Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Qupperneq 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1941, Qupperneq 29
gangi. Fljót til gangs, jafnvel eftir langa legu og slæm skilyrði. Auðveld við gæzlu og vinnu. Þessar kröfur hafa alltaf harðnað með auk- inni tækni, og er ég hræddur um að erfitt verði að breyta þeim. Þar sem véltæknin snertir sjómannastétt- ina mest allra stétta, væri vel farið, ef ,,Vík- ingur“ gæti birt góðar greinar um það efni í hverju blaði. Það væri vinsæl ráðstöfun, eí efninu er ekki blandað saman við skrum og I arnasögur. (1) En það er eins og fjöldi manna o. s. frv. (2) Útskiptanl. hraSaminkari o. fl. (3) En hvílílíur misskilningur þetta er o. s. frv. (4) Cylinder. Gear o. fl. G. Þorbjörnsson. Frá félögunum 30. nóv. s. 1. sagði Skipstjóra- og stýri- mannafélag Reykjavíkur upp samningi þeim um ísfisksflutninga er það hafði gert á síðast- liðnu ári við útgerðarmennina Hafstein Berg- þórsson og Beintein Bjarnason. Samningsum- leitanir fóru fyrst fram á gamlárdag, hurfu þá útgerðarmenn að því ráði að stofna með sér félagsskap og báðu um frest á umræðum þar til á 2. í nýári, er þeim var veittur. Þann 3. jan. var endanlega gengið frá stofnun félags útgerðaimanna er hlaut nafnið ,,Félag íslenzkra línuveiðara og fiskflutninga- skipa“, kusu þeir síðan 5 manna samninga- nefnd. Fyrsti fundurinn með samninganefnd út- gerðarmanna var haldinn síðdegis 3. jan., en þá höfðu 2 önnur skipstjórafélög gengið inn í samningana, þau: Skipstjórafélagið Kári, Hafnarfirði, og Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Hafþór, Akranesi, er höfðu kosið full- trúa, hvort fyrir sitt félag, og veitt nonum fullt umboð. Á fundi þessum voru bornar fram kröfur félaganna, síðan voru haldnir 5 fundir og var þá sýnt að samningar mundu ekki Málið var þá afhent F. F. S. í. Á sama tíma fór fram atkvæðagreiðsla í Skipstjóra- og stýrimannafélagi Reykjavíkur, um heimild til vinnustöðvunar. Þá var og samþykkt að auglýsa kauptaxta fyrir félögin er skyldi gilda þar til samningar næðust. Það sem félögin fóru fram á var: 1. Óbreytt grunnkaup og áhættuþóknun ásamt fullri dýrtíðaruppbót. 2. 3 % til skipstjóra og 2% til stýrimanns af sölu skipsins framyfir £ 2,5 á kitt. Tilboð útgerðarmanna: 1. Skipstjóri, mánaðarkaup 750 kr., full dýr- tíðaruppbót, 220% áhættuþóknun er reikn ist af 600 krónum. 2. Stýrimenn, mánaðark. 550 kr., full dýr- tíðaruppbót, 220% áhættuþóknun erreikn- ist af 450 krónum. Það, sem aðallega var deilt um, var pró- sentugrundvöllurinn. títgerðarmenn vildu alls ekki ganga inn á hann. Þeir fóru fram á að fá lækkaðan síldartaxtann, og á kostnað hans hefði ef til vill verið hægt að lcomast að með prósenturnar á flutningum, en frá því var horfið. Stjórn sambandsins tókst svo að koma á samningum er voru undirritaðir þann 15. jan., og eru þeir birtir á öðrum stað hér í blaðinu. Kaupsamningum Fél. ísl. loftskeytamanna við útgerðarmenn kaupskipa- og togaraflot- ans var sagt upp um s. 1. áramót. Hafa sam- komulagsumlieitanir staðið yfir silðan, að mestu leyti fyrir milligöngu sáttanefndar, þar sem augljóst varð þegar í upphafi, að ágrein- ingsmálin yrðu ekki leyst án hennar aðstoðar. Loftskeytamenn gera í samningsuppköstum sínum ráð fyrir nokkurri grunnkaupshækk- un, fullbættri dýrtíð og ýmsum hlunnindum öðrum. Viiðist ágreiningur aðallega vera um fyrsta atriðið, hækkun grunnkaupsins. Eftir að haldnir höfðu verið með útgerðar- mönnum togaraflotans 6 fundir alls, þar af 4 með aðstoð sáttanefndar, auglýsti stjórn F.Í.L. kauptaxta til bráðabirgða fyrir þá meðlimi félagsins, er starfa á togaraflotanum. Kaup- taxti þessi var auglýstur 29. jan. og var jafn- framt tilkynnt vinnustöðvun þann 6. febr. kl. 12 á hádegi hjá þeim útgerðarmönnum, sem ekki skráðu samkvæmt taxtanum, eða semdu á annan hátt við félagið um kaup meðlima þess fyrir hinn tilgreinda tíma. Nokkrir félagsmenn hafa þegar verið skráð- ir samkvæmt taxta þessum. 29 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.