Skinfaxi - 01.12.2003, Síða 30
Hvernig upplifa þau jdlin?
Jóíaundirbúningurinn er nú að ná fiámarki og
VaCdimar Kristófersson fieyrði fdjóðið í jjórum
ungmennaféCögumj spurði þá um jóíaundir-
búninginn og atfuigaði fivort þau sceujótin með
ótíkum augum þar sem þau eru stödd á mismun-
andi þrepum í aCdursstiganum.
Það er svo mikil gleði, friður
og fegurð í þessu öllu
- segir Anna Rún Mikaelsdóttir um jólin
Anna Rúna Mikaelsdóttir hefur starfaö á fjóraða tug ára fyrir Umf. Völsung á Húsa-
vík og HSÞ og gegnt formennsku þar til fjölda ára. Hún segir að þetta starf hafi gefið
henni mikla ánægju og gleði í lífinu enda hafi hún eignast ótal marga vini og kunn-
ingja í gegnum þennan félagsskap sem heyrir til ungmenna og íþróttahreyfingunni
um allt land. „Það er einstök tilfinning að koma á mót og fundi, vítt og breitt um
landið og hitta fyrir öll þessi kunnuglegu andlit, sem Ijóma af vinskap og ánægju,“
segir Anna. Aðspurð segist hún aldrei sjálf hafa keppt fyrir Völsung né HSÞ. „ Ég
hef aldrei keppt í nokkurri íþróttagrein, en þá eins og nú, hef ég verið með sem
stuðningsmaður, áhangandi vina og félaga. Alltaf tilbúin að vera með og horfa á,
aðstoða á æfingum, hlaupa á eftir spjótinu og kúlunni o.s.frv. Það má því segja að
ég sé í klappliðinu," segir hún brosandi og löngu orðið tímabært að snúa sér að
viðtalinu og spyrja hana hvort hún sé mikið jólabarn?
,,Já, það mundi ég segja. Eg er t.d. félagi í
Kirkjukór Húsavikur og er þetta alveg
yndislegur tími í kórstarfinu. Tónleikahald á
aðventunni og að syngja í jóla- og áramóta-
messum. Margt hefur auðvitað breyst frá
því að ég var með 4 litlar dætur á heimilinu,
sem eru núna sjálfar með smáfólk á sínum
heimilum."
Saumar ekki lengur
og útbýr jólafatnað
Finnst þér jólaundirbúningurinn hafa
breyst í tímans rás?
„Nei, ekki svo mikið. Hann er samt mun
auðveldari fyrir mig sem húsmóður og
móður, þar sem ég er ekki lengur að
sauma og útbúa jólafatnaðinn. Að þrífa hátt
og lágt, eins og ég gerði, líklega vegna
þess að það gerðu allar konur. Ég hef
þroskast frá því. Það er allaf sama fjörið að
fara í jólagjafaleiðangra. Jólakortin
blessuð. Það þarf að kaupa þau og skrifa
inn í. Þau telja hátt í hundraðið.“
Hvenær byrjar þú að skreyta?
„Síðastliðin ár hefur færst í vöxt að fólk
skreyti hús sín og garða með Ijósum fyrr
en áður var. Það sáust ekki svo mörg
skreytt hús, nema þá verslanir og umhverfi
þeirra, en nú, a.m.k. í heimabæ mínum, er
algengt að fólk skreyti húsin að utan og
glugga að innan og tendri Ijósin 1.
desember. Þetta er góður siður. Lýsa upp
svartasta skammdegið. Aðrar og
annarskonar skreytingar fara kanski ekki
jafn snemma upp, en ég fer að týna til og
stilla upp sumu, en lokahönd er svo lögð á
skreytingarnar á Þorláksmessu.“
Bakarðu fyrir jólin?
,,Ég hef dregið all verulega úr jóla-
bakstrinum. Það er samt alltaf eitthvað og
þá helst Laufabrauð, niðurskornu terturnar
hvítu og brúnu, (þetta skilja örugglega
einhverjir), 2-3 sortir af smákökum, blúndur
og tertubotna. Allaf gott að eiga þá til. Meiri
áhersla hefur verið lögð á það að eiga nóg
af ís, heimatilbúnum, mæru og blandi en
það er, sælgæti, Egilsmalt og appelsín."
Eignaðist ömmustelpu á jólunum
Eru einhver jól þér sérstakiega minni-
stæð?
,,Þau jól sem eru mér minnistæðari en
önnur svona fljótt á litið voru fyrir sjö árum.
Þá beið ég ásamt öðrum fjölskyldumeð-
limum eftir jólabarninu, en þá fæddist lítil
ömmustelpa rétt áður en kirkjuklukkur
landsins hringdu innjólin kl 18:00. Auðvitað
eru einhver jól eftirminnilegri en önnur, en
þessi skera sig helst úr.“
Heldur upp á jólin í Noregi
Hvernig er aðfangadagskvöld hjá þér?
„Jólamaturinn á mínu heimili er yfirleitt
svínakjöt af einhverju tagi, annaðhvort
reyktur hryggur eða steiktar nýjar kóte-
lettur. Með kjötinu er hefðbundið gamal-
dags meðlæti, svo sem sykurbrúnaðar kar-
töflur, grænar baunir, rauðkál, rauðrófur og
hrásalat. ísinn er svo borinn fram síðar um
kvöldið þegar fjöldkyldan er öll eða hluti
hennar a.m.k. saman komin. Tvær dætur
mínar búa á Húsavík ein á Akureyri og ein
í Noregi. Þessi jól verða gjörólík því sem
ég hef áður upplifað. Ég ætla að dvelja hjá
dóttur minni og hennarfjölskyldu (Álasundi
í Noregi. Ég hlakka mikið til þeirra upp-
lifunnar. Ég hlýt að syngja jólasálma og
söngva í kirkjum frænda vorra í Noregi.“
Hvað finnst þér skemmtilegast við jólin?
„Þessi árstími er ávallt svo kærkominn. Það
fljúga minningar gegnum hugann og ótal-
30