Skinfaxi - 01.12.2003, Page 31
Fjorir ungmennafélagar í jólaskapi
margt sem þakka ber. Fjölskyldur koma
saman í leik og gleði. Það er svo mikil
gleði, friður og fegurð í þessu öllu. Mér
þykir skemmtilegast þegar öll mín fjöl-
skylda er saman komin. Horfa og hlusta á
dæturnar rifja upp bernskujólin. Horfa stolt
á barnabörnin verða stærri, í tvennum
skilningi. í öllu þessu tali um ánægju,
skemmtun og gleði má þó aldrei gleyma
þeim sem minna mega sín. Þeim sem
misst hafa. Ekki hvað síst á þessum tíma
árs. Ég vil biðja góðan Guð að gefa okkur
öllum gleðileg jól og farsælt komandi ár.“
Anna lét þessar tvær vísur fylgja með sem
henni fannst eiga vel við á þessum tíma.
Jólakveðja
Bjartar kveðjur berast frá mér
Brátt er ár á enda
Sá sem ræður öllu hér
Styrk mun ykkur senda.
Höfundur: Sigurveig Buch
Vinátta.
Að eiga vin er vandmeðfarið
að eiga vin er dýrmæt gjöf.
Vin, sem hlustar, huggar, styður
hughreystir og gefur von.
Vin sem biður bænir þínar
brosandi þér gefur ráð.
Eflir þig í hversdagsleika
til að drýgja nýja dáð.
Höfundur: Ingibjörg Sigurðardóttir
Rafmagnsreikningurinn
þrefaldast í desember
- segir Hörður Óskarsson sem lýsir alltaf upp jólin
Siglfirðingurinn Hörður Óskarsson er flestum ungmennafélögum að góðu kunnur
enda starfaði hann í 15 ára á skrifstofu UMFÍ í Fellsmúla og lét þar af störfum 1999.
Hann gegndi margvíslegums störfum fyrir UMFÍ m.a. fræðslu- og kynningarstörfum,
farastjórn eriendis, tók á móti erlendum gestum, sá um ungmennavikurnar o.fl.
Skinfaxi hafði uppi á Herði á Hóteli Rauð Kross íslands Rauðárteig þar sem hann var
að jafna sig eftir aðgerð á mjöðm. Það hindraði þó ekki Hörð að fara í viðtal við
Skinfaxa enda kappinn stálsleginn og er óðum að jafna sig. Hann útskrifaðist um
miðjan desember og ekki mátti það seinna vera sagði hann þar sem hann ætlaði að
reyna að taka einhvern þátt í jólaundirbúningnum.
Skreyti eins mikið ég hef efni á
Og jólabarnið lifir enn í Herði? ,,Já, já, ég
hef ofboðslega gaman af jólunum og er
feykilega mikið jólbarn. Ég skreyti t.d. húsið
eins mikið og ég get og hef efni á. Raf-
magnsreikningurinn þrefaldast alltaf í des-
ember. Ég skreyti allt húsið að utan, tréin,
alla inniglugga, þannig að það verður mikil
Ijósadýrð hjá mér. Það tekur alla vega tvo
daga að skreyta ef allt gengur upp og ekki
þarf að leita að ónýtum perum. Ég er síðan
ekki nema einn dag að taka þetta niður."
Finnst þér jólaundirbúningurinn hafa
breyst í tímanna rás? ,,Já, að einhverju
leyti. Flestir hafa meiri peninga á milli hand-
anna núna en áður fyrr og geta því eytt
meiri pening í skreytingar. Þá byrjar jóla-
undirbúningurinn miklu fyrr en áður, jafnvel
í lok október, byrjun nóvember hjá kaup-
mönnum. Mér finnst þetta eyðileggja
stemmninguna dálítið fyrir jólin. En þrátt
fyrir þetta eru jólin sem slík mjög skemmti-
legur tími og hátíðalegasti tíminn er þegar
kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan
sex og fjölskyldan sest við matarborðið. Þá
eru allir komnir í hátíðarskap og ekki
skemmir það fyrir að hlusta á messu.“
Hvenær byrjar þú að skreyta? ,,Ég byrja
ekki að skreyta fyrr en síðustu vikuna fyrir
jól og kveiki ekki á þeim fyrr en á Þorláks-
messukvöld. Þótt tíðarandinn hafi breyst
held ég enn í gömlu hefðirnar. Ég læt þó
alltaf aðventukransinn út í glugga og á úti-
dyrnar set ég upp krans sem minnir á jólin.
Núna held ég að það verði eitthvað lítið um
skreytingar hjá mér vegna aðgerðarinnar."
Bakar alltaf laufabrauð fyrir jólin
Bakarðu fyrir jólin? „Já, ég baka alltaf
með fjölskyldunni fyrir jólin og það er alveg
ofboðslega gaman og mikil stemmning. Við
hnoðum deigið alltaf sjálf og fletum út,
skerum það og bökum. Það er heljar mikil
vinna og hálfgerð karlmannsvinna að fletja
deigið út. Ég var búinn að skera út og baka
laufabrauðinn með barnabörnunum áður
en ég fór í aðgerðina."
Eru einhver jól þér sérstaklega minni-
stæð? „Það eru tvenn jól sem koma svona
strax upp í hugann. Fyrri jólin voru þegar
ég var 11 ára og bróðir minn fæddist. Það
fór þá lítið fyrir jólunum þvi mamma var
veik fyrir barnsburðinn en hún bætti okkur
það upp þegar hún kom heim og baðst
eiginlega afsökunar á því hvernig jólin
hefðu farið blessunin. Og það var dálítið
sérstakt hvernig þetta var á þessum tíma
því það var mikill snjór á Siglufirði þessi
jólin og pabbi þurfti að draga mömmu á
sleða hátt í kílómeter á spítalann og svo
aftur heim eftir barnsburð. Svo voru það
líka minnistæð jól þegar yngri dóttur mín
bjó í Sviþjóð og ég fór þangað ein jólin
þegar eitt barnabarna minna var skírt. Það
voru gleðileg og ánægjuleg jól.“
Hvernig er aðfangadagskvöid hjá þér?
„Ég borða alltaf hamborgarhrygg á að-
fangadagskvöldi fyrir utan eitt skipti sem
var hreindýr. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur
fyrir mörgum árum er ég alltaf hjá dóttur
minni á aðfangadag."
Pakkarnir hafa alltaf sitt gildi
Hvað er skemmtilegast við jólin? „Það
er fyrst og fremst þessi tími að fá að hitta
ættingja, spjalla, sitja við gott matarborð og
hafa það huggulegt. Þá hafa pakkarnir
alltaf sitt gildi og nún er skemmtilegast að
opna þá og sjá viðbrögð barnabarnanna,“
segir Hörður brosandi að lokum og segist
alltaf hlakka mikið til jólanna.
31