Skinfaxi - 01.12.2003, Síða 19
Spor ungmennafélaganna
laugar sem teldust nú ekki margar hverjar
merkilega í dag, hlaðnar úr torfi, skóg-
ræktarreitirnir o.fl. Upplýsingarnar liggja út
um allt t.d. er þær að finna í skýrslum UMFÍ
og ÍSÍ, þær eru í afmælisritum og sögu-
ágripum, þær eru í skjalasöfnum út um allt
land, og svo þarf maður sjálfsagt í lokin að
leita eftir munnlegum heimildum sem gaml-
ir stjórnarmenn og félagar hafa að geyma.
Það eru alltaf til fróðir menn í
flestum sveitum sem geta
staðfest og bætt við skráðar,
prentaðar og skrifaðar upplýs-
ingar. Þetta er verkefni sem
verður ekki unnið á einum
degi eða einu ári.“
Þú ert í sagnfræðinámi við
Háskóla íslands. Þú hefur
verið tilvalinn í þetta verk-
efni m.a. vegna þessa?
„Ég hafði numið sagnfræðina
í skamman tíma og var nú
ekki orðinn þekktur fyrir hana
þegar ákveðið var að fara út í þetta
verkefni. Ætli það sé ekki frekar það að ég
hef verið að starfa við ýmislegt hjá UMFÍ
t.d. sett upp og skipulagt skjalasafnið þeirra
þannig að þeir vissu ég er nokkuð
kunnugur starfsemi ungmennafélaganna.
Þegar þessi hugmynd kom upp innan UMFÍ
þá var leitað til mín. Mér þótti verkefnið
mjög áhugavert og tók strax vel í þetta.
Þetta kom vel inn í mitt starf þ.e.a.s. að
vera nemandi á veturna og vinna í þessu á
sumrin."
Sum skjöl við það að glatast
Þú fórst einmitt af stað núna í sumar og
skoðaðir aðstæður á ísafirði og Húsa-
vík?
„Já, ég tók svona stikkprufur í sumar og fór
í skjalasafnið á ísafirði þar sem ég fann
mikinn bunka af merkum ungmennafélags-
skjölum. Sömuleiðis fór ég á skjalasafnið á
Húsavík sem er mjög gott og vel skipulagt.
Þar var mikið af skjölum að finna sem
tengdust HSÞ. Ég var sína vikuna á
hvorum stað en skjalasöfn landsins eru um
20 talsins. Ég reikna með að ég þurfi að
heimsækja þau öll til að hafa einhvern
grunn að byggja á. Svo liggja ennþá ýmis
skjöl ungmennafélaga hist og her, sum í
góðri hirðu en önnur í kössum eða á kistu-
botnum illa umhirt og sum þeirra gætu
verið við það að glatast. Maður vill náttúru-
lega höfða til hirðusemi og þjóðrækni
félaganna og biðja þá að halda til haga
þeim bókum og skjölum sem þeir eru með
í sínum fórum. Þetta á best heima í
skjalasöfnum og það hefur verið gert átak
til að koma þeim þangað. Þar eiga þau að
enda þar sem allir geta gengið að þeim.
Það er samt allur gangur á því hvernig
þetta er og ég er bara að beina tilmælum til
þeirra sem hafa svona skjöl undir höndum
að það sé það albesta sem þeir geta gert er
að koma þeim á héraðsskjalasöfnin."
Hvaða væntingar gerið þið til verkefnis-
ins og varstu ánægður með það sem þú
fannst á ísafirði og Húsavík í
sumar?
„Við gerum okkur þær væn-
tingar að geta fundið í gögnum
og jafnvel staðsett flest af þeim
mannvirkjum sem ungmenna-
félagar hafa reist í gegnum tíð-
ina. Ég fann t.d. miklu fleiri
gögn en ég átti von á í sumar
því auðvitað hefur margt glat-
ast sem áður hafði verið til.
Það kom í Ijós að það var tals-
vert mikið sem hafði verið
varðveitt og ég fann nokkur
heilleg söfn margra félaga. Þar
segir m.a. frá þeirra upphafi og þeirra starfi
sem er nauðsynlegt að hafa til að geta
komist að því hvernig hlutirnir voru fyrir 80-
100 árum því það eru sjálfsagt ekki margir
til frásagnar frá þeim tíma. Ég er t.d. búinn
að setja saman lista yfir
ungmennafélög um allt land
og einbeitti mér að fyrri hluta
20. aldar. Ég gat kortlagt 380
félög sem flest hétu ung-
mennafélög. Sum þeirra voru
nú skammlíf, kannski vegna
fólksfækkunar í sveitum eða
sveitarfélög hafa verið sam-
einuð og félögum fækkað.
Það eru 150 félög af þessum
380 sem eru enn á lífi í dag.
Það hafa þó allmörg ný félög
verið stofnuð síðan og í dag
eru rúmlega 300 félög skráð
innan UMFÍ svo hér eru á að giska 530
félög sem þarf að skoða.“
Og ungmennafélögin hafa því markað
spor sín víða um þjóðfélagið í gegnum
árin? ,,Já, það hafa þau gert af miklum
krafti. Það er alveg Ijóst að það hefur ekkert
jafnast á við ungmennafélögin og að mínu
viti mun ekkert koma í staðinn fyrir þau.
Þau hafa verið þessi félagslegi vettvangur
um allt land sem skipti sköpum varðandi
mannlíf og félagsstarfsemi á íslandi. Það
var ekki breyting heldur bylting þegar ung-
mennafélögin komu. í lang flestum tilfellum
voru það ungmennafélögin sem drifu upp
félagsheimilin og samkomuhúsin snemma
á 20. öld þannig að þau hafa víða og með
ýmsum hætti markað spor sín í þjóð-
félagið."
Menn eru að vakna til vitundar
Þú ert ekki bara að skoða sögu ung-
mennafélaga heldur ferðu í vettvangs-
skoðanir og athugar hvaða mannvirki
standa enn uppi?
,,Já, ég geri það. Sum mannvirkin eru
horfin en önnur eru enn til og mörg þeirra
hafa verið ótrúlega glæsileg. Það er t.d.
nóg fyrir fólk að fara að Borg í Grímsnesi
en þar er búið að endurbyggja gamalt
félagsheimili Umf. Hvatar sem byggt var
1929. í 30 ár var þar bílaverkstæði eftir að
félagsheimilið var lagt niður og húsið í hálf-
gerðri niðurníðslu en nú hefur áhugafólk
um merkar minjar komið að húsinu og
endurbyggt það að nýju með glæsibrag.
Austur-Eyfellingar ætla að endurbyggja
gamalt félagsheimili sem hefur staðið þar í
eyði í áratugi þannig að menn eru að vakna
til vitundar að sum af þessum gömlu mann-
virkjum eru menningarverðmæti sem þarf
að huga að. Mörg þessara gömlu mann-
virkja eru kannski ekki i standi til að
endurbyggja þau en önnur eru þess eðlis
að þau eiga það skilið að þeim sé haldið til
haga og þau endurbætt."
Hvernig er síðan hægt að hagnýta
þessar upplýsingar sem þú
finnur?
„Þetta verður allt skráð niður
og síðan er kannski einn af
lokapunktum þessa verkefnis
að merkja þessar minjar inn á
landakort. Maður býr t.d. eitt
merki fyrir hús, annað fyrir
íþróttasvæði og þriðja fyrir
sundlaug. Þetta er hugmynd
sem ég er búinn að kynna laus-
lega en er mjög skemmtileg því
þá væri hægt að sjá með eigin
augum hvað þetta starf hefur
verið yfirgripsmikið um allt land.
Af því litla sem ég hef farið yfir hef ég
komist að því að það var tæplega til svo
aumt ungmennafélag hér áður fyrr að það
hafi ekki verið með verklegar framkvæmdir
á sínum snærum, í flestum tilvikum hús,
mörgum tilfellum sundlaug og flest voru
með einhverja gróðurreiti og íþróttasvæði,
þótt mörg þeirra teldust ekki merkileg í dag
þá dugðu þau vel á sínum tíma.“
Hvenær sérö þú fram á aö þessu
verkefni Ijúki?
„Þetta er bara byrjunin og ég held að það
sé ekki tímabært að meta það fyrr en eftir
næsta sumar. Þá er kannski eitthvað farið
að sjást til lands," segir Jón sem er kominn
með góðan grunn eftir sumarið og bíður
spenntur eftir því að geta farið aftur út á
örkina næsta sumar.
Þegar þessi hug-
mynd kom upp
innan UMFÍ þá var
leitað til mín. Mér
þótti verkefnið
mjög áhugavert og
tók strax vel í
þetta. Þetta kom
vel inn í mitt starf
þ.e.a.s. að vera
nemandi á veturna
og vinna í þessu á
sumrin
Það var ekki
breyting heldur
bylting þegar ung-
mennafélögin
komu. í lang
flestum tilfellum
voru það
ungmennafélögin
sem drifu upp
félagsheimilin og
samkomuhúsin
snemma á 20. öld...
19