Skinfaxi - 01.12.2003, Side 32
Hvernig upplifa þau jólin?
Skemmtilegast finnst mér að
finna fjölskyldutengsl og
vináttubönd í orði og verki
- segir Bolli Gunnarsson sem segist þó ekki vera mikið jólabarn
Bolli Gunnarsson segist vera fæddur inn í ungmennahreyfinguna. Hann hefur alla
tíö veriö virkur í starfi Umf. Baldurs í Hraungerðishreppi. Þar hefur hann setið í
stjórn og nokkrum nefndum á vegum félagsins en hann segir að í Hraungerðis-
hreppi sé yfirleitt allir með í einhverju starfi. Bolli er einnig gjaldkeri HSK og hefur
setið í nokkrum nefndum á vegum UMFÍ mest tengdum fjármálum eins og Lottóinu.
En skildi Bolli vera mikið jólabarn?
,,Nei, ég verð að viðurkenna það að ég
telst tæplega mikið jólabarn."
Finnst þér jólaundirbúningurinn hafa
breyst í tímanns rás? ,,Já, hann er meiri
og hefst fyrr að mínu mati.“
Hvenær byrjar þú að skreyta? ,,Tja,
kannski viku fyrir jól.“
Bakarðu fyrir jólin? ,,Jú, svona eilítið til
gamans.“
Eru einhver jól þér sérstaklega minni-
stæð? ,,Þau renna furðu mikið saman en
fyrstu jólin mín sem ég hélt ekki uppá bern-
skuheimilinu voru auðvitað svolítið skrítin
en ánægjuleg. Helst minnist ég nokkurs
konar ekki jóla þ.e. sannrar jólastemmingar
og jólapælinga þrátt fyrir að engin hafi
jólaijósin verið, ekkert skraut og harla fátt
sem minnti á jól enda bara október. Synd
því svo komu jól eins og hver önnur."
Hvernig er aðfangadagskvöld hjá þér?
,,Aðfangadagskvöld hefur verið og verður
hjá mömmu í sveitinni. Þar verður trúlega
einnig systir mín og við munum snæða
jólagæs að gömlum sið.“
Hvað finnst þér skemmtilegast við jólin?
„Skemmtilegast finnst mér að finna fjöl-
skyldutengsl og vináttubönd í orði og verki.
Svo vil ég auðvitað nota tækifærið óska
öllum ungmennafélögum gleðilegra jóla
með þökk fyrir samstarf í stóru og smáu.“
Tíminn líður hraðar ef ég
hjálpa til við að þrífa fyrir jólin
- segir Rósa Jónsdóttir sem á erfitt með að bíða eftir jólunum
Rósa Jónsdóttir er tvítug stúlka úr Grafarvogi. Hún stundar um þessar mundir nám
í íþróttaháskólanum í Sonderborg og er að læra þjálfun í handbolta og körfubolta
sem að eigin sögn hentar henni mjög vel því hún er í handbolta. Hún er líka lipur í
skvassi og hefur orðið íslandsmeistari fjögur undanfarin ár. Hún hefur verið að æfa
frjálsar íþróttir með Fjölni en vegna anna í skóla, skvassinu og handboltanum þá tók
hún sér smá hlé en vonast til að geta verið með í frjálsum næsta sumar og taka þátt
í Landsmóti UMFÍ eins og hún hefur alltaf gert. „Mitt fyrsta Landsmót var á Blöndósi
'95 og ég hef alltaf verið með síðan því þetta er hin besta fjölskylduskemmtun,“
segir Rósa sem flaug til íslands 17.desember til að vera heima um jólin. „Það kemur
ekki annað til greina hjá mér en að vera hjá fjölskyldunni um jólin og ég myndi elta
hana hvert sem væri til að halda upp á jólin með henni,“ segir hún og ætla mætti á
orðum hennar að hún sé mikið fyrir jólin.
,,Já, ég er mikið jólabarn. Eg verð alltaf að
hjálpa við að skreyta og jafnvel þrífa húsið því
þá líður tíminn hraðar. Ég er voðalega spennt
fyrir þessi jól. Ég er búin að vera hér í
Danmörku í 4 mánuði og ég get ekki beðið
eftir að eiga notaleg jól í faðmi fjölskyldunnar.“
Finnst þér jólaundirbúningurinn hafa
breyst í tímans rás? ,,Já, það finnst mér.
Það er farið að skreyta miklu meira og það
eru komnir fleiri litir en þessu hefðbundni guli
og rauði litur. Svo byrjar jólaundirbúningurinn
alltof snemma að mína mati.“
Hvenær byrjar þú að skreyta? ,,Ég myndi
byrja að skreyta í byrjun desember en ég hef
alltaf verið í prófum á þeim tíma svo ég hef
bara alltaf byrjað eftir prófin, svona um
17.desember. Ætli ég byrji ekki bara að
skreyta um leið og ég kem heim þetta árið.“
Bakarðu fyrir jólin? ,,Já, ég baka piparkökur
einungis til að bræður mínir geti málað á þær
og þegar það er gert, um 20. desember, þá
eru komin jól hjá okkur.“
Eru einhver jól þér sérstaklega minni-
stæð? ,,Já, jólin '95. Þá voru fyrstu jól litla
bróður mins og hann var einungis 2 mánaða
þegar þau voru og þau verða mér alltaf
minnistæð. Þetta voru eiginlega fyrstu jólin
sem mér þótti ekkert voðalega sérstakt að
opna pakkana."
Hvernig er aðfangadagskvöld hjá þér? ,,Ég
er heima með mömmu og pabba og bræðrum
mínum tveimur. Við byrjum að borða klukkan
6. Við fáum hamborgarahrygg og þegar búið
er að borða í rólegheitunum og taka til eftir
matinn er farið beint í að opna pakkana. Það
er ekki möguleiki að bíða með það þar sem
það eru 2 guttar á heimilinu sem eru alveg
jafnmikil jólabörn og systir þeirra. Þegar búið
er að opna pakkana fáum við tobleroneís að
hætti mömmu.“
Hvað finnst þér skemmtilegast við jólin?
,,Að geta bara slakað á og verið með
fjölskyldunni. Það er nefnilega þannig að það
eru allir að æfa eitthvað á mínu heimili og
æfingar á mismunandi tíma þannig að við
getum voða sjaldan borðað saman, en á
jólunum er það svo sannarlega gert og við
njótum þess til hins ýtrasta.“
32