Skinfaxi - 01.12.2003, Blaðsíða 27
Rúrik Gíslason knattspyrnumaöur
Það er óhætt að segja að draumur flestra ungra
stráka sem stunda fótbolta sé að verða atvinnu-
maður í íþróttinni. Rúrik Gíslason, 15 ára strákur úr
Kópavoginum, er við það að láta þann draum rætast,
því ófá knattspyrnulið í Noregi, Englandi, Belgíu og
Hollandi keppast nú við það að fá hann í sínar raðir.
Skapti Örn Ólafsson hitti Rúrik og föður hans, Gísla
Kristófersson, að máli ekki alls fyrir löngu og for-
vitnaðist um málið.
Rúrik ásamt foreldrum sínum
Ætla mér að verða bestur
- segir Rúrik Gíslason einn efnilegasti og eftirsóttasti knattspyrnumaður landsins
Markaskorari úr Kópavoginum
Til að opna viðtalið spyr blaðamaður Rúrik að því hvers vegna
knattspyrnan hafi orðið fyrir valinu í stað einhverrar annarar
íþróttar? „Ég var nú í handbolta þegar ég var yngri, en það var
alltaf einhver svona innileikur sem heillaði mig ekkert sérstaklega.
Síðan var stóri bróðir minn í fótbolta og ætli mig hafi ekki langað
að gera eins,“ segir Rurik þegar blaðamaður spyr hann hvers
vegna fótboltinn hafi orðið fyrir valinu frekar en einhver önnur
íþrótt. „Bróðir minn var síðan valinn í landsliðsúrtak en ákvað þess
í stað að fara í sveit. Þetta er einhver lélegasta ákvörðun sem ég
hef heyrt um,“ segir yngri bróðirinn. „Annars hef ég alltaf haft gríð-
arlega gaman að fótbolta og man eftir mér úti í garði þegar ég var
lítill að sparka bolta með félögunum marga klukkutima á dag,“
segir Rúrik, en hann hefur æft fótbolta með HK síðan hann var sex
ára gamall og aldrei tekið sveitalífið í stað fótboltans. í dag spilar
Rúrik með 2. flokki í HK ásamt því að æfa með meistaraflokki
félagsins. „Ég hef ekki ennþá spilað með meistaraflokki en spilaði
reyndar á móti þeim fyrir skömmu og þá með undir 17 ára
landsliðinu. Við unnum þann leik 2:0,“ segir Rúrik sem fannst
svolítið skrítið að leika gegn sínu félagi.
Óhætt er að segja að Rúrik sé burðarás í U17 ára landsliðinu
- hefur skorað 5 mörk í 7 leikjum liðsins í ár. „Mér hefur gengið
vel með landsliðinu í ár og þá sérstaklega þegar við lékum þrjá
leiki núna í haust í Litháen í undankeppni EM. Þar mættum við
Rússlandi, Litháen og Albaníu og unnum alla leikina. Hins vegar
gekk okkur ekki vel í sumar þegar við tókum þátt í opna Norður-
landamótinu í Noregi, við töpuðum þremur leikjum en unnum
einn,“ segir markaskorarinn.
Belgía og Holland heilla
Eins og áður segir hafa mörg stórlið í Evrópu borið víurnar í Rúrik
og má þar nefna klúbba eins og Anderlect í Belgíu, Arsenal, Bolt-
on, Chelsea, Manchester City og Liverpool á Englandi og síðan
Heerenveen í Hollandi.
En hvenær fór boltinn að rúlla hvað þennan áhuga erlendis frá
varðar? „Þetta byrjaði þannig að ég fór til reynslu í mars á þessu
ári til Bolton fyrir tilstuðlan Arnórs Guðjohnsen, en það kom ekkert
út úr því. En eftir Norðurlandamótið í sumar fóru erlendir umboðs-
menn að hringja í mig, fyrst frá Noregi og Hollandi og síðan lið í
Englandi, eins og Arsenal og Liverpool," segir Rúrik.
Það kitlar ekkert að fara til liða í Englandi? „Jú að sjálfsögðu
heillar það, en ef við horfum á t.d. Ólaf Inga Skúlason sem er hjá
Arsenal núna þá er hann tvítugur og fær'fá tækifæri með aðalliði
27