Skinfaxi - 01.12.2003, Qupperneq 17
Rekstur Þrastaskógar
Umf. Vesturhlíð hefur séð um rekstur Þrastaskógar - verður
svo áfram eða breytist reksturinn eitthvað með komu
skálans?
„Það verður að koma í Ijós og er alfarið í höndum
stjórnar UMFÍ. Stjórnin auglýsti eftir rekstraraðilum að
skálanum og einnig að skóginum. Stjórn Umf. Vestur-
hlíðar ákvað að sækja um þennan rekstur enda höfum
við félagsmenn á okkar snærum sem staðið hafa í
slíkum rekstri til fjölda ára og búa því yfir mikilli reynslu.
Við erum með margar og góðar hugmyndir um rekst-
urinn og hvernig þetta tvennt megi fara saman til að
auka nýtingu Þrastaskógar.“
Finns Ingólfssonar og síðar Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar-
og viðskiptaráðherra en ert nú farinn að starfa hjá VÍS. Var þér
farið að leiðast ráðherrarnir?
„Nei, alls ekki. Mér var boðið þetta starf hjá VÍS og
fannst tilvalið að breyta til enda var ég búinn að
vera bifreiðastjóri í átta ár og kominn tími til að
breyta."
Framkvæmdaglaðir menn á ferð
Hvernig gengur að byggja upp aðstöðuna í Þrasta-
skógi?
„Hún hefur gengið hægt en þó gengið með aðstoð
þessara styrktaraðila sem nefndir voru að ofan. Okkur
vantar sárlega varanlegt kalt og heitt vatn og rafmagn á
tjaldstæðin. Við erum í rauninni að verða dálítið á eftir í
þessum málun enda eru nýjustu tjaldvagnarnir og felli-
hýsin með rafmagni sem fólk vill geta notað. Við erum
framkvæmdaglaðir menn og ég vonast til að þetta náist fyrir vorið.“
Hvernig gengur að nýta svæði UMFÍ í Þrastaskógi?
„UMFÍ nýtir svæðið sjálft lítið en í Þrastaskóg koma fleiri þúsund
manns á tjaldsvæðið og það kemur mér ekki á óvart þótt talan
skipti tugum þúsunda sem koma í skóginn eingöngu til að ganga
og skoða sig um. Reglulega koma í Þrastaskóg gönguhópar frá
Selfossi og víðar á Suðurlandi. Svo er Hundaklúbbur Suðurlands
með sína vikulega göngu þarna yfir vetrartímann svo eitthvað sé
nefnt.“
Hvaða möguleika býður Þrastarskógur upp á?
„Ég tel þetta vera besta útivistarsvæði á Suðurlandi og þótt víðar
væri leitað enda kemur fólk allsstaðar af landinu til að gista í
Þrastaskógi. í Þrastaskógi er gríðarlega fallegt og margir mögu-
leikar í boði. Það er hægt að fara langar og stuttar göngur og menn
hafa möguleika á því að kaupa sér veiði í Soginu og Álftavatni svo
eitthvað sé nefnt.“
Nú er mikið um grenitré í skóginum sem eru tilvalin jólatré. Er
eitthvað um að fólk sé að stela trjám á þessum árstíma?
„Já, því miður eru margir sem eru með stolinn jólatré í stofunni hjá
sér eða fyrir utan fyrirtæki sín. Við verðum varir við það á hverju ári
að það eru tekin grenitré rétt fyrir jólatímann. Þetta eru kannski á
milli 30-40 tré sem eru tekin á hverju ári. Við sjáum þetta af
sárunum og skráum þetta niður. Nú síðustu ár höfum við fengið
Lögregluna á Selfossi til að hafa auga með mannaferðum um
skóginn á þessum árstíma."
Nú er að nálgast jólin - stendur Umf. Vesturhlíð fyrir einhver-
jum uppákomum um jólin?
„Við höfum farið árlega í skógarferð um Þrastaskóg með fjölskyld-
unum þar sem farið var yfir ársuppgjörið og boðið uppá kakó og
veitingar. Því miður höfum við ekki farið síðustu tvö ár og ég á ekki
von á því að við förum núna.“
Bifreiðastjórinn var ekki orðinn þreyttur á ráðherrunum
Ég get ekki sleppt þér án þess að spyrja þig um þitt fyrrum
starf sem bifreiðastjóri ráðherra. Fyrst varstu bifreiðastjóri
Eg tel þetta vera
besta útivistar-
svæði á Suðurlandi
og þótt víðar væri
leitað enda kemur
fólk allsstaðar af
landinu til að gista
í Þrastaskógi. í
Þrastaskógi er
gríðariega fallegt
og margir mögu-
leikar í boði. Það er
hægt að fara lang-
ar og stuttar
göngur og menn
hafa möguleika á
því að kaupa sér
veiði í Soginu og
Álftavatni svo
eitthvað sé nefnt.
Hvernig er að vera bifreiðastjóri ráðherra - sjálf-
sagt mikið rætt og þú hefur jafnvel komið ein-
hverju frumvarpi að - eða hvað?
„Nei, ekki get ég nú sagt það. En það er margt sem
fer á milli bifreiðastjóra og ráðherra en fyrst og
fremst er þetta trúnaðarsamband og þannig heldur
maður því.“
Þannig að þú gefur ekkert upp?
„Nei, það er vissara að halda þessum trúnaði
þangað til að ævisagan kemur út, kaflinn mun heita
„Árin í stjórnarráðinu," segir hann brosandi og bætir
því við að framtíð Þrastaskógar sé björt og vonast
hann eftir að fá tækifæri til að starfa áfram með því
góða fólki sem hann hefur unnið með síðustu ár að
þeim verkefnum sem þar eru unnin þótt hann sé ekki allra eins og
hann orðaði það. „Menn eiga að koma til dyranna eins og þeir eru
klæddir og þá þurfa þeir líka að hafa þann þroska að sætta sig við
lýðræðið," sagði Einar að lokum.
«?
Z
Ui
X
z
o
V)
z
UJ
X
z
o
(/)
z
Ul
X
z
o
co
z
UJ
X
z
o
(/)
z
UJ
X
(/)
z
UJ
rtHENSONHENSONHENSONHENSON//
SmLun akkafi Udu
mh mi áttceújulecjt
koMOHái kefjmMtmoJúl,
Opnum spennandi heimasíðu
23.janúar 2004
http://www.henson.is
%
C/)
o
z
X
m
z
in
o
z
X
m
z
(/)
o
z
I
m
x
m
z
(/)
o
m
z
(/)
o
z
X
m
z
(/)
o
X
z
o
^H3HNOSN3HNOSN3HNOSN3HNOSt^
17