Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Blaðsíða 6
Listarnir þrír.
Gyllti listinn, hvíti Iistinn og svarti listinn.
Gylti listinn er skrá yfir þá menn, sem látið hafa lífið
á hafinu. Nöfn þeirra hafa þegar veriS færð með gulln-
um stöfum í Minningabók Sjómannadagsins og hinar
gullnu minningarstjömur þeirra munu verða festar á
hvítan fána Sjómannadagsins og lýsa þar öðrum tit
fyrirmyndar í skyldurækni viS nytsöm þjóðþrifastörf.
Hvíti listinn hefur aS geyma tölu þeirra, sem bjargað
hefur verið á árinu. Hann er athyglisverður að þessu
sinni, eins og sjá má af eftirfarandi tölum:
Manns
Hinn 10. jan. bjargaði skipshöfnin á togaranum
„Hafsteinn", skipshöfninni af þýzka skipinu „Ba-
hia BIanca“, er fórst í ís á hafinu milli Græn-
lands og Islands. Skipbrotsmenn voru fluttir til
Hafnarfjarðar. Þeir voru samtals:
Þann 1. marz bjargaði björgunarsveitin í Ilöfn-
um skipshöfninni af vélbátnum „Kristján", er
strandaði þar í stórbrimi og stormi. Skipshöfnin
var:
Þann 2. marz hvolfdi bát á Sandgerðishöfn með
4 mönnum, var mönnunum bjargað aðfram komn-
um og hressust þeir fljótt.
Þann 7. marz strandaði vélbáturinn „ísbjörn"
frá ísafirði í Skálavík. Skipverjar björguðust
allir, en skipið eyðilagðist.
Iíinn 3. maí bjargaði 13 ára gamall drengur
bróður sínum 8 ára, sem fallið liafði út af bryggju
í Reykjavík
Hinn 11. maí fann togai'inn „Óli GarSa“ brezk-
an flugbát, er orðið hafði að nauðlenda vegna
vélarbilunar og kom honum til hafnar í Skot-
landi. Ahöfn flugbátsins voru 7 menn.
Hinn 31. maí bjargaði Hafliði Magnússon 10
ára telpu frá dnikknun, er fallið hafði út af
Grófarbryggjunni í Reykjavík.
Iiinn 16. júní bjargaði skipshöfnin á togar-
anum „Skallagrímur“ skipshöfninni af H.M.S.
„Andania", er skotin var tundurskeyti á hafinu
milli íslands og Bretlands. Ahöfnin var:
12. júlí bjargaði björgunarsveitin á Stokkseyri
þremur kanadiskum hermönnum á flúð í Ölvesá,
þar sem mikið straumkast var.
12. júlí var togaranum „Yolanta" frá Grimsby
sökkt af þýzkri flugvél á Hvalbaksmiðum. Skips-
höfnin, að undanteknum skipstjóra og stýrimanni
komst í skipsbátinn. Stýrimanninn fundu bátverj-
ar og tóku hann upp í bátinn, en skipstjóri fórst.
Skipsbrotsmenn réru í áttina til lands, en hittu þá
vélbát frá Stöðvarfirði, er tók skipsbát og skip-
brotsmenn og flutti til Stöðvai'fjarðar, þar sem
þeir fengu aðhlynningu.
Hinn 3. ágúst bjargaði skipshöfnin á togaranum
„Skutull“ skipshöfninni af sænska skipinu „Atos“
frá Helsingborg, er skotið hafði verið tundur-
skeyti. Skipshöfnin var
14. ágúst bjargaði skipshöfnin á togaranum
VÍKINGUR
„Helgafell“, 8 skipbrotsmönnum af sænska skip-
inu „Nils Gorthon“, er skotið hafði verið tundur-
skeyti. Voru mennirnir á fleka, þegar þeim var
bjargað, klæðlitlir og illa til reika. 8
17. júlí bjargaði Asgeir Þorvaldsson, Hafnar-
stræti 3, Isafirði, 5 ára gömlum dreng, er fallið
hafði út af bryggju þar. 1
24. júlí sökk vélbáturinn „Muninn“ frá Nes-
kaupstað, eftir ásiglingu út af Glettinganesi. Atta
menn, sem á bátnum voru, björguðust allir ó-
meiddir um borð í annan bát. 8
1. september bjargaði skipshöfnin á togaranum
„Egill Skallagrímsson" 26 mönnum af belgíska
sama dag bjargi'jði skipshöfnin á togaranum
skipinu „Ville de Hasselt“, frá Antwerpen og
„Hilmir“, 14 mönnum af sama skipi. Samtals 40
15. september bjargaði skipshöfnin á togaran-
^ um „Þórólfur“ skipshöfninni af norska skipinu
„Hird“ frá Osló, 9200 smál. að stærð, um 177 sjó-
mílur frá Barra Head. Skipið var skotið tundur-
skeyti: 30
16. sept. bjargaði skipshöfnin á togaranum „Ar-
inbjörn hersir“ 120 mönnum af franska skipinu
aranum „Snorri goði“,280 mönnum af sama skipi.
4 Skipbrotsmenn voru fluttir um borð í brezkt her-
skip. 400
20. sept. bjargaði skipshöfnin á togaranum
12 „Belgaum“ 44 mönnum af enska skipinu „New
Sevilla“ frá London 17000 smálesta að stærð, sem
skotið var tundurskeyti 5—6 sjómílur NA af Ir-
1 iandi. Skipshöfnin var flutt um borð í brezkt
eftirlitsskip. 44
Hinn 21. okt. bjargaði skipshöfniu af e.s. „Þor-
móður“, 13 skipsmönnum af enska vélskipinu
7 „Pacific Ranger“, frá London, 10,000 smálestir að
stærð, sem skotið var tundurskeyti um 92 sjóm.
NV af Barra Iiead. Skipsmenn voru alls 55 á
skipinu, er það var skotið þann 12. okt., og höfðu
þessir 13 vei'ið að hrekjast í skipsbátnum allan
þennan tíma. 13
7. nóv. bjargaði Gísli Guðlaugsson í Vest-
ggg mamiaeyjum, 10 ára gömlum dreng frá drukknun,
er fallið hafði þar út af bryggju. Drengurinn var
meðvitundarlaus þegar hann náðist. 1
g 9. nóv. björguðust tveir menn af bát, sem fórst
við Ólafsvík. Þrír menn drukknuðu og báturinn
eyðilagðist. 2
10. nóv. bjargaði brezkur hermaður 10 ára
gömlum dreng, er fallið hafði ofan um ís á tjörn-
inni í Reykjavík. 1
12. des. bjargaði vélskipið „Súlan“, 37 mönnum
af belgíska skipinu „Macedonnere“, sem skotið
hafði verið tundurskeyti. Skipbrotsmenn voru í 2
12 skipsbátnum og voru þeir fluttir til Pleetwood. 37
Um svipað leyti bjargaði vélskipið „Erna“, 3
skipbrotsmönnum af fleka í vondu veðri, er verið
höfðu að hrekjast á flekanum í 6 sólai’hringa.
27 Skipbrotsmenn voru af sænska skipinu „Veron-
ika“, sem sökt hafði verið af flugvél. Skipbrots-
6