Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Side 11
hendur heimild til þess, að ákveða það að Síldarverksm. ríkisins taki bræðslusíld aðeins til vinnslu af síldarútvegsmönnum og sjó- mönnum, gegn ákveðnu lágmarksverði, sem hún sjálf ákveður. Rekstur Síldarverksm. ríkisins er því hröð- um skrefum að nálgast það, að verða sam- vinnurekstur síldarútvegsmanna og sjómanna þeirra, sem við þær skipta á hverjum tírna, einkum á þvl sviði, sem snýr að áhættunni í rekstri þeirra. Það kátlega og óeðlilega við þennan samvinnurekstur er það, að þeir að- iljar (síldarútvegsm. og sjóm.) sem þarna eiga sérstakra hagsmuna að gæta, eiga þess engan kost að fylgjast með rekstrartilhögun og afkomu verksmiðjanna, þar sem þeir eiga enga fulltrúa í stjórn þeirra. Flestum mun það kunnugt, að stjórn Síld- arverksmiðja ríkisins er kosin í sameinuðu þingi, og því samsett af fulltrúum þriggja stærstu sjórnmálaflokka landsins. Rekstur Síldarverksm. ríkisins er því jafnan ísýrður þeirri flokkapólitík, sem uppi er á hverjum tíma. Það er eigi langt um liðið síðan að mikil átök urðu í sameinuðu þingi um það, hver þessara þriggja flokka ætti að vera mestu ráð- andi í stjórn verksmiðjanna. Með því fyrir- komulagi sem er, og hefur verið á stjórn Síld- arverksmiðja ríkisins, er það sýnt, að síldar- útvegsmönnum og sjómönnum er ætlað að ná sem minnstri yfirsýn yfir meðferð þess fjár, sem þeir draga úr djúpi hafsins. Fyrstu síldveiðiskipin lögðu út 25.-27. júní. Megin þorri flotans mun hafa verið kom- inn á veiðar um mánaðamótin júní—júlí. — Síldveiðinni var lokið 7. sept. Síldveiðatíma- bilið var því að þessu sinni rúmar 10 vikur. Síldveiðar hófust eins og fyrr segir seint í júní, en 6.—7. júlí eru allar síldarþrær á Raufaihöfn fullar og síldarskip biðu þar í tugatali með fullfermi, eftir löndun. Á Siglu- firði stöðvaðist löndun 8.—9. júlí af sömu ástæðum og og lágu samningsskip Síldarverk- smiðja ríkisins eftir það daglega í tugatali með fullfermi síldar við bryggjur verksmiðj- anna. Á meðan löndun úr samningsbundnum skip- um Síldarverksm. ríkisins gekk eins og að framan greinir, sýndi stjórn verksmiðjanna þá góðvild í þeirra garð, að hún leyfði löndun á fleiri þúsund málum af síld úr erlendum skip- um. Þessi breytni verksmiðjustjórnarinnar sýnir betur en nokkuð annað þá umhyggju, sem hún ber fyrir ísl. síldarútvegi. Um miðjan júlí tók stjórn Síldarverksm. ríkisins Krossa- nesverksmiðjuna á leigu. Þess má jafnframt geta, að verksmiðjan á Sólbakka við Önund- arfjörð var ekki látin taka til starfa fyrr en 23. júlí, eða röskum hálfum mánuði eftir að sjáanlegt var, að löndunarstöðvanir yrðu stórfeldai'i en nokkru sinni áður. Full ástæða er til að ætla, að stjórn verksmiðjanna hafi ekki ætlað að láta starfrækja Sólbakkaverk- smiðjuna og hafi hún aðeins verið sett i drift fyrir harða áýting útgerðarmanna. Síðasta júlí fyrii'skipaði stjórn Síldarverk- smiðja ríkisins fjögra sólarhringa veiðistöðv- un á öllum þeim skipum, er samninga höfðu við verksmiðjurnar. 11. ágúst fyrirskipaði verksmiðjustjórnin aftur fjögra sólarhringa veiðistöðvun. 23. ágúst voru birt sömu fyrir- mæli, en tíminn óákveðinn, en urðu tveir sól- arhringar. Veiðibönn þessi voru neyðarráð- stöfun, sem gerð var til þess að verksmiðjurn- ar gætu unnið upp þá síld, sem lá undir skemmdum í þróm þeirra. Veiðibönn þessi léttu mikið á verksmiðjunum, en að fullum notum komu þau ekki, þar sem einlægt voru mörg skip, sem biðu löndunar. Fynnefnd veiðibönn sýna á mjög eftir- minnilegan hátt, hvaða ófremdar ástand er ríkjandi í síldarútvegsmálum þjóðarinnar. Stjórn Síldarverksm. ríkisins tilkynnti samningsskipum verksm. 4. sept. eftirfarandi: „Vegna óyfirstíganlegra örðugleika verður ekki tekið á móti síld á þessari vertíð hjá Síld- arverksmiðjum í'íkisins, sem berst til Siglu- fjarðar eða Raufarhafnar eftir kl. 12 á hád. næstk. laugardag, þ. 7. sept. Ekkert skip fær leyfi til að leggja upp afla nema úr einni veiðiför eftir kl. 24 4. sept.“ Þannig hljóðar þessi merka tilkynning verksmiðjustjórnarinnar. Hugsum okkur það réttlæti, sem hún innleiðir meðal viðskifta- vina sinna með þessum fyrirmælum, þau skip, 11 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.