Skinfaxi - 01.12.2003, Page 33
Er líf eftir stjórnarsetu í UMFÍ! Sigurlaug Hermannsdóttir
í næstu tölublöðum Skinfaxa verður ákveðið þema í
gangi er nefnist „Er líf eftir stjórnarsetu í UMFÍ!“ Hug-
myndin er að leita uppi einstaklinga sem setið hafa í
stjórn UMFÍ fyrir nokkrum árum og spyrja viðkomandi
m.a. hvað hafi tekið við eftir stjórnarsetuna, hvað hann sé
að gera núna, hvað yrði hans fyrsta verk ef hann yrði
skipaður í stjórn UMFÍ á nýjan leik o.fl.
Það er Sigurlaug Hermannsdóttir sem sat í stjórn
UMFÍ í frá 1991-1997 sem ríður á vaðið. Hún er í Ung-
mennafélaginu Hvöt sem er innan USAH eins og flestir
ungmennafélagar vita sjálfsagt. Einnig er hún félagi í
Sjálfsbjörg, Krabbameinsfélagi Austur Húnavatnssýslu
og í Félagi hjartasjúklinga á Norðurlandi vestra. Hún
virðist því hafa alveg nóg á sinni könnu. Sigurlaug eða
Silla eins og hún er kölluð býr á Blönduósi og starfar sem
féhirðir í Búnaðarbankanum þar.
Þess má síðan geta að Hafsteinn Þorvaldsson fyrr-
verandi formaður UMFÍ er næsti viðmælandi Skinfaxa.
Mundi tryggja það að hver fjórðungur
hefði sinn fulltrúa í stjórn
- segir Sigurlaug Hermannsdóttir fyrrverandi stjórnarmaður í UMFÍ ef hún settist aftur í stjórnina
Hverju beittir þú þér helst fyrir?
„Málefnum sambandanna hverju sinni og
svo auðvitað Ræktun lýðs og lands. Unn-
um sérstaklega vel að hreinsunarátakinu.1'
En hvað tók við þegar hún hætti í stjórn
UMFÍ?
,,Ég var formaður bæjarráðs og í bæjar-
stjórn á Blönduósi tl 1998 og síðan tók ég
smá hvíld frá þessu öllu saman.“
Kemur þú eitthvað að starfi
UMFÍ í dag? „Nei.“
Ertu í einhverju félagsstarfi
núna?
,,Já, ég er formaður Félags
hjartasjúklinga á Norðurlandi
vestra frá 2002.“
Frábært að sitja í stjórn
UMFÍ
Hvernig var að sitja í stjórn
UMFÍ?
„Það var í einu orði sagt alveg
frábært."
„Rjúpur. Hef aldrei
borðað annan
jólamat og get ekki
hugsað mér neitt
annað. Á nokkrar
síðan í fyrra og svo
má alltaf skjóta ref
með nokkrar rjúpur
í kjaftinum," segir
hún glottandi. „Það
er ekki bannað,“
bætir hún við að
lokum.
Hvernig finnst þér UMFÍ
stjórnað í dag? „Mjög vel. Er
áskrifandi af Skinfaxa og fyl-
gist vel með hreyfingunni."
Ef þú yrðir skipuð aftur í
stjórn UMFÍ á morgun -
hvert yrði þitt fyrsta verk?
„Tryggja það að hver fjórð-
ungur hefði sinn fulltrúa í
stjórn. Halda UMFÍ enn meira
á lofti og tryggja sérstöðu
þess.“
Vegna jólanna má ég til meö
að spyrja þig hvað þú borða
á aðfangadagskvöld?
„Rjúpur. Hef aldrei borðað
annan jólamat og get ekki hugsað mér neitt
annað. Á nokkrar síðan í fyrra og svo má
alltaf skjóta ref með nokkrar rjúpur í
kjaftinum," segir hún glottandi. „Það er ekki
bannað,“ bætir hún við að lokum en Skin-
faxi veit að hún er með skotvopnaleyfi og
gæti því alveg trúað henni til að leita að
refnum með rjúp-
urnar góðu.