Skinfaxi - 01.12.2003, Blaðsíða 22
Bergsveinn Sampsted
Bergsveinn Samp-
sted framkvæmda-
stjóri ásamt Haraldi
Haraldssyndi t.h. er
sér um getraunirnar
og. Stefáni Pálssyni
er sér um lottóleik-
Þú segir að þátttakendum í Lottóinu
hafa m.a. fjölgað þegar þið hækkuðuð
vinningaskrána. Hafið þið í hyggju að
hækka hana enn frekar?
„Við erum alltaf að skoða hvar leikurinn er
í besta jafnvæginu. Fyrir fjórum árum fjölg-
uðum við lægstu vinningunum en mögu-
leikarnir þá voru 1 á móti 95 og fóru niður í
1 á móti 50 við breytinguna þannig að
vinningshópurinn tvöfaldaðist. Síðan
hækkuðum við fyrsta vinninginn og við
erum því stöðugt að skoða hvort jafnvægið
sé eins og best er á kosið. í dag erum við
ekki með neinar breytingar á döfinni."
Talað um Evrópu- eða alheimslottó
Hvað með Víkingalóttóið?
„Það verður í tíu ára í mars á næsta ári. í
tekjum er það að gefa okkur þriðjung af
lottótekjum ársins. Það eru ákveðnar breyt-
ingar sem standa fyrir þrifum hjá Víkinga-
lottóinu og Ijóst að af þeim verður t.d. má
búast við því að vinningarnir hækki og
einhverjar aðrar breytingar verði settar á til
þess að gera leikinn meira spennandi. Það
er þó ekki enn búið að taka ákvörðun
hvernig breytingin verður. Aðrar þjóðir hafa
horft mikið á hvernig samstarf þessara
þjóða hefur verið þ.e.a.s. sem standa að
Víkingalottóinu sem eru Danmörk, Svíþjóð,
Noregur, Finnland, ísland og Eistland og
hafa menn verið að tala um Evrópu- eða
alheimslottó."
íslenska lottóið er s.s. vinsælla en
Vikingalóttóið?
„Já, það er tilhneigingin alls staðar á Norð-
urlöndum að laugardagsleikirnir séu vin-
sælli. Þetta virðist vera hluti af helginni að
vera með miða í Lottóinu."
Þýðir þessi aukning í Lottinu að það sé
ákveðið góðæri ríkjandi í þjóðfélaginu
og fólk hafa meiri fjármuni á milli
handanna?
„Það er oft talað um að þetta mengi virki
öfugt við hagsveiflurnar. Þegar vel rofar til í
þjóðfélaginu seljist minna í getrauna- og
lottóleikjum en við höfum
ekki fundið það með
markvissum hætti að þátt-
takan verði minni í góð-
ærinu og meiri í hallærinu.
Það hafa því ekki verið
miklar sveiflur hjá okkur
hvort sem það þýðir að
það hafi ekki verið neitt
góðæri eða stöðugt góð-
æri búið að vera undan-
farin ár. Við finnum þó að
það er minni sala þegar
líður að lok mánaðar held-
ur en við upphaf þeirra,
sem sýnir okkur að það
skiptir máli hvað eru miklir
peningar í umferð."
Hver er markhópurinn í
lóttóinu og eru ákveð-
nar stéttir í þjóðfélaginu
frekar að taka þátt en
aðrar?
„Við erum búnir að greina
þetta vel. Lottó er algjör
fjöldaleikur og allir spila
með en hver
á sínum for-
sendum. Karlar og konur spila
Lottóið jafnt, unga kynslóðin
dettur inn þegar stóru pott-
arnir koma en eldra fólkið er
tryggara. Hvað varðar get-
runaleikina 1x2 og Lengjuna
þá eru það meiri karlaleikir.
Þetta eru ungir karlmenn frá
20 til 50 ára.
Þessi tveir hópar eru því mjög
ólíkir. Allar kannanir hér og í
nágrannalöndunum sýna fram
á að mjög fáar konur spila í
getraununum."
Þið hafið ekki reynt að virk-
ja þessar konur sem ákveð-
inn markhóp?
„Jú, við höfum oft spáð í það en höfum ekki
framkvæmt það ennþá. Kvennaboltinn er
Við erum búnir að
greina þetta vel.
Lottó er algjör
fjöldaleikur og allir
spila með en hver
á sínum forsend-
um. Karlar og
konur spila Lottóið
jafnt, unga kyn-
slóðin dettur inn
þegar stóru pott-
arnir koma en eldra
fólkið er tryggara.
Hvað varðar
getrunaleikina 1x2
og Lengjuna þá eru
það meiri
karlaleikir.
alltaf að verða vinsælli og því ættu konur
ekki að spila með í getraununum sem hafa
skoðanir á boltanum eins og karlarl! Þetta
eru konur sem við eigum eftir að ná til en
fram til þessa höfum við einbeitt okkur
meira að körlunum."
Hvað varðar enska og ítalska getrauna-
seðilinn. Þá er enski boltinn mun vin-
sælli enda meiri hefð fyrir honum hér á
landi en ítalska boltanum. En hvernig
hefur ítalska seðlinum vegnað eftir að
hætt var að sýna beint frá ítalska bolt-
anum á Sýn?
„Það hefur ekki haft svo mikil áhrif. Þátt-
takendur virðast hafa svo mikla möguleika
að afla sér upplýsinga um ítölsku leikina í
gegnum netið að það hefur ekki haft mikil
áhrif.“
RÚV sýnir þýska boltann í beinni og Sýn
er með spænska boltann í beinni sem
hefur notið hylli sjónvarspáhorfenda.
Engar hugmyndir uppi að búa til Þýskan
eða Spænskan seðil?
„Við erum alltaf að meta þetta. Við erum í
samstarfi við Svíana með leikina okkar og
þetta ræðst dálítið af því hvað þeir gera
líka. Maður veit þó aldrei hvernig fram-
haldið verður á næstu árum.“
Vinningshlutfallið í fínu jafnvægi
fyrir þá sem taka þátt í leiknum
Lengjan fór af stað hjá ykkur 1996 -
hvernig hefur hún gengið?
„Ágætlega. Lengjan er dálítið flókinn leikur
að vinna með fyrir fyrirtæki einsog okkur.
Við gefum út leikskrá í upphafi vikunnar þar
sem við setjum upp stuðla. Svo hafa tipp-
ararnir alla vikuna til þess að tippa á móti
Getraununum. Þannig að í
upphafi vorum við að glíma við
mjög hátt vinningshlutfall en nú
höfum við náð ákveðnum
tökum á því. Vinningshlutfallið
er 65% í dag sem telst vera í
fínu jafnvægi fyrir þá sem eru
að taka þátt í leiknum. í byrjun
var vinningshutfallið stundum
yfir 100% í einstökum vikum.“
A hvaða lið er mest tippað á
Lengjunni og hvaða íþrótt er
þar vinsælust?
„Það er gríðarlega mikið
tippað á Meistaradeildina. Svo
festa þátttakendur mikið leiki
með Man. Utd., Arsenal, Liver-
pool og Chelsea er að bætast í
þann hóp. Bæði er það að
þessi lið eiga flesta stuðningsmennina og
menn tippa einnig dálítið með hjartanu.
22