Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 13
þar til einhver hópur getur til-
einkað sér þau.
Nú þarf að endurskoða vinnu-
löggjöfina alla og laga hana, eftir
því sem reynslan gefur mönnum
vit og vilja til. Væri þá ekki rétt
að koma þessu atriði að, setja á-
kvæði um slíka samvinnu- eða
sáttanefnd, svo að meira öryggis
gætti en verið hefur. Já, við erum
allir að leita sannleikans, leita að
því hvernig við getum bætt hag
okkar þjóðar.
Við þurfum nú að gjöra það
að metnaðarsök, að sýna öðrum
þjóðum, að hér sé ekki um gerfi-
menn og gerfiþjóð að ræða, sem
sé að því komin að glata því sem
dýrmætast er, frelsinu og sjálf-
stæðinu.
Það þarf vilja til þess að taka
höndum saman, svo að oss megi
takast að lyfta þjóðinni á enn
hærra stig menningar og þroska.
Ef að viljinn er sterkur og allar
hendur taka á í sömu átt, er
sigurinn vís.
iVf/r shuítogari
Myrulin er af einum mtnniháttar brezk-
um skuttogara „Universal Star“. Haim
er aðeins 103 fet á iengpd, með tvær
Lister Blackstone Dieselvélar 450 og 350
hest. og er ganghraShm 11 sjóm. Tog-
arinn stimdar veiðar í NorSursjó.
Universal Star hefir lokið fyrstu velðiför
sinni í Norðursjó, og landaði 600 klttum
í Aberdeen, en l>aðan verður skipið gert
út. Skipstjóriim Baxter sagði að skipið
hefði reynst hið besta. Skipverjar eru
11. Taldi skipverjiim mögrulegt að vera
fijótari að eiga við vörpuna með jiessu
iagi og gætu lieir teldð fleiri hol á sól-
arhring heldur en með gamla laghiu
þessveg^ia.
VÍKIN GUR
tlvalveiðimóðurshipið Sovét Uhrainc
í október s.l. lét „Slava“-hvalveiðiflotiim úr höfn frá Odessa við Svatahaf í 14.
hvalveiðileiðangur sinn tU suðurhafa. l'oringi leiðangrursins að þessu sinni er
Boris Morgrun skipstjóri, sem áður hafði verið stýrlmaður í fjölda mörgrum íshafs-
leiðangrum. i
í Hvalveiðiflota þessum eru tólf hraðskreiðir hvalveiðibátar aUir með rafmangs-
dieselvélar sem aðalvélar skipanna. En forustuskip er hið gamla móðurskip „Slava”.
Nokkrum dögum síðar lagði annar hvalveiðUeiðangur einnig úr höfn. 1 honum
eru 20 hvalveiðUbátar og forustuskip þeirra hið nýja móðurskip „Sovét-Ukranie“,
sem er í fyrstu ferð sinni. En það hefir verið þrjú ár í smíðum við Nosenko skipa-
smíðastöðina í Nikolajev við Svartahaf.
Skip þetta (sjá mynd) ’er stærsta sinnar tegundar i heimi 44,000 brt. eða 15,000
brt. stærra heldur en gamla móðurskipið „Slava“. I>að er 716 fet (218 m.) á lengd,
bógbreidd 92 fet (28) og hæð skipsins samsvarar 12 tU 14 hæða húsbyggingu.
Skipið er útbúið nýtísku tækjum tU þess að vinna og gjörnýt allan afla. í skipinu
eru einnig rannsóknarstofur til ýmiskonar vísindastarfsemi.
Skipstjórinn Alexei Solyanik, sem áður var skipstjóri á „Slava“. skýrði frá því
m.a. að í „Sovét-Ukranie“ væri sameinað aUt það nýjasta sem þekkt væri í skipa-
smiðum. Yfir 1000 sérfræðingar í skipabyggingum og 500 verksmiðjur í Moskvu,
Latvian, Kiev, Lemngrad, Kharkov, Khabarovsk, Rostov ásamt ýmsum öðrum sér-
stofnunum hafi lagt hönd á plóghm við að skipuleggja, teikna og framleiða útbúnað
skipsins.
Um borð í „Sovét-Ukraine er hægt að hraðfrysta 100 lestir af hvalkjöti og lifur
á dag. Hraðfyrstigeymslur skipsins nirna 1800 smál. af frystum afurðum. 1 skipinu
eru 265 eins og tveggja inamui íbúðir með öllum þægindum fyrir skipverja.
iXíftízhu fishbúð
Mynd þessi er ekld úr fiskbúð hér á íslandi, en er úr nýrri fiskbúð í Oldenburg í
Þýzkalandi. Þjóðverjar leggja mikla áherzlu á vöruvöndun og þá staðreynd, að fisk
þurfi að meðliöndla einsog aðra matvöru með ýtrasta hreinlæti.
13