Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1940, Blaðsíða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1940, Blaðsíða 1
STÓmHNNRBLRQm U1KIH6UR ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FIS KIM A N N AS A M B A N D ÍSLANDS II. árg., 7.-8. tbl. Reykjavik, maí 1940 Að sumarmálum „Nú er vetur úr liœ, rann í sefgrænan sæ og þar sefur í djúpinu væra; en sumariö blítt kemur fagurt og frítt meður fjörgjafar-ljósinu skæra“. Þannig kvað góðskáldið okkar Jónas Hall- grímsson um sumarkomuna, og flest, ef ekki öll, íslenzk skáld hafa fagnað sumri í ljóðum sínum, misjafnlega vel að vísu,en hjá öllum hefir endurómað sá mikli fögnuður, sem inni fyrir býr með þjóðinni, yfir komandi sumri með björtum nóttum, hækkandi sól og heitum dögum. Það er ekkert undarlegt, þó fögnuður ls- lendinga yfir komu sumarsins sé mikill — og meiri en margra annara þjóða, því að vet- urinn hefir oft farið hörðum höndum um þjóð- ina, bæði fyrr og síðar, með fárviðrum og fann_ komu og hverskonar bjargarbanni, bæði til lands og sjávar, og undir sumrinu hefir þjóðin jafnan átt allt um afkomu sína. Við það hefir lífsvonin lengst af verið tengd. Veturinn, sem var að kveðja, hefir verló ör- lagaþrunginn fyrir marga. — Á honum hefir harkalega verið skipt sköpum við fjórar af frændþjóðum vorum á Norðurlöndum. Hramm- ur styrjaldarinnar hefir lostið þessar þjóðir, sem í vetrarbyrjun undu glaðar við sitt í friði 1 og sjálfstæði. — Finnar hafa verið beygðir 1 kné og orðið að sætta sig við sjálfstæðisskerð- ingu og landmissir. Danir og Færeyingar hafa verið teknir undir „vernd“ hinna stríðandi stórþjóða og Norðmenn eiga í blóðugri styrj- öld við innrásarher margfalt stærri og sterkari þjóðar. Á þessum friðsömu frændþjóðum vor- um hefir það sannast, sem þar stendur, ,,að standa vel við höggi hinna hefir orðið dauða sök“. Á þessum vetri hefir því ófriðarbálið færst nær oss íslendingum og orustugnýrinn lætur oss nú enn hærra í eyrum en í vetrarbyrjun, og af þessum sökum hefir oss sífellt borizt meiri og stærri vandi að höndum, meðal ann- ars sá, að vér höfum orðið að taka öll vor mál í eigin hendur. Ber auðvitað að fagna því, út af fyrir sig, en sjálfsagt hefðum vér fremur kosið að það hefði að borið með öðrum hætti og und- ir öðrum kringumstæðum. Að ýmsu leyti hefir liðinn vetur farið óvenju mjúkum höndum um oss. Má segja að veturinn hafi verið einstaklega góðviðrasamur og mild- ur og sú guðsblessun hefir yfir þjóðinni hvílt, að engu skipa vorra, sem stöðugt hafa siglt yfir hættusvæði Norðurálfunnar, hefir hlekkst á að neinu Ieyti, enda þótt hætturnar af völd- um stríðsins hafi farið sívaxandi. Og mikið er það fé, sem þjóðarbúið hefir fengið yfir vet- urinn, fyrir þá framleiðsluvöru, sem „hetjur VÍKINGUR L

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.