Skinfaxi - 01.12.2003, Side 21
Bergsveinn Sampsted framkvæmdastjóri íslenskrar getspár og getrauna
Mikil gróska hefur verið hjá íslenskri getspá og
íslenskum getraunum undanfarin ár og söluaukning
orðið á hverju ári. UMFÍ nýtur góðs af rekstri íslenskrar
getspár þar sem hreyfingin á um 14% í fyrirtækinu. Þá
njóta íþróttafélögin á landinu og þar á meðal ung-
mennafélögin góðs af rekstri íslenskra getrauna því
þau fá ákveðna prósentu af sölunni sem fer eftir dugn-
aði þeirra sjálfra við að selja leikinn. Bergsveinn Samp-
sted er framkvæmdastjóri íslenskrar getspár og get-
rauna. Valdimar T. Kristófersson hitti hann að máli í
höfuðstöðvum þeirra í Laugardal og komst m.a. að því
heildarsalan er kominn í tvo milljarða á ári.
Menn tippa dálítið með hjartanu
- segir Bergsveinn Sampsted framkvæmdastjóri íslenskrar getspár og getrauna
Mikil söluaukning á undanförnum árum
Söluaukningin hefur verið stigvaxandi undanfarin ár og árið í
fyrra var það besta í sögunni - hvernig stendur á þessari
aukningu?
,,Við höfum verið að þreifa okkur áfram með ýmsu
móti sem hefur skilað sér í meiri sölu eins og t.d. með
áskrift í Lottóinu, erum komnir með leikina inn á netið,
hærri vinningaskrá, Jókerinn o.fl. í fyrra vorum við
einnig sérlega heppnir með hversu margir stórir pottar
mynduðust sem skilaði sér í meiri þátttöku á milli vik-
na. Það eru miklar tekjur sem koma inn þegar pottur-
inn verður 5, 6 eða 7 -faldur eins og gerðist í fyrra.
Árið í ár hefur líka verið mjög gott þrátt fyrir að þessu
stóru pottar hafi ekki myndast.
Ég reikna með að salan í ár verði í kringum 1510
milljónir í Lottóinu og rúmlega 430 milljónir í getrauna-
leiknum þannig að salan verður í kringum 2 milljarða í
allt. Okkur hefur tekist að vera með stíganda
undanfarin ár og sérsaklega erum við ángægðir með
aukninguna í getraununum því á Norðurlöndum hefur
salan í getraunum dregist saman á undanförnum
árum.“
Eg reikna með að
salan í ár verði í
kringum 1510
miiljónir f Lottóinu
og rúmlega 430
milljónir í getrauna-
leiknum þannig að
salan verður í
kringum 2 milljarða
í allt. Okkur hefur
tekist að vera með
stíganda
undanfarin ár og
sérsaklega erum
við ángægðir með
aukninguna í
getraununum...
Einhver sérstök áðstæða fyrir því?
,,Við búum við mjög góða þjónustu hérna heima á íþróttatengdu
sjónvarpsefni miðað við aðrar þjóðir og það hefur sjálfsagt áhrif.
Við erum að fá alla bestu leikina beint heim í stofu til okkar en
erlendis þarf viðkomandi kannski að vera með 4 til 5
stöðvar til að ná öllum þessum leikjum."
Þú talaðir um áskrift í Lóttóinu - eru margir að
nýta sér hana og varir áskriftin þá yfir í heilt ár?
,,Það hefur orðið mikil aukning í áskrift á Lottó og
sérstaklega eftir að við settum Lottóleikinn á netið hjá
okkur í maí. Mörgum finnst það vera aukin þægindi
að þurfa ekki alltaf að fara út í sjoppu til að velja sér
tölur. Áskriftin hefur því verið að aukast og sérstak-
lega bætast áskrifendur í hópinn þegar stóru pottarnir
koma. Áskriftin heldur síðan áfram þangað til að
viðkomandi segir henni upp. Þeir sem eru í áskrift fá
fjóra fría útdrætti á ári.“
Hvað er fólk að kaupa fyrir háar fjárhæðir í
áskrift?
,,Það er misjafnt en að meðaltali er það í kringum 500
kr. á viku.“
21