Skinfaxi - 01.12.2003, Page 18
Jón M. ívarsson
Fyrir ári síðan var ákveðið innan UMFÍ að fara í nokkuð
sérstakt en löngu tímabært verkefni sem nefnist Spor
ungmennafélaga. Eins og nafnið gefur til kynna er
markmið verkefnisins að líta um öxl og leita uppi sögu
og upphaf ungmennafélaga um allt land og skrá hana
niður, hafa upp á gömlum mannvirkjum og íþrótta-
svæðum sem reist voru af ungmennafélögum á sínum
tíma.
Verkefnið hófst formlega í sumar og var Jón M.
ívarsson ráðinn til að leita uppi spor ungmennafélaga.
Jón stundar nám í sagnfræði við Háskóla íslands En
hefur í mörg ár starfað af og til við skjalasafn UMFÍ og
er því sögunni vel kunnur. Sjálfur varð Jón ungmenna-
félagi um leið og hann hafði aldur til og þrátt fyrir
búsetu í Reykjavík síðustu 30 árin heldur hann enn
tryggð við sitt gamla félag, Umf. Samhygð í Gaulverja-
bæjarhreppi. Þar kennir hann glímu einu sinni í viku á
vetrum eftir áramótin. Jón gaf sér góðan tíma til að
ræða um verkefnið við Valdimar T. Kristófersson, þótt
hann væri á fullu í próflestri, og ræddi m.a. um hug-
myndina á bak við verkefnið.
Vill höfða til hirðusemi og
þjóðrækni félaganna
- Jón M. ívarsson vinnur að verkefninu Spor ungmennafélaganna
Þaö varð félagsleg vakning
með stofnun ungmennaféiaga
,,Á fyrstu tveimur áratugum 20. aldarinnar má
segja að hafi verið stofnað ungmennafélag í hverri
sveit, það varð félagsleg vakning ef svo má að
orði komast. Þá varð til félagslegur vettvangur
sem hafði hvergi verið til í þjóðfélaginu áður og á
mörgum stöðum varð til geysilega kraftmikið starf
þar sem félagsmenn lögðu mikið á sig til að koma
upp margs konar aðstöðu fyrir félagsstarfið sem
hafði ekki verið til í sveitunum áður. Þannig er
kannski best að vitna í einn ágætan gamlan
ungmennafélaga, Vigfús Guðmundsson vert í
Hreðavatnsskála. Hann kom inn í nýstofnað
ungmennafélag sveitar sinnar ungur maður í
upphafi 20. aldarinnar og segir svo í endur-
minningum sínum:
,,íbúum sveitarinnar hafði ekki tekist í 1000 ár
að reisa sér sameiginlegt hús þar sem þeir
Það eru samt til
miklar upplýsingar
um ungmennafé-
lögin víðast hvar á
landinu og þetta
verkefni snýr að
því að safna
þessum upplýsing-
um saman og
reyna fyrst og
fremst að
kortleggja þessi
verklegu störf
ungmenna-
félaganna þ.e.a.s.
allar framkvæmdir
sem skiptu sköp-
um fyrir félags-
legan vettvang
gætu komið saman á mannfundum. Við ungmenna-
félagarnir reistum okkur strax fundarhús. ...þar
iðkuðum við ýmsar íþróttir, skemmtum okkur, héldum
málfundi, komum upp bókasafni, byggðum sundlaug,
höfðum starfsemi til málfegrunar, söngæfingar o.s.frv.
Flest þetta var óþekkt í sveitinni áður.“
Svona var saga ungmennafélaganna í hnotskurn áður
fyrr. Þau drifu upp allskonar starfsemi og verklegar fram-
kvæmdir sem höfðu hvergi verið fyrir hendi sem unga
fólkið gat notið góðs af. Nú er mjög misjafnt hvernig þessi
saga hefur verið skráð. Sum ungmennafélög hafa skráð
sína sögu vel og myndarlega en annað er kannski meira
og minna týnt eða hvergi fyrir hendi. Það eru samt til
miklar upplýsingar um ungmennafélögin víðast hvar á
landinu og þetta verkefni snýr að því að safna þessum
upplýsingum saman og reyna fyrst og fremst að kort-
leggja þessi verklegu störf ungmennafélaganna þ.e.a.s.
allar framkvæmdir sem skiptu sköpum fyrir félagslegan
vettvang t.d. félagsheimili og fleiri byggingar, svo og
íþróttavelli og íþróttasvæði sem byggð voru upp, sund-
18