Skinfaxi - 01.12.2003, Síða 29
Á leið í atvinnumennsku
búa við venjulegar heimilisaðstæður þá
erum við foreldrarnir alveg rólegir," segir
Gísli og bætir við að félagsleg umgjörð
liðanna sé mjög traustvekjandi.
Vel að málum staðið hjá
Anderlect og Heerenveen
Gísli segir það hafa vissa kosti fyrir
Rúrik að fara svona ungan út í stað þess
að fara þegar hann er t.d. 18 ára. „Þá er
hann kannski að fara beint út í hinn harða
knattspyrnuheim og standa sig algjörlega á
eigin forsendum. En þarna er hann að fá
bakstuðning félagsins til þess að þróast
áfram sem knattspyrnumaður og verða
tilbúnari í þessu umhverfi." segir hann og
bætir við: „Það var alveg með ólíkindum
þegar við heimsóttum félögin hvað þau
leggja mikla og markvissa rækt við það
sem þarna fer fram og í þeim tilgagni einum
að gera þessa stráka að góðum
knattspyrnumönnum. Auðvitað er þetta
síðan undir þeim sjálfum komið en þetta
fyrirkomulag er mjög til eftirbreytni finnst
mér,“ segir Gísli og bætir við að tímarnir
hafi vissulega breyst og það að Rúrik sé á
leið í atvinnumennskuna sé kannski ekkert
ólíkt því og þegar hann fór fyrst að heiman.
Eins og áður segir hefur Rúrik ferðast
mjög mikið á þessu ári miðað við að
vera aðeins 15 ára og segir faðir hans
að það vefjist ekkert fyrir honum. „Rúrik
hefur alltaf verið mjög sjálfstæður og þessi
ferðalög hjá honum í sumar og haust hafa
ekkert vafist fyrir honum. Þá hefur Rúrik
alltaf verið einarður í afstöðu sinni og álit
annarra truflar hann ekkert í sinni ákvarð-
anatöku, þó svo að hann taki mjög mikið
tillit til skoðana annarra," segir Gísli.
Langar að bera af
Þannig er staðið að málum hjá liðum í
Belgíu og Hollandi að mjög ungir knatt-
spyrnumenn búa fyrst um sinn hjá
fjölskyldum. „Ég myndi búa hjá fjölskyldu
og með mitt eigið herbergi og þannig,“
segir Rúrik. „Ég hef heyrt að þær fjölskyldur
sem strákar eru hjá séu mjög vel valdar.
Síðan er liðið í stöðugu sambandi við fjöl-
skylduna um hvað þau gefa mér að borða
og hvenær ég fer að sofa og þessháttar.
Þannig að þetta er svona nánast eins og að
vera á heimavist," segir hann og bætir við
að í Belgíu og Hollandi standi það einnig til
boða að vera í eigin íbúð með þá öðrum
strákum en það heilli hann ekki núna. „Ég
held að það sé mjög gott þegar maður fer
svona ungur út að vera hjá fjölskyldu
kannski fyrstu tvö árin. Þá lærir maður
málið kannski fljótar og fær meiri stuðning,"
segir Rúrik.
Þegar blaðamaður spurði Rúrik hvar
hann sæi sig sem knattspyrnumann í
framtíðinni stóð ekki á svörunum. „Bara
eins langt og hægt er. Ég hef alltaf sagt við
sjálfan mig og aðra að þó að ég sé ekki
bestur í dag þá ætla ég mér að varða best-
ur, allavega á íslandi. Ég sé Eið Smára og
hann ber af - mig langar að bera af eins og
hann,“ segir Rúrik að lokum og fullvissaði
blaðamann um að það ætti eftir að kosta
mikla vinnu og hann væri tilbúinn í þann
slag.
Enn sem komið er hefur Rúrik ekki gert
upp hug sinn hvort Anderlect eða Hee-
renveen, þar sem framherjinn snjalli hjá
Manchester United, Rud Van Nistelroy
hóf sinn feril, verði fyrir valinu, en stuttu
eftir að viðtalið fór fram var hann á leið
út til Belgíu í samningaviðræður og það
á síðan eftir að koma í Ijós hvaða
klúbbur verður fyrir valinu.
ÓSKVM UNGMENNAFÉLÖGVM GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSiELS NÝÁRS
29