Skinfaxi - 01.12.2003, Page 23
Söluaukning í Lottó og íslenskum getraunum
Þannig að Liverpoolmenn taka t.d. liðið með burtséð frá því
hvernig þeir halda að leikurinn fari.“
Þannig að þeir eru ekki mjög skynsamir í dag?
,,Þeir aðilar sem hafa tippað á Liverpool hafa a.m.k. komið vel út
fyrir getraunafyrirtækin að undanförnu," segir hann brosandi.
Hvert renna síðan allir þessir peningar sem þið fáið úr
lottóleikjunum og getraununum og hversu stór hluti þeirra fer
aftur í vinninga?
,,í lottóleikjunum fer 45% aftur í vinninga og afgangurinn í rekst-
urinn og til eigenda Lottósins. í getraunaleikjunum fer 65% vin-
ninga í Lengjuna og 45% í Enska og ítalska. Afgangurinn fer síðan
í reksturinn og til íþróttahreyfingarinnar.
Við skulum heldur ekki gleyma íslensku fótbolta- handbolta- og
körfuboltaleikjunum sem við erum að sjálfsögðu með þá á
Lengjunni hjá okkur. Lengjan er þannig uppbyggð að hægt er að
tippá á einn til sex leiki og við höfum ávallt mikið framboð af leikjum
til þess að velja úr.
Hversu marga hafið þið gert að milljónamæringum í gegnum
tíðina að meðaltali á ári?
„Við vorum að taka þetta saman um daginn og þeir eru um 1000
í Lóttóinu og Getraununum. Þá erum við að tala um vinningshafa
sem hafa fengið milljón eða meira en hæsti vinningurinn var 80
milljónir. Við erum að útskrifa einn milljónamæring á viku að
meðaltali. Það heggur líka alltaf nær og nær fólki að einhver
ættingi eða vinur vinni, og enginn veit hver er næstur, en eitt er víst
að það þarf að vera einhver sem spilar með í leikjunum okkar“
Hafið þið einhverja afspurn af því fólki sem hefur unnið hjá
ykkur og hvernig þeim hefur gengið að meðhöndla
milljónirnar?
„Við höldum engu formlega sambandi við þau. En við vitum að
fólki hefur gengið mis vel að fara með peningana sem það hefur
unnið. Við höfum haft mestu samskiptin viðþá aðila sem hafa
unnið stærstu vinningana enda leita þeir yfirleitt til okkar og biðja
um aðstoð. Við bjóðum því ráðgjöf en við erum með ráðgjafa sem
er öllum óháður. Það er reyndar oft þannig að þeir sem fá mest að
þeir eyða minnst vegna þess að þeir þora ekki að byrja að eyða
peningunum. Svo eru dæmi um þá sem fá kannski 1-2 milljónir að
þeir kaupi sér eitthvað fyrir 3-4 milljónir og taki þá lán fyrir
afganginum. í 99% tilfella fer þó fólk vel með peningana."
Auglýsingarnar ykkar hafa vakið verðskuldaða athygli og
síðast keyrðu þið á þemað að konurnar væru að taka völdin í
þjóðfélaginu og karlarnir þyrftu því að halda vel utan um
tippið - nú eru þið fimm karlmennirnir hérna á svæðinu sem
sjáið að mestu um reksturinn - eru einhverjar líkur á að þið
takið konu til starfa hjá ykkur?
„Það eru 22 starfsmenn hérna hjá okkur í heildina og fimm af
þeim eru konur. Þannig að við erum með blandað fyrirtæki og ég
held að við óttumst konurnar ekkert frekar en þær okkur.“
Og svo eru það einhverjir sem eiga eftir að fá sérstakan
jólaglaðning fyrir hátíðarnar?
„Já, við erum alltaf með stórann pott fyrir jólin en það skýrist ekki
fyrr en í síðustu viku fyrir jól. Við höfum þá bætt í pottinn upp í
næsta tug fyrir ofan til að gera dráttinn meira spennandi."
Landsliðin Guðni Bergs & Eyjólfur
Bókaútgáfan Tindur
SImi 466-2772 tindur@tindur.is ► www.tindur.is
Félagsmálaráðuneytíð
Hafnarhúsínu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík
Símii 545 8100
Bréfasímí: 552 4804
Veffang: http: / /felagsmalaraduneytí.
Netfang: postur@feLstjr.ís
23