Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 12
Ásgeir Sigurðsson fyrfihnetti/* - (jerfakip - (jerpwnn Á síðasta ári hafa margir gerfihnettir verið sendir út í him- ingeiminn. Það er góðra gjalda vert, að reyna að komast að réttri niðurstöðu um ástand og eðli okk- ar stjömukerfis. Er vonandí að þessar athuganir verði til þess að færa mönnum heim sanninn um það, hversu skammt við erum komnir áleiðis, — hversu mikið við þurfum enn að læra, svo að von sé um viturlegri meðferð hinnar miklu orku, sem nútíma- þjóðir eru að byrja að leysa úr læðingi. Allt það starf þarf að miða í friðarátt, til aukinnar vel- sældar mannkynsins, en ekki til eyðingar. tJt frá þeim forsendum að allt sem gjört er þurfi að miða í þá átt, að auka á framfarir og vel- megun fólksins, vil ég leyfa mér með nokkrum orðum að minnast á þær gerfiumbætur, það fálm- kennda bruðl, sem lýsir sér oft í ýmsum þeim aðgerðum og fram- kvæmdum, er gjörðar eru af rík- isvaldinu hjá okkar þjóð, en eiga þó að miða að aukinni framleiðslu en verður hefndargjöf eða fálm vegna þess hvemig framkvæmd- in fer úr hendi. 1 því sambandi má minna á, þegar Svíþjóðarbát- amir svonefndu voru keyptir til landsins, sem reyndust dýrir og óhentugir, svo að ekki sé frekar sagt. Þá má nú nefna hina Aust- ur-þýzku gerfitogara, eða hvað vilja menn nefna þessa litlu kugga, sem era á stærð við þau skip, sem þóttu of litlir togarar um 1920 og voru seldir úr landi. Nú þyrftum við að eignast ný togskip, sem væru til þess hæf að fiska,bæði á innlendumogerlend- um miðum, vegna burðarþols og annars. Á þessum árum eru og verða mjög örar framfarir í bygg ingu skipa, bæði fiskiskipa og annarra, og af öllum gerðum. Það er því ekki viturlegt, mætti segja óhæfa, að byggja og kaupa á ann- an tug skipa af þessari gerð, sem er úrelt áður en skipin koma til landsins og henta okkur alls ekki. Þjóð, sem á líf sitt og framfarir undir því, að sem mest sé aflað af verðmætum hafsins, verður að fylgjast út í æsar með framför- um í skipabyggingum, það er lífs- spursmál. Það er líka fáránlegt að láta dýpi eða stærð þeirra svonefndu hafna sem skipin eiga að hafa viðskipti við, ráða nokkru um stærð skipanna sem veiðiskipa. Það sem á að ráða um stærð fiskiskipa er það, hvaða stærð er hagkvæmust vegna reksturs skip- anna, hvað stærð gefur beztar vonir um aflamagn, hvað er þjóð- hagslega bezt. Það er enginn vel- gjörningur við hinar dreifðu byggðir landsins, að fá þeim skip, sem aldrei geta skilað arði sem togveiðiskip, skip sem menn fást ekki á, nema til þess að sigla þeim heim og leggja þeim síðan, nema máske um síldveiðitímann og með breytingum. Nei, það er því mið- ur að gefa steina fyrir brauð að fá mönnum þessi tæki í hendur og segja síðan, nú getið þið fisk- að. Þið sögðuð að þetta væru á- gæt skip, er þið reynduð þau á heimleiðinni í vondu veðri, og ’ólkinu leizt mætavel á þau, þeg- ir því var boðið að skoða skipin nýkomin og fólkið fékk veitingar og fluttar voru ræður og jafnvel drápur. Já, það fara mörg skip og bátar vel við bryggju, flögg- um skrýdd og nýmáluð, er þau koma í fyrsta sinni og ef veður er gott. En svo kemur alvara lífs- ins, það þarf að manna þessi skip og þá duga ekki gerfimenn, þótt á stundum sé máske hægt að not- ast við þá, þegar verið er að bollaleggja um þessi kaup. Nú eru margir af þessumgerfi- togurum komnir til landins, sex hafa legið bundnir við bryggjur á Akureyri síðan löngu fyrir jól. Nú er komið nýtt ár. Það er verið að hækka svolítið öldustokkinn á sumum þeirra. 1 það minnsta einn þessarar gerðar er bundinn og hefur verið nokkuð lengi, á Isafirði. Þetta er sorgleg en sönn saga. Hefði ekki verið nær að hafa þá færri og stærri og yfir- byggða, svo að von væri um að menn fengjust á þá og von væri um hagkvæman rekstur? Það er því miður ekki hægt að bjarga dreifbýlinu með svona aðgerðum. Það eru línuveiðiskip og síldveiði- skip, sem henta smáhöfnunum, en ekki gerfitogarar. Bezt væri að gera hafnirnar svo úr garði, að þær gætu tekið á móti mun stærri skipum og þó aðeins þær hafnir, þar sem hafn- irnar yrðu til þess að fólkið gæti unað, þar sem slíkar aðgerðir kæmu að fullu gagni. Þar sem að lægju blómlegar og fagrar sveit- ir, samfara góðum fiskimiðum. Nú á næstunni er von mikilla og gagngerðra aðgerða, til þess að bjarga þjóð vorri frá miklum vanda. Allir þjóðhollir menn þurfa að leggjast á eitt til þess að vel megi fara. Eg vil minna á eitt dæmi í friðar- og samkomu- lagsátt, um vandamál dagsins. Árið 1946 og aftur 1953 þegar sjómannasamtök yfirmanna áttu í samningum, benti ég á við samn- ingaborðið, að æskilegt væri að sjómannasamtökin og samtök út- gerðarmanna kæmu sér saman um að skipa nefnd frá báðum að- ilum, til þess að ræða öll misklíð- armál, á meðan að samningar væm í gildi, svo að frekar væri hægt að komast hjá vinnustöðv- unum. Benti ég á að þetta tíðkað- ist með öðrum menningarþjóðum. Þetta þótti þá hin mesta fjar- stæða og ótímabært. Nú minnir mig að sambykkt hafi verið á síðasta aðalfundi Eimskipafélags Islands, að rétt væri að skipa slíka nefnd. Það gleður mig sannarlega og þótt fyrr hefði verið. Það er því mið- ur oft með góð mál að þau eru dregin á langinn úr hófi fram, Vf KIN GUR 12

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.