Ertu stoltur að vera ungmenna-
félagi?
„Já það er ég heldur betur og flagga
bláhvíta fánanum hjá mér á merkis-
dögum. Ég segi að það sé fallegasti
fáninn sem til er. Mér þykir ákaflega vænt
um UMFÍ og allt það fólk sem ég hef
fengið tækifæri til að vinna með, það
hefur reynst mér ákaflega vel og ég vona
að ég hafi reynst því þokkalega í
gegnum tíðina. Það var mitt markmið að
vinna UMFÍ gagn og ég vona að það
markmið mitt hafi tekist," segir Þórir
Jónsson að lokum.
- Skinfaxi þakkar Þóri fyrir skemmtilegt
spjall og sendir honum baráttukveðjur á
spítalann.
11