Skinfaxi - 01.12.2003, Blaðsíða 15
Uppbygging í Þrastarskógi
íþróttabandalaga inn í UMFI, umræöan um sameiningu UMFI
og ÍSI hefur staðiö lengi o.s.frv. Hvernig viltu sjá starf hreyf-
ingarinnar á næstum árum?
,,Mér finnst að UMFÍ eigi að halda áfram á þeirri braut sem sam-
tökin eru á þ.e.a.s. að einbeita sér að grasrótarstarfinu, almennu
félags- æskulýðs- og menningarstarfi þar sem allir taka þátt. Láta
ÍSÍ og sérsamböndunum um keppnisíþróttirnar þótt vissulega
tengist þetta alltaf saman. Ég held að UMFÍ eigi að leggja enn
meiri áherslu á Landsmótin og setja þau í enn fastari skorður.
Landsmótin hafa verið kölluð fjöregg hreyfingarinnar og ég held að
þau séu það enn í dag.“
Á ekki von á fjölgun á landsmótum
Varstu sáttur við þá ákvörðun að opna Lands-
mótin?
,,Já, ég var það en ég held hins vegar að það verði
aldrei nein þátttaka að ráði nema frá þeim sem eru
innan UMFÍ og vilja vera innan UMFÍ. Það eru þeir
aðilar sem taka þessu alvarlega og munu sinna
þessu. Ég á því ekki vona á því að fjölgunin á lands-
mótunum verði mikil frá aðilum utan hreyfingarinnar"
Eins og áður hefur komið fram hefur þú ekki sagt
skilið við UMFÍ. Situr m.a. í byggingarnefnd
Þrastalundar og þú ert fulltrúi UMFÍ í íslenskri
getspá. Þannig að þú ert ekki alveg tilbúinn að sleppa takinu
enn sem komið er?
„Nei, ég hef enn mjög gaman af þessu þótt ég vilji minnka aðeins
við mig. Þegar maður er búinn að sitja svona lengi í þessu þá er
manni ekki sama um hlutina og hvernig þeir þróast. Maður vill sjá
að menn séu að gera réttu hlutina," segir hann hlæjandi en með
ákveðnum alvörusvip.
Þú treystir s.s. ekki öðrum sem sitja að borði? ,,Jú, jú, að
sjálfsögðu geri ég það. En maður vill eðlilega fylgjast með.“
Þú færð sjálfsagt aðeins meiri tíma til aflögu fyrst þú ert
hættur í stjórninni - ertu búinn að ráðstafa honum?
„Nei, ég hef ekki gert það. Ég hef svo sem alveg nógu mikið að
gera. Ég hef aðeins verið að reyna fyrir mér í golfi en
það hefur gengið hægt og kannski skynsamlegast að
nota meiri tíma í það ef einhver árangur á að nást.“
Ætlar þú að eyða jólunum í Þrastaskógi?
„Nei, ekki ætla ég að gera það,“ segir hann brosandi.
Hvar heldur þú upp á jólin?
„Við höfum ýmist verið hjá foreldrum mínum eða
heima. Rjúpan hefur verið á boðstólnum hjá okkur
undanfarin ár en ætli það verði ekki gæsin í ár. Ég hef
borðað rjúpur frá Noregi og Finnlandi og þær eru ekki
í líkingu við íslensku rjúpuna þannig að ég læt líklega
skosku rjúpuna vera. Svo er spurning hvort einhver
eigi rjúpur í frysti frá því í fyrra sem hann vill losna við.“
segir hann með litlum alvörutón í lokin en vill samt ekki gefa upp
símanúmerið sitt þegar blaðamaður Skinfaxa spyr hvort hann eigi
að láta það fylgja með.
Ég hef enn mjög
gaman af þessu
þótt ég vilji minnka
aðeins við mig.
Þegar maður er
búinn að sitja
svona lengi í þessu
þá er manni ekki
sama um hlutina
og hvernig þeir
þróast. Maður vill
sjá að menn séu að
gera réttu hlutina.
Tl 01ÍIV14UJA
i
%
i
B
I
Blaðið Skinfaxi sem þú ert með í
höndunum er prentað hjá okkur.
Það er eitt af þúsundum prentgripa
sem við prentum á hverju ári, allt frá
nafnspjöldum til Ijósmyndabóka.
SVANSPRENT
3
■o
n
3
15