Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Blaðsíða 20
AGNAR GUÐMUNDSSON: Rrásin á „Rrinbjörn hersir“ Víkingurinn hefir náð tali af Agnari Guð- mundssyni, er var 1. stýrimaður á Arinbirni hersi, þegar hin ægilega loftárás var gerð á hann af þýzkri sprengjuflugvél þann 22. des. s. 1. 14 sprengjum var varpað á skipið og vél- byssukúlum rigndi yfir skipverja meðan þeir voru að reyna að komast í lífbátana. Agnari segist svo frá: Sunnudagsmorguninn þann 22. des. s. 1., er Arinbjörn hersir var staddur á 53° 23' N. br. og 5° 05' V. lgd., eða um 12 sjómílum NV af Mull of Cantyre, heyrðum við til flugvélar, sem okkur þótti nú engin nýlunda, því urg þeirra er orðið svo hversdagslegt, einkum í námunda við Englandsstrendur. Og það er nú svo, að vanalegast er ekki verið að reikna út, hvort þessari eða hinni flugvélinni búi illt í huga við viðkomandi. í þessu tilfelli skeði það, sem alltaf má búast við. Flugvélin, sem var ,,Heinkel“ 111, long distance twinengine- bomber, flaug niður undir masturtoppa skips- ins, og lét sprengju falla, er féll bakborðs- megin við skipið og orsakaði óhemju loftþrýst- ing. Skipið lék á reiðiskjálfi, líkt og því hefði verið siglt með fullri ferð upp í stórgrýti. Eitt og annað gekk úr skorðum, ljós slokkn- uðu, og leki kom þegar að skipinu. — Þeggr svona stendur á, má enginn vera að því að í- huga hvaða geigvænlegu augnablik eru að líða, allir hafa nóg að gera við að koma fyrir sig þeim öryggistækjum, sem skipinu fylgja og hægt er að notfæra sér. Okkar fyrsta verk var að slaka bakborðs- bátnum, sem var útsleginn, og meðan við vor- um að slaka bátnum, flaug flugvélin yfir okk- ur og reyndi með vélbyssu sinni að hæfa menn- ina, sem voru að slaka, um leið og hún lét aðra sprengju falla. Þegar báturinn var kominn í sjóinn og komnir í hann 8 menn, flaug flug- vélin yfir í þriðja sinn og lét nú skothríðina dynja á skipinu og ibátnum og sleppti nú tveimur sprengjum, sem þó hvorugar hittu skipið. Við þessa skothríð særðust allmikið 5 af þeim, sem í bátnum voru, og einn á þilfar- inu. Ennfremur skemmdist báturinn það mik- ið, að hann flaut aðeins á öftustu loftkössun- um. Eftir að við vorum komnir frá skipinu á lífbátnum, sem var illa sjófær, gerði flugvélin 3 árásir á það. Alls lét hún 14 sprengjur falla, en engin hæfði skipið, en svo nærri féllu þær, að skipið kastaðist og liðaðist til, eins og það væri í brimróti upp í skerjagarði. Það var sýnilegt strax, að flugmennirnir beindu skothríðinni aðallega að skipverjum, í útvarpinu. En vonandi koma aftur betri tím- ar, þegar spámönnum lands vors verður veitt málfrelsi og leyft að vaða elginn um veðrið og veginn og vinda og lægðir. Vænti ég þess, að skýringar þær, sem gefnar hafa verið hér í ritinu á aðferðum við veðurspár og háttum lægða, megi verða til þess, að einhverjir geti betur en ella glöggvað sig á veðurlýsingum og veðurspám og haft af þeim aukin'not. VIKINGUK 20

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.