Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1957, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1957, Síða 27
Nýtt hraðfrystihús á Akureyri Fiskmóttaka hefst væntanlega í júlímdnuði, Stórbætt aðstaða útgerðarinnar og starfs- manna d sjó og landi. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofum Út- gerðarfélalgs Akureyrar h. f., er nú unnið sleitu- laust og af fullum krafti við framkvæmdir hins nýja hraðfrystihúss og hefur svo verið síðustu 4 mánuði. Færiböné'n sett upp. Verið er að ganga frá niðursetningu frystivél- anna og einhvern næsta dag verður byrjað á að setja upp færiböndin. Þegar því verki er lokið líður að því að hið nýja fyrirtæki geti hafið mót töku fiskjar af fullum krafti. Má ætla, að það geti orðið í júlí n. k. Öll starfsemin á einum stað, Öll starfsemi félagsins verður færð í nýju bygginguna, skrifstofur, netagerð, og þar verður rúmgóður borðsalur til hagræðis fyrir starfs- fólkið. Aðstaða Útgerðarfélagsins batnar til stórra muna, verkstjórn verður auðveldari, vinnuskilyrði við fiskverkunina verða önnur og betri og sjómennirnir munu fagna því að vita með nokkurri vissu að togararnir koma reglulega í höfn í stað þess að leita löndunarhafna víðs vegar svo sem gert hefur verið, sjómönnum til mikils óhagræðis og leiðinda. TJppgröftur — uppfylling. Nýja togara höfnin er hin myndarlegasta og er þessa daga verið að dýpka hana, framan við frystihúsið. Er uppgröfturinn notaður til upp- fyllingar á Bátadokkunni. ísframleiðslan gefst vel. Isframleiðslan hefur gefizt ágætlega og hefur fullnægt eftirspurn við Eyjafjörð og aðkomu- skipa. Hófst hún í október síðastliðið haust. Lolcaátakið. Lokaátakið til að gera hraðfrystihúsið starf- hæft er uppsetning færibandanna, sem nú verður farið að vinna að. Með þeim skapast ný aðstaða hér við löndun. Hætt verður að flytja fiskinn á bílum, svo sem gert hefur verið með ærnum kostnaði og óæskilegri meðferð á fiskinum. SJÓMAN NAB LAÐIÐ V í K I N G U R ÚTGEFANDI: F. F. S. í. — Ritstjóri Halldór Jónsson. — Ritnefnd: Júúus Ólafsson, Ingólfur Þóröarson, Geir ólafsson, Henry Hálfdans- son, Hallgrímur Jónsson, Egill Jóhannsson, Birgir Thoroddsen, Theo- dór Gíslason, Páll Þorbjarnarson. — Blaðið kemur út einu sinni I mánuði, og kostar árgangurinn 60 kr. — Ritstjórn og afgreiðsla er í Fiskhöllinni, Reykjavík. — Utanáskrift: ..Víkingur". Pósthólf 425. Reykjavík. Sími 5653. Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f. Hindrun ketilsteins í öllu vatni eru uppleyst sölt og gastegundir, sem geta valdið ryðmyndun og setja sig föst sem stein- lag innan í hitapípur. Þetta torveldar hitaleiðni og þar með nýtingu hitunartækja. Það kostar og bæði vinnu og fjármuni að fjarlægja steinlagið úr píp- unum. Mörg úrræði eru fyrir hendi bæði efnafræðileg og raffræðileg til þess að „mýkja“ vatnið og hindra steinmyndun. En þessum aðferðum fylgir annað tveggja dýr raftæki eða stöðug notkun efna sem setja þarf í vatnið. Aðferð, sem er alveg sjálfvirk, ryður sér nú til rúms í skipum, til þess að hreinsa veitivatnið í eim- kötlum og til notkunar í öllum sjó og vatnskerfum. Tækið er fremur lítið og hólklaga. Er það sett á vatnsleiðningar þannig, að vatnið streymi lóðrétt upp í gegnum hólkinn. í hólknum eru nokkrir sterkir seglar, sem breyta kristallagerð saltanna sem upp- leyst eru í vatninu. Skilja þá söltin sig úr og botn- fellast og er þá hægt að fjarlægja þau með því að blása þeim út á venjulegan hátt. í kerfum þar sem hitastigið er ekki yfir 70 stig C, fylgja söltin vatninu í hringrásinni án þess að setja sig föst á hitaflötinn. Þessi aðferð er alger- lega eðliskennd og útheimtir enga íblöndun í vatnið af neinu tagi. Sé ketilsteinn fyrir hendi í kerfinu, losnar hann af smám saman með þessari aðferð, og er þá hægt að blása honum út á venjulegan hátt. Ekki útheimtist heldur neitt viðhald eftir að tækið er komið á staðinn. Hólkurinn er innsiglaður og segl- arnir eru vel frá gengnir og missa ekki segulmátt sinn við notkun. Það eina sem þarf er að hæfilega oft sé blásið frá botni ketlisins eða kerfisins til þess að fjarlægja steinefnin sem losna. Tæki þessi eru tiltölulega ódýr einkum fyrir lítil kerfi og ekki rúm- frek. Eftir „Nork Maskintidende". Hallgr. J. Aðstoð við Sænska fiskimenn í skerjagarðinum við Stokkhólm hefur verið komið af stað vegna neyðarástands sem skapaðist hjá þeim við það að smásíldarveiðin í austur-sjónum brást þeim algjörlega vegna ísalaga, svo síldin kom alls ekki á sínar venjulegu slóðir, og hitastig sjávarins enn svo lágt, að vonlaust er talið, að síldin komi. Talið er að meðaltap hvers sjómanns sé um 5,000,00 sænsk- ar krónur, 139

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.