Skinfaxi - 01.12.2003, Qupperneq 34
Efling frumsýnir leikverkið Landsmótið
Leikritiö Landsmótið er kraftmikiö og líflegt leikverk þar
sem lífsgleði, ástir og átök ráða ríkjum með góðum
skammti af gríni og glensi. Verkið er eftir Þingeyingana
Hörð Þór Benónýsson og Jóhannes Sigurjónsson.
Efniviðurinn er sóttur í landsmót ungmennafélaganna
sem sett hafa glæstan svip á íslenskt þjóðlíf. Ræktun
lands og lýðs eru einkunnarorð félaganna og má glögg-
lega sjá þess merki í leikverkinu þar sem kröftulega er
leitast við að reita ungmennafélagsarfann úr hinum
glæstu blómgörðum íslenskrar æsku.
Hörður Þór Benónýsson og Jóhannes
Sigurjónsson sömdu verkið ,
Lífsgleði, ástir, átök ásamt gríni og glensi
- einkennir leikverkið Landsmót sem leikdeild Umf. Eflingar í Þingeyjarsýslu frumsýnir í febrúar
I verkinu takast á norðanmenn og sunnan-
menn á landsmóti á Norðurlaugum. Eins og
vonlegt er skilja himinn og haf þessa
„þjóðflokka11 að við upphaf keppninnar.
Sveitalubbar, glansgellur og brilljantín eru
þar í aðalhlutverkum með skírskotun til
gullaldaráranna svokölluðu en um leið
tilvitnunum í samtímann þar sem fyrir koma
bæði bláa höndin og rauður Opal! Og
persónurnar eru að góðum og gegnum
íslenskum sveitasið kenndar við bæi sína;
Geirþrúður frá Grafarbakka og Fanney frá
Furuvöllum. Keppt er í þjóðlegum íþróttum,
s.s. sauðfjársjúkdómaveikivarnadómum,
jurtagreiningu og líklega gerist það í fyrsta
sinn í íslensku leikverki að keppt er í
stangastökki á sviði! Þar kemur m.a. við
sögu Sten Stangesluger, stangastökkvari
af dönsku bergi brotinn - ef svo má segja
og ef finna má berg í Danmörku... Og svo
er það spjótkastið: Það má alls ekki æfa
með keppnisspjótinu sem er úr rosalega
viðkvæmu fíberplasti sem má ekki rispa -
enda gjöf frá menningarsjóði Kaupfélags-
ins.
Kárahnjúkahóll?
Söngur skipar að sjálfsögðu verðugan sess
í Landsmótinu og hafa leikstjórinn, Arnór
Benónýsson, og tónlistarstjórinn, hinn eist-
lenski Jaan Alavere, sett saman kraftmikinn
sönghóp úr leikurum verksins. Textar eru
frumsamdir en lögin sótt til Bítlanna. Og
það er ávallt stutt í hárbeitt háðið með
rammri skírskotun í íslenskan samtíma
sem orkað hefur tvímælis meira að segja á
heimsvísu.
Svona hljóðar t.d. Blessuð sértu sveitin mín
á Landsmóti:
Lofgjörð syng um lítinn hól,
logagylltan kvölds í roða.
Þar sér drengur byggði ból,
á bernskuvori, eilíf sól.
Mættu á staðinn stórvirk tól,
stefna fór nú allt voða.
Hryggur græt ég þennan hól,
hól sem ekki er lengur hægt að skoða.
Óhætt er að segja að Landsmótið sé fjörleg
blanda af fortíð, nútíð og hugsanlega fram-
tíð. Verkið er byggt á nær óteljandi mörgum
atriðum sem leikstjórinn tengir saman í
eina samfellda háhraðatengingu áhorfend-
anna við persónur og leikendur það sem
fram fer á leiksviðinu.
Áttatíu manns!
Landsmótið verður frumsýnt á Breiðumýri í
Reykjadal föstudaginn 13. febrúar næst-
komandi og standa sýningar fram á vorið.
Leikendur eru 56 talsins og sumir í fleiri en
einu hlutverki. Margir þeirra eru sjóaðir og
sjóðheitir leikarar úr Þingeyjarsveit hinni
fögru, t.d. úr Reykjadal og Bárðardal, frá
Húsavík og um 40% nemenda Framhalds-
skólans á Laugum koma við sögu! Líklega
hefur engin leiksýning verið sett upp á
íslandi þar sem hlut eiga að máli íbúar
jafnmargra sveitarfélaga! Alls eiga um 80
manns hlut að máli.
Miði - matur - gisting
í boði eru pakkalausnir þannig að kaupa
má miða með mat í veitingahúsinu Lauga-
seli á Laugum og síðan má bæta gistingu í
pakkann og fá þannig afslátt leikhússmið-
anum og matnum. Fer eftir sýningardögum
hvort boðin er gisting í hinu glæsilega
gistihúsi að Narfastöðum í Reykjadal eða
hinu rómaða Sel-hótel Mývatni. Af hvorugu
verður viðskiptavinurinn svikinn og ekki
heldur matnum í Laugaseli og á öllum stöð-
um ríkir hin þingeyska brosmildi og þjón-
ustulund. Og lofa má því að sýningin
rennur skjótt um svið og er fyrirkomulagið
þannig að leikið er um húsið endilangt.
Áhorfendur sitja við kaffiborð og geta söt-
rað kaffi og gætt sér á gómsætu bakkelsi
kvenfélagsins. Þó ku vera bannað að
frussa kaffinu yfir viðstadda í mestu
hviðunum. Góða skemmtun!
34