Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1940, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1940, Qupperneq 6
á kvenhöndina en útvarpsmennirnir, heldur af því þeir vilja ekki missa neitt af fréttunum þegar þær koma, en það vilja vera vanhöld á því að ungfrúin geti hamlað á móti rússneska froðusnakknum á sömu öldulengd, en það geta þeir mæta vel Þorsteinn Ö. og síra Sigurður. Islensku sjómennirnir vilja helzt fá fregn- ir af sjósóknum og aflabrögðum. Þeir vilja heyra eitthvað um atvinnulíf og afkomu þjóð- arinnar á hverjum tíma. Þeir kæra sig auðvit- að ekkert um það, að ríkisútvarpið sé með sömu kusu-lætin í kring um þá og bændurnar, en vilja þó ekki alveg láta gleyma sér og sín- um áhugamálum. Þeir eiga bágt með að gleyma því, að þegar hin Norðurlöndin höfðu sameiginlegt útvarpskvöld fyrir sjómenn um jólin, þá var íslenzka útvarpið hið eina sem ekki var með, og hefði danska útvarpið ekki boðið íslenzku sjómönnunum, sem staddir voru í Kaupmannahöfn að koma að hljóðnemanum, hefðu íslenzku sjómennirnir alveg orðið þarna útundan. Islandskveldið í brezka útvarpinu 22. jan- úar, vakti mikla hrifni, bæði vegna meðferðar á efninu, og þeirrar velvildar í garð Islend- inga, sem alls staðar skein í gegn. Á þessum tæpa klukkutíma, öðluðust margir haldbetri þekkingu á sögu þjóðarinnar, en áður á mörg- um vetrum í skóla. Eitthvað svipað þessu, en því miður ekki alveg eins lifandi, eru útvarps- þættir Vilhjálms Þ. Gíslasonar úr íslendinga- sögum, en það er meðal þess bezta sem ís- lenzka útvarpið hefir flutt, og eins langt fyrir ofan þætti Jóns í Kotinu, og himininn er frá verri staðnum. Helgi Hjörvar, sem er vel liðinn af sjómönn- um, minntist þess einu sinni í útvarpinu, að einir væru þeir sem aldrei kvörtuðu undan út- varpsdagskránni, og það væru sjómennirnir. Hvað skyldi hann segja ef hann vissi, að eitt aðal ræðuefni þeirra á hættusvæðinu, er ein- mitt þessi dagskrá. En sjómennirnir eru skrítnir karlar, þeir segja ekki mikið. Ef þeim einhvenitíma ofbýð- ur, þá geta þeir haft það til að stökkva upp, en þá segja þeir heldur ekki neitt, þeir bara ,,rétta einn á hann“. (I næsta blaði verður sagt frá því, þ'igar ,,Járnbrautin“ verður fyrir loftárás fyrst ís- lenzkra skipa). Jón Magnússon: Líknargjafinn þjáðra þjóða, Þegar brotnar bylgjan þunga, þú, sem kyrðir vind og sjó! brimið heyrist yfir fjöll. Ættjörð vor í yztu höfum Þegar hendir sorg við sjóinn, Líkna ■ f« undir þinni miskunn bjó. syrgir, tregar þjóðin öll. rgjatmn Vertu með oss, vaktu hjá oss, Vertu ljós og leiðarstjarna, veittu styrk og hugar-ró. lægðu storm og boðaföll, biádra bióda Þegar boðinn heljar hækkar, líknargjafinn þjáðra þjóða, herra, lægðu vind og sjó. þegar lokast sundin öll. Föðurland vort hálft er hafið Drottinn, þinnar ástar óður Sálmur tileinkaður helgað þúsund feðra dáð. endurhljómi um jörð og höf. íslenzkum sjómönnum. Þangað lífsbjörg þjóðin sótti. Breiddu þína blessun yfir Þar mun verða stríðið háð. blóma lífs og þögla gröf. Yfir logn og banabylgju Vígi og skjöldur vertu þeim, sem bjarmi skín af drottins náð. vinda upp hin hvítu tröf. Föðurland vort hálft er hafið Drottinn, þinnar ástar óður hetjulífi og dauða skráð. endurhljómi um jörð og höf. VÍKINGUR 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.