Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Qupperneq 27
um leið og bullan lokar útstreymisopunum á
uppleið, og 15% aukinn þunga á loftinu í
strokknum. En þetta gaf þó aðeins 6,3 kg meðal-
þrýsting í m.s. „Aslaug Torm“, sem áður er
nefnd. Þá hafa Werkspoor verksmiðjurnar árið
1943 búið hollenzka farþegaskipið „Prins Willem
van Oranje“ einni Werkspoor-Lukt tólf strokka
einvirkri tvígengisvél, sem hefur 125 snúnings-
hraða með 7,5 kg meðalþrýsting. Þessi vél not-
ar sumpart blástursgasið sem orkugjafa fyrir
þrýstihleðslu og skojun. En auk þess eru hjálp-
arloftdælur, sem dregnar eru af hverju kross-
höfði, og gerir það vélina nokkuð flóknari.
B. & W. verksmiðjunum hefur hins vegar tek-
izt að finna rétt stærðarhlutföll milli blástur-
pípanna og blásturgassnældunnar, þannig að
snældan gefur nægilega orku til þrýstihleðslu
við gangsetningu með aðstoð gangsetningslofts-
ins í blástursopunum, og hæggangi með mjög
lagþrýstu blástursgasi. Gerð vélarinnar verður
nú stórum einfaldari. Hið merkilega notagildi
hennar stígur úr 81—90%, og þrýstihleðslan
eykur orkuna um 35%.
Eftir þessari gerð eru nú smíðaðar tvígengis
trunk-vélar, tíu strokka. Slaglengd 900 mm,
strokkþvermál 500 mm. Ná þessar vélar um
625 hö. í strokk með 7,9 kg meðalþrýstingi og
200 snúningshraða. Án þrýstihleðslunnar náðu
þessar vélar aðeins um 416 hö. pr. strokk.
Krosshöfuðvélar smíðar B. & W. nú af ofan-
nefndri gerð, tíu og tólf strokka, og fimm strokk-
stærðir með tilsvarandi slaglengd. Allar vinna
þær með 7,9 kg meðalþrýstingi.
Kunnugt er, að Gebr. Stoork verksmiðjurnar
smíðuðu árið sem leið átta strokka tvígengis
einvirka dieselvél með þrýstihleðslu knúna frá
FramleiSsla:
REKNET J ASLÖN GUR
HERPINÓTABÁLKAR
ÞORSKANET o.fl. o.fl.
Netin eru hnýtt úr
bómullargarni, liampgarni,
perlon- og nylon-
garni.
SCIIROEDER-netm
eru óviSjafnanlega
vei&in!
N etaverksmiSja
GRien SCHROEDER & CO.,
Reinheim og Hamborg
Þýskalandi
Stofnsett 1872
Einkaumboðsmenn:
V. Siqurðsson & Snœbiörnsson h.f.
Aðalstræti 4 - Sími 3425 - Símnefni: Vimex
blástursgasinu. Vinnur sú vél með 7,0 kg og 115
snúningshraða.
Margt bendir því til, að það verði tvígengis
einvirkar krosshöfuðvélar með þrýstihleðslu
knúin blástursgasinu, sem eftírsóttastar verði
fyrir stóru skipin næstu árin. Þá virðist gas-
knúin þrýstihleðslutæki einnig vera að ryðja
sér til rúms í fjórgengisvélum fyrir fiskiskip.
H. J.
Smœlki
— Jæja, Siggi minn. Þykir þér ekki gaman að henni
litlu systui' þinni?
— Jú, dálítið. En ég vildi nú heldur, að það hefði
verið strákur. Dóri leikbróðir minn eignaðist systur í
haust, og nú fullyrðir hann, að ég sé bara að herma
eftir sér.
VÍKINGUR
121